Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Veðrið ætti ekki að spilla hrekkja­vöku eins og í fyrra

Á fimmtudaginn er spáð hvassviðri snemma morguns en veðrið á að skána seinni partinn. Djúp lægð sem hafði verið spáð fyrir lok vikunnar nær líklega ekki inn á land. Þá segir veðurfræðingur að þó svo að það geti orðið slydda og vindur á laugardag muni veðrið líklega ekki spilla hrekkjavöku eins og í fyrra.

Veður
Fréttamynd

Skafið og saltað

Í nótt verður úrkoma um mest allt norðanvert landið, rigning við ströndina, annars slydda eða snjókoma. Í nótt var næturfrost víða á höfuðborgarsvæðinu og þurftu margir að rífa sköfuna upp í morgun. Þá hefur sést til saltbíla á götum borgarinnar og á bílastæðum.

Veður
Fréttamynd

Engar við­varanir

Lægðin sem olli storminum í gær er nú fyrir norðan land og fjarlægist. Engar veðurviðvaranir eru í gildi en veðrið hefur leikið íbúa landsins grátt síðustu daga. 

Veður
Fréttamynd

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Veður
Fréttamynd

Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum

Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði en þar er mestu uppsafnaðri úrkomunni spáð. Tvær lægðir áttu að fara yfir landið um helgina, sú fyrri í gær og sú seinni í dag. Ekki er talin hætta í byggð en skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum.

Veður
Fréttamynd

Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum

Í dag er spáð sunnan og suðvestan stormi og eru líkur á mikilli ölduhæð nærri ströndum sunnan og vestan til á landinu. Gular viðvaranir eru ýmist í gildi eða taka gildi síðar í dag. Varað er við vegalokunum eftir hádegi á milli Hafnar og Reyðarfjarðar. 

Veður
Fréttamynd

Gæti komið til lokana með stuttum fyrir­vara

Vegagerðin vekur athygli á því að vegna appelsínugulrar veðurviðvörunar á norðanverðu Snæfellsnesi upp úr hádegi gæti komið til lokana á vegum með stuttum fyrirvara. Búast má við hviðum allt að 45 metrum á sekúndu á svæðinu.

Veður
Fréttamynd

Stormur með tals­verðri rigningu síð­degis í dag

Gular og appelsínugular viðvaranir taka gildi síðdegis í dag þegar næsta lægð gengur yfir landið. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að við Suður-Grænland sé alldjúp og víðáttumikil lægð sem stjórni veðrinu hjá okkur í dag. Það verði vaxandi sunnan- og suðaustanátt, hvassviðri eða stormur síðdegis með talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands.

Veður
Fréttamynd

Gul við­vörun gefin út fyrir landið allt

Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir á landinu öllu, en þær taka ýmist gildi á morgun laugardag eða á sunnudag. Spáð er sunnan hvassviðri eða stormi annað kvöld á suðvestan- og vestanverðu landinu. Gul viðvörun hefur svo verið gefin út fyrir landið allt seinni partinn á sunnudag.

Veður
Fréttamynd

Tals­verð rigning næstu daga

Suðvestan átta til þrettán metrar á sekúndu og lítilsháttar skúrir en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti á bilinu fjögur til tíu stig.

Veður
Fréttamynd

Fylgstu með lægðinni í beinni

Viðvaranir eru í gildi víða um land vegna lægðar sem nálgast landið úr suðri. Appelsínugular viðvaranir verða í gildi í Breiðafirði, á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra í kvöld og í nótt.  

Veður
Fréttamynd

Við­varanir á við­varanir ofan

Hringveginum verður lokað undir Eyjafjöllum og alveg að Öræfum frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan níu hið minnsta vegna óveðursins fram undan. Spáð er norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi og stöku hviðum upp á 40 metra á sekúndu fyrir sunnan.

Veður
Fréttamynd

Appel­sínu­gular og gular við­varanir gefnar út

Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir á stærstum hluta landsins á miðvikudag. Von er á stormi og stórhríð og hefur veðurfræðingur sagt að gera megi ráð fyrir að meðal annars verði raskanir á flugi.

Veður
Fréttamynd

Suð­austan stormur og gul við­vörun

Búast má við suðaustan hvassviðri eða stormi sunnan- og suðvestanlands með rigningu í kvöld. Gul viðvörun vegna storms tekur gildi klukkan tíu í kvöld á Suðurlandi.

Veður
Fréttamynd

Milt og blautt í dag

Við erum á milli veðrakerfa í dag samkvæmt veðurfræðingi og hæg breytileg átt því ríkjandi og dálitlar skúrir í flestum hlutum landsins. Hitinn er frá þremur og upp í tíu stig.

Veður
Fréttamynd

All­mikil lægð þokast með­fram landinu

Vindar verða fremur hægir í dag en norðan- og norðvestanstrekkingur úti við norðvestur- og suðvesturströndina. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands fylgir þessu rigning með köflum eða skúrir.

Veður
Fréttamynd

Mikil rigning og all­hvass vindur

Skil eru á leið yfir landið og með þeim fylgir allhvass eða hvass vindur af suðaustri og mikil rigning sunnan- og vestantil á landinu. Það lægir seinnipartinn.

Veður
Fréttamynd

Frost í nótt en hlýnar yfir daginn

Smálægð skammt norðvestur af landinu stjórnar veðrinu í dag og verður áttin því suðlæg eða breytileg. Það fyrsti allvíða í nótt en hiti yfir daginn verður á milli tveggja og níu stiga.

Veður
Fréttamynd

Nætur­frost víða

Kraftlitlar smálægðir eru á sveimi í kringum landið og verður því áttin breytileg í dag samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Það frysti víða í nótt.

Veður
Fréttamynd

Slydda og snjó­koma til fjalla

Búast má við rigningu í norðausturfjórðungi landins en bjartviðri og norðanátt upp á þrjá til átta metra á sekúndu á vestanverðu landinu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Veður