Fundu lík barns í fjöru Samúel Karl Ólason skrifar 11. júlí 2023 15:01 Lögregluþjónar á staðnum þar sem líkið fannst í morgun. Bæjaryfirvöld Roda de Bera Líkamsleifar ungs barns fundust í fjöru við Miðjarðarhafið í morgun. Talið er að barnið hafi verið tveggja til þriggja ára en líkamsleifarnar eru taldar hafa verið í nokkurn tíma í sjónum.
Líkamsleifarnar fundust Roda de Bera, sem er suður af Barcelona á austurströnd Spánar. Fjölmiðlar á Spáni hafa eftir ráðamönnum í bænum að líklegt þyki að barnið hafi verið í hópi flótta- og farandfólks sem hafi farist á Miðjarðarhafinu við að reyna að komast til Evrópu. Er það meðal annars byggt á þeim fötum sem barnið var klætt í en líkamsleifarnar eru sagðar vera illa farnar eftir veruna í sjónum. Samkvæmt frétt El Pais er lögreglan búin að opna rannsókn og er vonast til þess að hægt verði að varpa ljósi á uppruna barnsins og hvernig það dó. Líkamsleifarnar verða krufnar og á að finna einhver svör þannig. Mikill fjöldi fólks reynir að fara frá Alsír til Spánar á ári hverju. Reuters segir mannréttindasamtök áætla að sú leið sú næst banvænasta á Miðjarðarhafinu undanfarin fimm ár. Til dæmis er áætlað að 464 hafi drukknað í 43 skipsvoðum á þessari leið í fyrra. Gífurlegur fjöldi fólks frá Afríku, Mið-Austurlöndum og Asíu hefur drukknað í Miðjarðarhafinu á undanförnum árum.
Spánn Flóttamenn Mest lesið Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Virðist útiloka samstarf með Samfylkingu Innlent Verði að virða það sem þjóðin vilji Innlent Halla veitti Kristrúnu umboð til stjórnarmyndunar Innlent Ungir menn grunaðir um langa brotahrinu Innlent Fréttin öll Innlent Jón Ingi dæmdur í sex ára fangelsi í Sólheimajökulsmálinu Innlent Telja sig hvorki geta hafnað né samþykkt ósk um endurtalningu Innlent Fordæmalaus náðun Bidens Erlent Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Innlent Fleiri fréttir Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Sjá meira