Bólusetningar „
26 27 28 29 30 31 32 33 34 … 51 ›
„Í guðanabænum þiggið björgina og látið bólusetja ykkur“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vera næstum hættulaust og hvetur hann fólk „í guðanabænum“ til að þiggja bóluefni AstraZeneca. Sjálfur hafi hann fengið bóluefnið fyrir nokkrum vikum og hafi ekki hlotið nokkurn skaða af. Innlent 26.4.2021 19:19
ESB í mál við AstraZeneca Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagðist í dag hafa höfðað mál gegn lyfjaframleiðandanum AstraZeneca vegna vanefnda á samningum. Erlent 26.4.2021 15:01
104 þúsund Íslendinga fengið einn skammt næstu helgi Í þessari viku munu um 23 þúsund einstaklingar fá fyrri bóluefnaskammt við Covid-19 en í heildina verða 25 þúsund skammtar gefnir í vikunni. Notuð verða bóluefnin frá Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Innlent 26.4.2021 08:55
Þórólfur bólusettur með AstraZeneca í vikunni Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að bólusetningar vegna kórónuveirunnar hafi gengið mjög vel hér á landi alveg frá upphafi. Það eina sem hafi staðið á er að fá nægilegt bóluefni til landsins. „Strax og við fáum meira þá er hægt að gefa í. Það er bara þannig og það er mjög ánægjulegt.“ Innlent 26.4.2021 08:23
Sprautur og tölvuleikir í Laugardalshöll Metvika verður í bólusetningum þessa vikuna þegar allt að níu þúsund manns fá sprautu á einum degi. Á sama tíma er von á ríflega sjö hundruð tölvuleikjaspilurum í Laugardalshöllina. Innlent 25.4.2021 13:30
Ráðgjafar CDC mæla með áframhaldandi notkun bóluefnisins frá Johnson & Johnson Ráðgjafar bandarísku sóttvarnastofnunarinnar í bóluefnamálum mæla með því að notkun Covid-19 bóluefnisins frá Johnson & Johnson verði haldið áfram. Tíu greiddu atkvæði með tillögunni, fjórir á móti og einn sat hjá. Erlent 23.4.2021 21:11
Bóluefnið frá Noregi komið til landsins Síðdegis í dag bárust til landsins 16.000 skammtar af bóluefni AstraZeneca sem Norðmenn hafa veitt Íslendingum að láni. Byrjað verður að bólusetja með efninu strax í næstu viku í samræmi við fyrirmæli sóttvarnalæknis um notkun þess. Innlent 23.4.2021 17:11
Malaríubóluefnið sem hraðaði þróun efnis AstraZeneca markar tímamót í baráttunni Talið er að nýtt bóluefni gegn malaríu geti markað tímamót í baráttunni við sjúkdóminn eftir að bóluefnið sýndi 77% virkni í fyrstu athugunum. Yfir 400.000 manns deyja af völdum malaríu á ári hverju, stærstur hluti þeirra börn í Afríku sunnan Sahara. Erlent 23.4.2021 13:09
Sýrland: Bóluefnin ljós í myrkri eftir áratuga stríð Sýrland fékk i gær afhenta fyrstu skammtana af bóluefnum gegn kórónaveirunni. Heimsmarkmiðin 23.4.2021 10:09
Krabbameinstilfellum hefur fækkað um 86 prósent vegna bóluefnis Niðurstöður danskrar rannsóknar benda til þess að bóluefni gegn HPV veirunni hafi leitt til fækkunar leghálskrabbameinstilfella um 86 prósent. Þá minnkar bóluefnið líkurnar á frumubreytingum töluvert. Rannsóknaraðilar segja að niðurstöðurnar lofi góðu og séu fyrsta skrefið í að koma í veg fyrir leghálskrabbamein alfarið. Erlent 22.4.2021 23:31
Telja 1. júní ekki raunhæfa dagsetningu Dagsetningin 1. júní varð samkvæmt vísindamönnum ranglega að viðmiði um betri tíma í huga margra eftir að ríkisstjórnin sýndi glæru á blaðamannafundi í vikunni, þar sem á stóð að öllum takmörkunum yrði aflétt innanlands þegar stærstur hluti fullorðinna hefði verið „varinn“ með fyrri skammt af bóluefni. Innlent 22.4.2021 19:21
Jansen líklega fyrir þá sem erfitt er að ná aftur í bólusetningu Notkun bóluefnis frá framleiðandanum Jansen hefur verið samþykkt hér á landi og má búast við að í næstu viku verði þeir fyrstu bólusettir með efninu frá bandaríska fyrirtækinu Johnson & Johnson. Innlent 22.4.2021 14:30
Norðmenn staðfesta bóluefnalánið til Íslands og Svíþjóðar Heilbrigðisráðherra Noregs hefur staðfest að Norðmenn muni lána Íslendingum og Svíum bóluefni AstraZeneca. Svíar fá 200 þúsund skammta en Íslendingar 16 þúsund skammta. Innlent 22.4.2021 09:59
Bóluefnalán Norðmanna flýtir áætlunum um tvær til þrjár vikur Ef Íslendingar fá 16.000 skammta af bóluefni AstraZeneca að láni frá Norðmönnum mun það flýta bólusetningaáætlun hér á landi um að minnsta kosti tvær til þrjár vikur. Innlent 21.4.2021 18:39
Íslendingar borga ekki krónu fyrir bóluefnið Norðmenn ætla að lána Íslendingum 16.000 skammta af bóluefni AstraZeneca og gert er ráð fyrir að skammtarnir berist til landsins um helgina. Innlent 21.4.2021 14:19
Engar takmarkanir á notkun Janssen bóluefnisins Engar takmarkanir verða á notkun bóluefnis Janssen gegn kórónuveirunni þegar bólusetning með efninu hefst hér á landi í næstu viku. Þetta kom fram í máli Kamillu Sigríðar Jósefsdóttur smitsjúkdómalæknis á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis. Innlent 21.4.2021 11:37
Breytingar á sóttvarnalögum verða væntanlega að lögum í dag Reiknað er með að frumvarp ríkisstjórnarinnar um hertari sóttvarnaaðgerðir á landamærunum verði afgreitt sem lög frá Alþingi í dag. Samkvæmt því verður yfrvöldum veitt tímabundin heimild til að skylda tiltekna hópa ferðamanna í sóttkví í sóttvarnahúsi eða meina fólki alveg að koma til landsins. Innlent 21.4.2021 11:16
Norðmenn lána Íslendingum bóluefni Samkvæmt nýju samkomulagi Íslands og Noregs munu Íslendingar fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca bóluefni frá Noregi. Innlent 21.4.2021 10:18
Bólusetningardagatalið uppfært Bólusetningardagatalið á covid.is hefur verið uppfært en samkvæmt því hefst bólusetning einstaklinga utan áhættuhópa fyrstu eða aðra vikuna í júní. Innlent 21.4.2021 07:54
Blóðtappar skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun Janssen bóluefnisins Lyfjastofnun Evrópu (EMA) hefur gefið út að blóðtappar skuli vera skráðir sem afar sjaldgæf aukaverkun bóluefnis Janssen gegn kórónuveirunni. Telur EMA að hugsanleg tengsl séu milli bólusetningar með efninu og mjög sjaldgæfra tilfella blóðtappa, líkt og í tilfelli bóluefnis AstraZeneca. Erlent 20.4.2021 14:39
Bólusetja í stórum stíl undir sinfóníutónum Stór bólusetningardagur verður í Laugardalshöll í dag þegar byrjað verður að bólusetja fólk á öllum aldri með undirliggjandi langvinna sjúkdóma. Dagurinn verður óvenjulegur að því leytinu til að Sinfoníuhljómsveit Íslands mun spila undir. Innlent 20.4.2021 12:43
Leikskólakennarar muni sennilega ganga fyrir í bólusetningu Skýr vilji er meðal skólastjórnenda til að forgangsraða starfsmönnum leikskóla þegar kemur að bólusetningu skólastarfsmanna. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir en nokkur umræða hefur spunnist um forgangsröðun bólusetninga við Covid-19 eftir að greint var frá hópsýkingu á leikskólanum Jörfa um helgina. Innlent 19.4.2021 11:37
Helmingur fengið bóluefni en dregur úr aðsókn Bandarísk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því um helgina að helmingur Bandaríkjamanna eldri en 18 ára hefði fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn Covid-19. Erlent 19.4.2021 07:33
Helmingur fullorðinna í Bandaríkjunum fengið fyrri skammt Yfirvöld í Bandaríkjunum tilkynntu í dag að helmingur allra yfir átján ára aldri í landinu hefðu nú fengið fyrri skammt af bóluefni gegn kórónuveirunni, eða tæplega 130 milljónir einstaklinga. 84 milljónir fullorðinna hafa verið bólusettar að fullu. Erlent 18.4.2021 18:39
„Það eru að verða algjör vatnaskil í baráttunni við veiruna“ „Við erum við krossgötur núna. Það eru að verða algjör vatnaskil í baráttunni við veiruna þegar að okkur er að takast núna á næstu vikum að bólusetja alla viðkvæmu hópana, allar eldri kynslóðirnar og koma framlínufólkinu öllu í bólusetningu. Maí og júní eru eins konar úrslitamánuðir hjá okkur til þess að stórauka bólusetningar með auknum fjölda í hverri viku og þetta breytir auðvitað allri vígstöðu í málum. Að því leytinu til er allt að breytast,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. Innlent 18.4.2021 14:24
Þrjár milljónir dánar vegna Covid-19 Rúmlega þrjár milljónir manna hafa nú dáið á heimsvísu vegna Covid-19. Heilt yfir hafa rúmlega 140 milljónir smitast, svo vitað sé. Mögulega er raunverulegur fjöldi látinna þá hærri og jafnvel töluvert hærri. Erlent 17.4.2021 14:31
Ráðleggja óléttum að fá bóluefni Pfizer eða Moderna Breskum barnshafandi konum er ráðlagt að fá bóluefni við kórónuveirunni frá annað hvort Pfizer eða Moderna þar sem fleiri rannsóknir liggi fyrir sem benda til þess að þau séu örugg. Þetta kemur fram í tilmælum ráðgjafanefndar um bólusetningar þar í landi. Erlent 16.4.2021 23:33
„Stjarnfræðilega meiri ávinningur í að nota AstraZeneca en hætta því“ Yfirlæknir í blóðmeinafræði mælir með notkun AstraZeneca bóluefnisins fyrir alla nema fólk í áhættuhópum. Ávinningurinn sé stjarnfræðilega meiri en að hætta að nota efnið líkt og Danir. Innlent 16.4.2021 20:31
Bóluefnið sem er aðeins gefið fólki utan áhættuhópa Fimm af hverjum milljón Bretum sem bólusettir hafa verið með bóluefni AstraZeneca eiga á hættu að fá alvarlega blóðtappa. Hlutfallið er einn af hverjum fjörutíu þúsund í Danmörku og Noregi. Sóttvarnalæknir segir aðeins einstaklingum utan áhættuhópa boðið bóluefnið sem veiti góða vörn gegn Covid-19. Innlent 16.4.2021 14:02
244 þúsund Pfizer-skammtar til landsins í maí, júní og júlí Von er á samtals 244 þúsund bóluefnaskömmtum Pfizer til Íslands í maí, júní og júlí. Í dag fékkst staðfest að tvöfalt fleiri bóluefnaskammtar verða afhentir í júlí en áður var vænst. Innlent 16.4.2021 13:44
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent