
Skoðun

Sjö spurningar sem fjölmiðlar verða að spyrja frambjóðendur um loftslagsmál
Kjósendur virðast forgangsraða loftslagsmálum neðar en heilbrigðis-, félags-. húsnæðis- og efnahagsmálum. Enda vandamálin ærin og ekki skal lítið gert úr þeim hér. Skiljanlegt er að stjórnmálaflokkar reyni að höfða til kjósenda með því að gera þessi mál að „stóru kosningamálunum“.

Ert þú með geðsjúkdóm? Mjög líklega...
Ef þú ert með kvíða eða þunglyndi sem hamlar lífsgæði þín að einhverju leyti og hefur þau áhrif að hið daglega líf þitt sem einu sinni var gott er nú í einhverskonar óreiðu eða er að falla að einhverju leyti úr skorðum að þá fellur þú undir það hugtak að vera með og kljást við geðsjúkdóm/geðröskun.

Vonin er vonarstjarna sálfræðinnar
„Senn stynur vetrarvinda raust, nú visna blómin skær. Þótt visni sérhvað hér um haust, í hjarta vonin grær.“

Mikilvæg „ófemínísk“ tillaga og fleira gott
Vörðurnar á lífsins leið eru margar. Ein sú stærsta, foreldrahlutverkið, er hvorki gefins né sjálfsögð. Það getur verið krefjandi að hefja nýtt líf og stofna fjölskyldu.

Kjósum Lilju Dögg Alfreðsdóttur á Alþingi
Nú nálgast kosningar til Alþingis Íslendinga. Af því tilefni langar mig að hvetja fólk til að kjósa Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra og varaformann Framsóknarflokksins.

Samfélag fyrir okkur öll
Íslenskt samfélag hefur þróast og breyst ótrúlega hratt á síðustu áratugum. Þegar ég var að alast upp í Breiðholti á áttunda og níunda áratug síðustu aldar var það hrátt og líflegt, spennandi og óútreiknanlegt – allt í senn.

Pólitíska umhverfið í dag – sviðsett leiksýning
Pólitíska umhverfið í dag – bæði hér á Íslandi og víða um heim – er eins og sviðsett leiksýning. Valdhafar beita okkur stöðugt sömu gömlu brellunum. Þeir magna upp tilfinningar, skapa ótta og sundra okkur í hópa til að styrkja eigin stöðu.

Reddarinn Geiri í Glaumbæ - gömul saga og ný
Húsið þar sem nú er Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg var á sínum tíma byggt sem íshús, en hýsti síðan heitasta skemmtistað landsins, Glaumbæ, á sjötta og sjöunda áratugnum. Þúsundir ungmenna sóttu Glaumbæ um hverja helgi.

Almageddon?
Sagt hefur verið, að ef maður vilji vera viss um að hætt sé að taka mark á því sem maður segir, þá sé öruggasta leiðin til þess, að fara í pólitík. Hafi hins vegar aldrei verið mark takandi á því sem maður segir er skaðinn lítill.

„Hvenær var þetta samtal við þjóðina tekið?“ spurði garðyrkjubóndinn
Í vikunni heimsótti ég garðyrkjubændur á Suðurlandi. Úti var dimmur nóvember og veturinn minnti á sig með ísköldum vindkviðum, en inni í gróðurhúsunum ríkti hlýja og birta. Þar var lífið fullt af litum og ferskum ilmi.

Opið bréf til Bjarna Benediktssonar: Bruninn á Stuðlum: Hver ber ábyrgð?
Bruninn á Stuðlum, þar sem barn lést, hefur skilið þjóðina eftir í áfalli. Þetta er harmleikur sem hefði aldrei átt að eiga sér stað. Kerfi sem á að vernda okkar viðkvæmustu börn hefur brugðist – og það með líf þeirra að veði.

Varist eftirlíkingar
Margir þeirra flokka sem nú eru í framboði skreyta sig með því að segjast vera hægri flokkar. Raunin er sú að það er aðeins einn flokkur í boði sem hefur barist fyrir frelsi og minni ríkisafskiptum í bráðum 100 ár.

Íslenskan okkar allra
Á hverju ári, þann 16. nóvember, fögnum við Íslendingar Degi íslenskrar tungu. Þessi dagur er haldinn hátíðlegur til þess að heiðra minningu Jónasar Hallgrímssonar, skálds og náttúrufræðings, en einnig árleg áminning um mikilvægi þess að varðveita íslenska tungu í nútímasamfélagi.

Nærsýni afinn og baunabyssan
Þegar ljóst varð að sveitarfélög gætu ekki komið sér undan því að semja við kennara með uppdiktuðum kærum um ólögmæti verkfalls hófst herferð sem var í senn afhjúpandi og raunaleg.

Miðflokkurinn hefur lausnir á húsnæðismarkaði
Flestum er kunnugt um erfitt ástand á húsnæðismarkaði. Ungt fólk er í vandræðum með að komast inn á markaðinn og kaupa sína fyrstu eign. Barnafjölskyldur eru í vandræðum að stækka við sig með stækkandi fjölskyldu.

Skyldan við ungt fólk og framtíðina
Á Íslandi stunda um tugir þúsunda nemenda nám á framhaldsskólastigi. Sumir í þessum hópi glíma við andlegar áskoranir í sínu lífi á borð við streitu og depurð. Að mati Flokks fólksins hefur þörfin aldrei verið meiri en núna að grípa inn í og veita ráðgjöf, stuðning eða meðferð eftir því sem við á hverju sinni.

Ríkið sviptir 30.400 manns grundvallarréttindum sínum
Íslenskt samfélag hefur upplifað verulegar breytingar á húsnæðismarkaði, sérstaklega í kringum aldamótin 2000. Á þessum tíma dró ríkið sig að miklu leyti úr beinni aðkomu að uppbyggingu og rekstri félagslegs húsnæðis, sem hafði víðtæk áhrif á húsnæðisöryggi og félagsleg réttindi landsmanna.

Tökum aftur völdin í sjávarútvegi
Það vekur athygli að Sósíalistaflokkur Íslands er eini flokkurinn sem hefur rætt sjávarútvegsmál af fullri alvöru í aðdraganda kosninga. Örfáir flokkar hafa sagst vilja hærri veiðigjöld í ríkissjóð en útfæra það ekkert nánar. Þó liggur fyrir að veiðigjöldin standa ekki fjárhagslega undir lögboðnu hlutverki ríkissjóðs um þjónustu við ríkisstyrktu-einokunar-útgerðina.

Forarpyttur fordómanna – forðumst hann!
Fordómar eru eitt það ljótasta sem fylgir mannskepnunni og í skjóli þeirra hafa verið gerðir hlutir sem eru það skuggalegir að ekki verður farið nánar út í þá hér. Það sama mætti reyndar líka segja um þjóðernishyggju, sem er ,,tæki“ sem menn grípa til þegar hreyfa þarf við fólki með ákveðnum hætti og þá alveg sérstaklega í pólitískum tilgangi.

Örugg og fagleg lyfjaendurnýjun – hagur sjúklinga
Undirritaður er heimilislæknir og hefur síðustu ár tekið þátt í gæðastarfi sem tengist ávísun lyfja á Heilbrigðisstofnun Austurlands. Þar ber einna hæst úttektir á ávísun sýklalyfja í landshlutanum í gegnum samstarf við Þróunarmiðstöð Íslenskrar Heilsugæslu, endurskoðun verklags við ávísun ávanalyfja og nú einnig verklag við endurnýjun allra lyfja.

Rangar lögheimilisskráningar og skynsemishyggja
Í ágúst síðastliðnum skráðu tveir mér óskyldir einstaklingar lögheimili sitt á fasteign minni, þar sem ég bý í með manni mínum. Ég fékk tilkynningu um þessa nýju íbúa í gegnum Island.is og hafnaði skráningunni strax sama dag og ítrekaði 14 dögum seinna.

Fjölfræðingur óskar eftir starfi
Ef ekki næst sátt í kjaradeilu kennara. Sinnir í dag verkefnum sem skarast á við ýmis sérfræðistörf.

Leyfum ungmennum að sofa – hættum að sofa á verðinum
Eitt af stærstu lýðheilsumálum samtímans snýr að neyslu orkudrykkja, sérstaklega meðal ungmenna. Þetta er ekki aðeins risamál sem snertir svefn og líðan, heldur nær það til margra þátta sem tengjast almennri lýðheilsu þjóðarinnar. Þrátt fyrir vaxandi umræðu um skaðsemi orkudrykkja virðist aðgengi að þeim sífellt verða meira og auglýsingar þeirra oft villandi.

Íslensku menntaverðlaunin og vandi íslenska skólakerfisins
Hinn 5. nóvember síðastliðinn voru Íslensku menntaverðlaunin svonefndu veitt í sjötta sinn eftir að þau voru endurvakin frá fyrri tíð. Tilnefningarnar báru vott um metnaðarfullt og skapandi skólastarf, sem vonandi hafði ræktað hjá íslenskum ungmennum þá mannkosti, er forseti Íslands tiltók í lokaræðu sinni við verðlaunaafhendinguna: „Mennsku, samkennd, seiglu, virðingu, hugrekki, auðmýkt og kærleika“.

Dagur íslenskrar tungu 2024: Væntumþykja í 60 ár
Síðastliðin sextíu ár hefur verið til nokkuð sem kallast Íslensk málnefnd. Verkefni málnefndarinnar eru öll unnin í þágu íslensku, tungumálsins sem er opinbert mál á Íslandi og hefur verið talað og skrifað á landinu í rúm þúsund ár.

Opið bréf til næsta heilbrigðisráðherra
Til hamingju með nýja starfið !

Einkavæðing súrefnisins
Nú heyrum við oddafólk á listum til Alþingiskosninga síendurtekið víkja sér undan að svara erfiðum og áleitnum spurningum um hvar hinir ráðandi standa í rimmu almennings við stjórnvöld. Rimmu sem hverfist um vexti, verðbólgu og síðast en ekki síst, heimilin í landinu.

Aðgangur bannaður
Á því er ekki nokkur vafi að nýsköpun á sviði heilbrigðismála getur létt á álagi á opinbera heilbrigðiskerfinu og starfsmönnum þess auk þess að stórbæta þjónustu til landsmanna.

Á að vera landbúnaður á Íslandi?
Þetta er grundvallarspurning sem allir íslendingar þurfa að gera upp við sig ásamt þeirri spurningu hvort byggð eigi yfir höfuð að haldast annars staðar en á sv-horninu. Með ríkjandi borgríkisstefnu síðustu ára í boði Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna hefur það skilað 85% þjóðarinnar á eitt horn landsins.

Miðflokkurinn stendur vörð um bændur
Við hjónin höfum rekið búskap hér í Skagafirði um langt árabil og konan mín verið við bústörf nánast frá fæðingu. Búskapur er það sem við lifum á og lifum fyrir. Ég hef aldrei efast um að Miðflokkurinn undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar standi vörð um hagsmuni bænda og íslensks landbúnaðar.