Erlent
326 327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Hafa borið kennsl á „óþekkta sjómanninn“ Yfirvöldum í Ástralíu hefur tekist að bera kennsl á „óþekkta sjómanninn“; mann sem fórst með HMAS Sydney í seinni heimstyrjöldinni. Líkamsleifar Thomas Welsby Clark voru þær einu sem voru heimtar eftir að skipið sökk en allir um borð, 645 menn, fórust. Erlent 19.11.2021 09:03
Hættir við boðaðar breytingar á landbúnaðarkerfinu eftir mótmæli Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, hefur tilkynnt að hann hafi dregið þrjú lagafrumvörp til baka – frumvörp sem ætlað var að gera róttækar breytingar á landbúnaðarkerfi landsins. Hörð mótmæli hafa staðið í landinu vegna boðaðra breytinga í um ár. Erlent 19.11.2021 08:17
Lögreglan sögð leita Jimmy Hoffa í landfyllingu í New Jersey Bandaríska alríkislögreglan framkvæmdi rannsókn á gamalli landfyllingu í Jersey City í október síðastliðnum, eftir að maður sagðist á dánarbeðinu hafa grafið líkamsleifar verkalýðsforingjans Jimmy Hoffa þar niður í stáltunnu. Erlent 19.11.2021 08:15
Öllum Austurríkismönnum gert að halda sig heima í tíu daga og krafa gerð um bólusetningu Stjórnvöld í Austurríki hafa ákveðið að loka samfélaginu í tíu daga vegna mikillar útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu. Öllum landsmönnum, bæði bólusettum og óbólusettum, hefur þannig verið gert að halda sig heima í tíu daga, frá og með næsta mánudegi. Þá verði gerð krafa um bólusetningu frá 1. febrúar næstkomandi. Erlent 19.11.2021 07:41
Segja fyrsta tilfellið hafa verið starfsmann markaðarins í Wuhan Fyrsta þekkta tilvik SARS-CoV-2 sýkingar í mönnum greindist hjá konu sem seldi vörur á markaði í Wuhan í Kína en ekki hjá bókara sem hafði engin tengsl við markaðinn, eins og áður var talið. Erlent 19.11.2021 07:12
Forseti norska þingsins til rannsóknar hjá lögreglu og segir af sér Lögreglan í Osló hefur til rannsóknar sex þingmenn í Noregi að beiðni ríkissaksóknara. Eva Kristin Hansen, forseti þingsins, hefur staðfest að hún sé þeirra á meðal og hefur sagt af sér. Erlent 18.11.2021 23:31
Átján þúsund strandaðir vegna flóðanna Um það bil átján þúsund manns eru strandaðir vegna gífurlegra flóða í Bresku-Kólumbíu í Kanada. Þar af einhverjir á fjöllum en vegir, brýr og hús eyðilögðust í flóðum og aurskriðum í fylkinu eftir að óveður fór þar yfir um síðustu helgi. Erlent 18.11.2021 23:13
Sagði Arbery ekki hafa ógnað sér áður en hann miðaði á hann Travis McMichael, sem skaut Ahmaud Arbery til bana, sagði við vitnaleiðslur í dag að Arbery hefði ekki ógnað sér á nokkurn hátt, áður en hann miðaði haglabyssu á hann. McMichael skaut Arbery í febrúar í fyrra eftir að hann skokkaði í gegnum hverfi sem McMichael bjó í. Erlent 18.11.2021 21:00
Lífstíðarfangelsi fyrir hnífaárásir í Birmingham Dómstóll í Birmingham í Bretlandi hefur dæmt 28 ára karlmann í lífstíðarfangelsi fyrir hnífárás á fjórum stöðum í borginni í september á síðasta ári. 23 ára karlmaður lést og sjö til viðbótar særðust í árásinni. Erlent 18.11.2021 14:33
Grímunotkun meira en helmingar líkurnar á smiti Grímunotkun er áhrifamesta lýðheilsuráðstöfunin sem gripið hefur verið til í þeim tilgangi að takmarka dreifingu kórónuveirunnar. Þetta eru niðurstöður samantektar vísindamanna á meira en 30 rannsóknum víðsvegar í heiminum. Erlent 18.11.2021 10:46
Rúmlega 100 þúsund létust vegna ofneyslu lyfja í Bandaríkjunum á einu ári Bandarísk heilbrigðsyfirvöld áætla að rúmlega 100 þúsund manns hafi látist af völdum ofneyslu fíkniefna og lyfja á tólf mánaða tímabili í heimsfaraldrinum. Þetta er mesti slíki fjöldinn á árstímabili í sögu Bandaríkjanna. Erlent 18.11.2021 08:22
Neyðarástandi lýst yfir í Bresku-Kólumbíu og tveggja saknað Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Bresku-Kólumbíu í Kanada eftir óveðrið mikla sem gekk yfir um síðustu helgi. Vegir eru enn ófærir víða og lestarteinar skemmdir þannig að mikil röskun hefur orðið á samgöngum á svæðinu. Erlent 18.11.2021 07:55
Rapparinn Young Dolph skotinn til bana Bandaríski rapparinn Young Dolph er látinn, 36 ára að aldri. Hann var skotinn til bana við verslun í heimaborg sinni Memphis í Tennessee í gær. Erlent 18.11.2021 07:37
Segir ekkert í handritinu hafa kallað eftir því að hleypt væri af byssunni Skrifta sem starfaði við tökur á kvikmyndinni Rust hefur höfðað mál á hendur leikaranum Alec Baldwin og öðrum aðstandendum myndarinnar en hún segir að atriðið sem verið var að mynda þegar byssuskot varð upptökustjóranum Halyna Hutchins að bana hafi ekki kallað á að Baldwin handléki byssuna eða hleypti af. Erlent 18.11.2021 07:11
Um 300 létust af völdum Covid í Þýskalandi í gær Þjóðverjar takast nú á við erfiða fjórðu bylgju Covid, að sögn Angelu Merkel kanslara, sem hittir alla ríkisstjóra landsins á krísufundi í dag. Tæplega 53 þúsund Þjóðverjar greindust smitaðir í gær og hefur sú tala aldrei verið hærri frá upphafi faraldursins. Erlent 18.11.2021 06:54
Myrtu ekki Malcolm X: Menn sem sátu í fangelsi í áratugi hreinsaðir af sök Tveir menn sem dæmdir voru árið 1966 fyrir að myrða Malcolm X verða hreinsaðir af sök á morgun. Muhammad A. Aziz, sem nú er 83 ára gamall, var sleppt úr fangelsi árið 1985 en Khalil Islam var sleppt tveimur árum seina en dó árið 2009. Erlent 17.11.2021 22:09
Vinna að þróun nýs tungljeppa fyrir Artemis-áætlunina Forsvarsmenn bandaríska fyrirtækisins Northrop Grumman hafa opinberað að fyrirtækið leiðir hóp fyrirtækja sem vinna að því að þróa tungljeppa fyrir Artemis-áætlunina. Farartæki sem geimfarar eiga að nota til að ferðast um yfirborð tunglsins á nýjan leik. Erlent 17.11.2021 22:01
Evrópusambandið sendir flóttamönnum við landamæri Hvíta-Rússlands nauðsynjavörur Evrópusambandið ætlar að senda matvörur, fatnað og aðrar nauðsynjavörur til farenda, sem eru fastir á landamærum Hvíta-Rússlands. Sambandið boðaði þessar aðgerðir eftir að hafa verið harðlega gagnrýnt fyrir að gera of lítið fyrir fólkið sem hefur verið fast þarna í nístingskulda. Erlent 17.11.2021 20:16
„Seiðmaðurinn“ dæmdur í rúmlega þriggja ára fangelsi Jacob Chansley, sem gengur undir nafninu Qanon seiðmaðurinn, hefur dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðkomu hans að árásinni á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafði farið fram á þunga refsingu til að setja fordæmi í aðdraganda fleiri dómsmála gegn fólki sem tók þátt í árásinni. Erlent 17.11.2021 17:59
Ætla að víta þingmann sem birti myndband af sér að drepa þingkonu Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings ætla að ávíta þingmanni Repúblikanaflokksins sem birti myndband sem sýndi hann drepa þingkonu og leggja til Joes Biden forseta með sverðum á samfélagsmiðlum. Repúblikanar vildu ekki refsa þingmanninum. Erlent 17.11.2021 15:56
Leggja gaddavír á landamærin til að æfa viðbrögð við flóttamannastraumi Eistnesk stjórnvöld kölluðu hátt á annað þúsund varaliðshermenn út á fyrirvaralausa æfingu þar sem þeir eru látnir leggja gaddavír yfir tugi kílómetra af landamærum landsins að Rússlandi. Æfingin tengist flóttamannavanda sem Hvítrússar eru sakaðir um að valda. Erlent 17.11.2021 14:36
Afneita eigin þingkonu vegna gagnrýni hennar á Trump Repúblikanar í Wyoming í Bandaríkjunum samþykktu að afneita Liz Cheney, fulltrúadeildarþingmanni flokksins, og hvöttu landsnefnd flokksins til þess að reka hana. Staðföst gagnrýni Cheney á hlut Donalds Trump í árásinni á bandaríska þinghúsið fer fyrir brjóstið á flokkssystkinum hennar. Erlent 17.11.2021 13:28
Hjónabönd samkynhneigðra loks heimil í Sviss næsta sumar Stjórnvöld í Sviss tilkynntu í morgun að hjónabönd samkynhneigðra verði heimil í landinu frá 1. júlí á næsta ári. Erlent 17.11.2021 12:58
Stefnir sjónvarpsstöð sem bendlaði hann við mannránið Ástralskur karlmaður hefur stefnt einni stærstu sjónvarpsfréttastöð landsins eftir að hún sagði hann ranglega vera manninn sem rændi Cleo Smith, fjögurra ára gamalli stúlku sem hvarf úr tjaldi foreldra sinna í síðasta mánuði en fannst síðar heil á húfi. Erlent 17.11.2021 12:32
Beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum og opnar á formannsskipti Danski þjóðarflokkurinn beið afhroð í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru í gær og hefur formaður flokksins, Kristian Thulesen Dahl, lagt til að boðað verði til aukalandsþings og nýr formaður kjörinn. Erlent 17.11.2021 11:36
Forsætisráðherra Ástralíu vill ríghalda í kolin Áströlsk kolaorkuver verða starfandi í áratugi til viðbótar, að sögn Scotts Morrison, forsætisráðherra kolaframleiðsluríkisins Ástralíu. Hann hafnar því að samkomulag sem náðist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow boði endalok kola sem orkugjafa. Erlent 17.11.2021 10:29
Ein látin eftir ógurleg flóð í Kanada og Bandaríkjunum Kona fórst í aurskriðu á hraðbraut utan við Vancouver í Kanada eftir metúrkomu á svæðinu. Að minnsta kosti tveggja er saknað til viðbótar þar. Stanslaus rigning síðustu daga hefur valdið miklum flóðum í norðvestanverðum Bandaríkjunum og suðvestanverðu Kanada sem urðu illa úti í fordæmalausri hitabylgju í sumar. Erlent 17.11.2021 08:45
Skólum lokað og byggingastarfsemi bönnuð vegna mengunar Yfirvöld í Delí, höfuðborg Indlands, hafa ákveðið að loka öllum skólum borgarinnar um óákveðinn tíma vegna gríðarlegrar mengunar sem hefur lagst yfir borgina. Erlent 17.11.2021 08:10
Beittu háþrýstidælum á farandfólk á landamærunum Pólskar öryggissveitir beittu háþrýstidælum á farandfólk sem henti steinum að þeim við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands í dag. Lík ungs Sýrlendings var grafið í Póllandi í gærkvöldi. Erlent 16.11.2021 15:06
Þrír látnir og tugir særðir eftir árásir í Úganda Þrír eru látnir og rúmlega þrjátíu særðust í árásum sjálfsvígssprengjumanna í úgöndsku höfuðborginni Kampala í morgun. Erlent 16.11.2021 14:00