Fótbolti

VAR í sviðsljósinu í markalausu jafntefli á Goodison Park
Aston Villa getur komist upp að hlið Liverpool á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með sigri á Everton á Goodison Park.

Kristian hafði betur gegn Willum í markaleik
Íslendingaliðin Go Ahead Eagles og Ajax mættust í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Kristian Hlynsson og Willum Þór Willumsson voru báðir í byrjunarliði síns liðs.

Gæti stýrt Liverpool í leik gegn Ajax
Fréttir bárust af því í vikunni að fyrrum knattspyrnuþjálfarinn Sven Göran Eriksson glímdi við ólæknandi krabbamein. Hann gæti hins vegar fengið draum sinn uppfylltan ef ósk stuðningsmanna Liverpool verður að veruleika.

Elísabet ein af þremur sem koma til greina hjá Chelsea
Elísabet Gunnarsdóttir gæti orðið næsti knattspyrnustjóri enska stórliðsins Chelsea en sænska ríkissjónvarpið SVT greinir frá þessu.

Hareide: Þurfum að sjá hvað við getum gert betur taktískt
Åge Hareide landsliðsþjálfari Íslands var ánægður með sigur liðsins á Gvatemala í nótt. Hann sagði að með meiri nákvæmni hefði Ísland getað skorað fleiri mörk.

Eiginkona eiganda Liverpool þurfti að flýja Bláa lónið
Rýma þurfti Grindavík í nótt þegar ljóst var að eldgos væri að fara af stað. Eiginkona John W. Henry eiganda Liverpool var ein af þeim sem þurfti að yfirgefa Bláa lónið.

Sjáðu fyrsta landsliðsmark Ísaks Snæs
Ísland vann 1-0 sigur á Gvatemala í æfingaleik sem spilaður var á Flórída í gær. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði eina mark leiksins en þetta var hans fyrsta landsliðsmark.

Ísak Snær tryggði íslenskan sigur með sögulegu marki
Íslenska landsliðið í knattspyrnu bar sigurorð af Gvatemala en leikur þjóðanna fór fram í Flórída í Bandaríkjunum. Eina mark leiksins kom í síðari hálfleik.

Leik Reading og Port Vale aflýst vegna mótmæla
Leikur Reading og Port Vale í ensku C-deildinni var blásinn af í dag eftir um stundarfjórðungs leik þar sem um þúsund stuðningsmenn Reading stormuðu inn á völlinn til að mótmæla eignarhaldi Dai Yongge á klúbbnum.

Þrjár vítaspyrnur í markasúpu Inter og Monza
Það virðist fátt fá stöðvað velgengni Inter Milan í Seríu A á Ítalíu þessa dagana en liðið vann yfirburðasigur á Monza á útivelli í kvöld, 1-5, en þrjú af sex mörkum kvöldsins komu úr vítaspyrnum.

Kevin De Bruyne afgreiddi Newcastle á 21 mínútu
Manchester City hefur verið á góðri leið síðustu vikur og endurheimt Kevin De Bruyne úr meiðslum. De Bruyne byrjaði á bekknum í dag en var engu að síður hetja City þegar upp var staðið.

Elías Már skoraði í endurkomusigri NAC Breda
Elías Már Ómarsson skoraði jöfnunarmark NAC Breda í dag þegar liðið sótti þrjú mikilvæg stig til Emmen í hollensku B-deildinni.

Sara Björk og félagar tryggðu sér dýrmæt þrjú stig í toppbaráttunni
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar hennar í Juventus tryggðu sér þrjú mikilvæg stig í toppbaráttunni í Seríu-A í dag þegar liðið lagði AC Milan, 2-1.

Styrktarþjálfarinn Óskar Örn skoraði og lagði upp
Íslandsmeistarar Víkings fóru létt með 1. deildarlið ÍR í Reykjavíkurmótinu í dag en það má segja að styrktarþjálfari liðsins, Óskar Örn Hauksson, sem stal senunni í dag.

Albert lék í markalausu jafntefli
Albert Guðmundsson lék allan leikinn í liði Genoa sem gerði markalaust jafntefli gegn Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.

Solskjær hafnaði Svíum
Svíar eru í leit að landsliðsþjálfara og hefur sú leit gengið illa. Olof Mellberg hafnaði knattspyrnusambandinu á dögunum sem einnig var með Ole Gunnar Solskjær á lista yfir mögulega þjálfara.

Þriðji deildarsigur Chelsea í röð
Chelsea vann sinn þriðja leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Fulham á Stamford Bridge.

Þrenna hjá Pedersen og Fylkir valtaði yfir Fjölni
Valur og Fylkir unnu stóra sigra í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í dag. Patrick Pedersen var á skotskónum hjá Val gegn Þrótti.

Vestri missir besta mann síðasta tímabils
Daninn Gustav Kjeldsen verður ekki með nýliðum Vestra í Bestu deildinni í sumar. Kjeldsen var valinn besti leikmaður þegar Vestri fór upp í efstu deild í fyrsta sinn á síðasta tímabili.

Alexandra innsiglaði sigur Fiorentina
Alexandra Jóhannsdóttir var á skotskónum þegar lið Fiorentina vann sigur á Napoli í Serie A deildinni á Ítalíu í dag.

Endar Henderson á Ítalíu?
Jordan Henderson flutti sig um set til Sádi Arabíu í haust frá Liverpool þar sem hann var fyrirliði. Hann vill nú burt þaðan og gæti endað í ítölsku deildinni.

Birkir Már tekur síðasta dansinn á Hlíðarenda
Birkir Már Sævarsson mun leika með Val í Bestu deildinni næsta sumar. Birkir Már verður fertugur í nóvember en samningurinn er til eins árs.

Ten Hag: Hann hefur þetta allt
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, kom Antony til varnar á fréttamannafundi sínum í gær.

Luton jafnaði í uppbótartíma
Burnley og Luton skildu jöfn í ensku úrvalsdeildinni í kvöld eftir dramatík í uppbótartíma.

Sigur hjá Bayern og aftur skoraði Kane
Harry Kane hélt áfram markaskorun sinni fyrir Bayern Munchen er liðið sigraði Hoffenheim í þýska boltanum í kvöld.

Ingibjörg til liðs við Duisburg
Ingibjörg Sigurðardóttir, íslenska landsliðskonan, hefur gengið til liðs við þýska félagið Duisburg.

KR vann Fram í fyrsta leik Rúnars gegn gamla liðinu
KR hafði betur gegn Fram í Reykjavíkurmótinu en þetta var fyrsti leikur Rúnars Kristinssonar gegn sínu gamla liði.

Tuchel: Dier er fjölhæfur leikmaður
Thomas Tuchel, þjálfari Bayern Munchen, segist hafa ýtt á eftir því að félagið myndi ganga frá kaupum á Eric Dier frá Tottenham.

Poch: Ég hef áhyggjur af honum
Mauricio Pochettino, þjálfari Chelsea, segist hafa áhyggjur af meiðslum Christopher Nkunku.

Matić hættur að mæta á æfingar
Nemanja Matic hefur ekki látið sjá sig á æfingum hjá Stade Rennais undanfarna daga. Ósætti leikmannsins vegna brotinna loforða félagsins eru talin ástæðan, félagið sagði hegðun hans algjörlega óásættanlega og fundað verður um framtíð hans á næstu dögum. Lyon er talinn líklegasti áfangastaður ef hann færir sig um set.