Innlent
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Von á erlendum fjölmiðlum og fjölmiðlamiðstöðin opnuð á ný Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla, vegna eldgossins á Reykjanesi sem hófst í gærkvöldi, verður opnuð í Hafnarfirði á ný í dag að sögn ferðamálastjóra. Eldgosið hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni klukkan 22:17 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2023 10:27
Framleiðnin gæti vel hafa verið meiri en 200 rúmmetrar Í færslu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands á Facebook segir að verulega hafi dregið úr framleiðni gossins síðan það hófst fyrir hálfum sólarhring. Innlent 19.12.2023 10:18
Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efnir til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni norðan Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 09:49
Alls ekkert túristagos Eldgosið norður af Grindavík er alls ekkert túristagos að sögn samskiptastjóra almannavarna. Eins og er stefnir hraunið ekki í átt að Grindavík en mögulega gæti það runnið yfir Grindavíkurveg. Innlent 19.12.2023 09:26
Mikil óánægja á skrifstofu Sameykis Óánægju hefur gætt meðal starfsmanna stéttarfélagsins Sameykis, meðal annars með framgöngu formannsins Þórarins Eyfjörð. Þetta herma heimildir fréttastofu en viðmælendum ber ekki saman um andrúmsloftið á skrifstofunni nú né í hvaða farveg mál hafa verið sett. Innlent 19.12.2023 09:24
Eldgosið raskar ekki flugumferð Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY. Innlent 19.12.2023 08:41
Enginn reykskynjari í húsinu Enginn reykskynjari var í húsnæðinu í Skipholti sem kviknaði í í gær. Enginn var heima þegar eldurinn kviknaði og sá gangandi vegfarandi um að tilkynna um eldsvoðann. Innlent 19.12.2023 08:34
Háalvarlegt en léttir á sama tíma Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir það ákveðinn létti hvar gossprungan á Reykjanesskaga liggur, þrátt fyrir að það sé alvarlegt hve nálægt bænum hún er. Til skoðunar er að reisa leiðigarða á svæðinu svo hraun renni ekki til byggðar. Innlent 19.12.2023 08:27
Gosvaktin: Gosið mallar áfram inn í nóttina Eldgos hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni, klukkan 22:17 í gærkvöldi. Fréttastofa Vísis heldur áfram að vakta ástandið. Innlent 19.12.2023 05:30
Vefmyndavélar Vísis í beinni Eldgos er hafið á Reykjanesskaga. Vísindamenn segja gosið mun öflugara en fyrri gos á svæðinu. Innlent 19.12.2023 05:09
Skásta staðsetningin sem hægt var að fá Búast má við því að hratt muni draga úr hraunflæði eldgossins á Reykjanesskaga. Jarðeðlisfræðingur segir gosið á besta stað miðað við aðstæður. Hraun renni ekki í átt að Grindavík, og það þurfi að renna langt til að ná varnargörðum við Svartsengi. Innlent 19.12.2023 02:48
Vindátt heppileg en gasi gæti slegið niður í Þorlákshöfn Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir vindátt nokkuð stöðuga með tilliti til gasmengunar. Þorlákshöfn er næsta þéttbýli. Á morgun er spáð mjög hagstæðri norðvestanátt. Innlent 19.12.2023 02:31
Ákveðinn léttir að það sé farið að gjósa Hjálmar Hallgrímsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum segir ágætt að byrjað sé að gjósa, það sé ákveðinn léttir. Svæðið sé vel vaktað og „allir á tánum.“ Innlent 19.12.2023 02:03
Túristar grétu og hoppuðu af einskærri gleði Páll Viggósson leiðsögumaður var með hóp af túristum í norðurljósaferð og sá þegar gosið hófst. Níu manna fjölskylda frá Bretlandi fékk sannarlega sitthvað fyrir peninginn. Innlent 19.12.2023 01:47
Gossprungan gæti stækkað áfram í átt til Grindavíkur Sérfræðingar Veðurstofunnar sjá á skjálftamælum sínum og GPS mælingum a sprunga hins nýja goss á Reykjanesskaga gæti stækkað til suðurs og í átt til Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 01:32
Tvær flugvélar þurftu að hringsóla í skamman tíma Starfsemi á Keflavíkurflugvelli er eðlileg og er flogið bæði til og frá vellinum. Tvær flugvélar Icelandair sem voru á leið til Keflavíkurflugvallar þurftu að hringsóla í skamman tíma á meðan unnin var öskuspá vegna gossins sem hófst um fjóra kílómetra norðaustur af Grindavík klukkan 22:17. Innlent 19.12.2023 01:19
Hraunið renni tífalt hraðar en krafturinn gæti varað skammt Magnús Tumi Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur, segir eldgosið sem hófst í kvöld miklu stærra enn fyrri gos. Um sé að ræða fjögurra kílómetra gossprungu. Innlent 19.12.2023 01:10
Hefðu komist nær ef ekki væri fyrir „pópó“ Fjórir strákar að nafni Jói, Halli, Stefán og Stefán, sem fréttastofa ræddi við á Suðurstrandarvegi við Grindavík í kvöld segjast alltaf halda af stað að eldgosi þegar það fer að gjósa á Reykjanesi. Innlent 19.12.2023 00:51
Enn ekki vitað um áhrif gossins á HS Veitur Forstjóri HS Veitna segir enn ekki vitað hvort flæði eldgossins komi til með að hafa áhrif á innviði þeirra. Innlent 19.12.2023 00:44
Eldgosið vekur heimsathygli Margir stærstu fjölmiðla heims eru að fjalla um eldgosið sem hófst á Reykjanesskaga í kvöld. Innlent 19.12.2023 00:44
„Stundum verður maður bara að kyngja svona löguðu“ „Ég segi nú ekkert gott. Ég sit hér og horfi á gos,“ segir Ólafur Benedikt Arnberg Þórðarson fyrrverandi skipstjóri og nú veitingamaður. Sem fylgist nú með gosinu - úr hæfilegri fjarlægð. Innlent 19.12.2023 00:01
Biðlar til fólks að fara úr Grindavík Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að eldgosið sem hófst í kvöld sé sem betur fer renna í norður og norðvestur sem ógni síður byggð í Grindavík. Ekki er útilokað að hraunrennslið breytist og því erfitt að segja til um framhaldið. Innlent 19.12.2023 00:00
Voru við vinnu í varnargarðinum þegar bjarminn blasti við Bjarki Hólmgeir Halldórsson og Allan Steindórsson voru að vinna við varnargarðana í Svartsengi þegar eldgosið hófst. Innlent 18.12.2023 23:55
Vinna við að loka gati á varnargarði Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað svæðinu að nýju við Grindavík. Einungis eru eftir starfsmenn verktaka sem vinna við að loka gati á varnargarði við Grindavíkurveg og við Bláa lónið. Innlent 18.12.2023 23:53
Bláa lónið mannlaust þegar gosið hófst Engir gestir eða starfsmenn voru í Bláa lóninu þegar eldgos hófst, norðan Sundhnúks á Sundhnúkagígaröðinni, á ellefta tímanum í kvöld. Innlent 18.12.2023 23:52
Eldgosið myndað úr lofti Hér fyrir neðan má sjá tvö myndbönd sem eru tekin af eldgosinu, sem hófst á Reykjanesskaga í kvöld, úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 18.12.2023 23:43
„Svo kallaði einhver í talstöðina: „Hvaða bjarmi er þetta þarna?“ Bjarki Hólmgeir Halldórsson var að vinna við varnargarða í Svartsengi þegar gosið kom upp í kvöld. Hann segi Innlent 18.12.2023 23:28
Bein útsending: Fréttamenn á vettvangi með helstu tíðindi af eldgosinu Eldgos hófst norðan við Grindavík á ellefta tímanum í kvöld. Vísir fylgist með gangi mála í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 18.12.2023 23:22
Flugumferðarstjórar fresta verkfallsaðgerðum Félag flugumferðarstjóra hefur ákveðið að hætta við verkfallsaðgerðir næstkomandi miðvikudag í ljósi tíðinda af eldgosinu. Innlent 18.12.2023 23:22
Vefmyndavélar: Eldgosið frá mörgum sjónarhornum Eldgos hófst á Reykjanesskaga í kvöld. Gosið er staðsett nærri Hagafelli og sést vel úr byggð. Innlent 18.12.2023 23:19