Tuchel hefur ekkert rætt við Greenwood Siggeir Ævarsson skrifar 5. september 2025 19:29 Mason Greenwood hefur raðað inn mörkum með Marseille Marseille Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, sagði á blaðamannafundi að möguleg endurkoma Mason Greenwood í enska landsliðið væri ekki í kortunum að svo stöddu og hann hefði ekkert rætt við leikmanninn enda væri hann að gera sig líklegan til að spila fyrir Jamaíka.
Greenwood á einn leik með enska landsliðinu en það var einmitt gegn Íslandi árið 2020 en hann var svo rekinn heim til Englands með skömm eftir að hafa brotið Covid varúðarráðstafanir sem voru í gildi þá. Hann var á þessum tíma leikmaður Manchester United en 2022 var hann ákærður fyrir tilraun til nauðgunar og árás og lék ekki aftur með United eftir það. Fyrir tímabilið 2024-25 samdi Greenwood við Marseille í Frakklandi og hefur náð sér vel á strik innan vallar. Það er þó óhætt að fullyrða að Greenwood sé ekki hátt skrifaður á Englandi og hann freistaði þess því að fá að skipta um landslið en móðir hans á ættir að rekja til Jamaíka. Það virtist allt vera klappað og klárt fyrir þessi skipti og Greenwood var kominn með vegabréf í hendur. Nú virðist honum hafa snúist hugur og hundsað landsliðkallið frá Steve McLaren sem nú stýrir landsliði Jamaíka. McLaren er ekki sáttur en segist þó ætla að halda áfram að ýta á Greenwood að skipta yfir. Að sama skapi hefur Tuchel sagt að Greenwood sé ekki á ratarnum hjá honum og hann hafi einfaldlega gert ráð fyrir að hann væri orðinn leikmaður Jamaíka. Hann útiloki þó ekkert varðandi leikmanninn þegar fram líða stundir.
Fótbolti Mest lesið Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino „Fórum yfir hlutina af yfirvegun í hálfleik“ „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Fernandes ekki á förum Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Komust ekki inn á mótið en unnu svo titilinn Skipti tennisskónum út fyrir takkaskó og skoraði tvö í fyrsta leik Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjóðheit Ída Marín kveður FH Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Jón Daði hættur í fótbolta: „Á endanum stend ég eftir með ekkert nema þakklæti“ Bjarni varð eftir í Svíþjóð og er á förum frá Val Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu Sveindís missti af prinsessuleiknum Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Messi skaut tvisvar í stöng á tveimur sekúndum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ Sjá meira