
Lekamálið

Lekamálið ljótur pólitiskur leikur að mati Hönnu Birnu
Hart var sótt að innanríkisráðherra á þinginu nú rétt í þessu vegna lekamálsins svokallaða. Hanna Birna Kristjánsdóttir ætlar að tjá sig um það síðar en gaf í skyn að það snérist um aðför að sér.

Krefjast þess að Hanna Birna segi af sér
Ungir jafnaðarmenn samþykktu í dag ályktun af miðstjórn um að Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, eigi að segja af sér ráðherraembætti.

Hafa breytt vinnureglum til að tryggja öryggi gagna
Innanríkisráðuneytið hefur sent frá yfirlýsingu varðandi lekamálið en grunur er um hvort ráðuneytið hafi lekið persónuupplýsingum um hælisleitanda til fjölmiðla.

Minnisblaðið vistað á opnu drifi innanríkisráðuneytisins
Skrifstofustjóri sendi það með tölvupósti til ráðuneytisstjóra, ráðherra og tveggja aðstoðarmanna í nóvember 2013.

Einkamál útlendinga birt án skýrra heimilda
Innanríkisráðuneytið hefur hafið birtingu á úrskurðum sínum um málefni útlendinga. Ekki er skýr lagaheimild fyrir birtingunni og viðkvæmar persónuupplýsingar birtast þrátt fyrir að nafnleyndar sé gætt. Persónuvernd vill að vandað sé til verka.

Máli Tony Omos enn frestað
Eftir stutta fyrirtöku var máli hans frestað til 7.apríl næstkomandi. Taldi lögmaður hans að nauðsynlegt væri að bíða eftir niðurstöðum úr rannsókn lögreglu til frekari gagnaöflunar.

Mörður afhenti lögreglu minnisblaðið
Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, var boðaður til skýrslutöku vegna lekamálsins í morgun.

Tony Omos stefnir íslenska ríkinu
Fyrirtöku í máli hælisleitandans Tony Omos um ógildingu á ákvörðun Útlendingastofnunar og úrskurði innanríkisráðuneytisins um synjun á hæli hér á landi var frestað í morgun.

„Ég er með algjörlega hreina samvisku í þessu máli“
Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, spurði innanríkisráðherra út í lekamálið svokallaða á Alþingi í morgun.

Þjóðarsátt um þöggun?
Fyrir skömmu fjölluðu fjölmiðlar um flugslysið sem varð á Akureyri, þann 5. ágúst í fyrra. Samkvæmt gögnum málsins virðast reglur hafa verið brotnar í aðdraganda slyssins. Í desember segir framkvæmdastjóri lækninga og handlækningasviðs á sjúkrahúsinu á Akureyri að samstarfið við Mýflug hafi verið farsælt

Mótmæli vegna lekamálsins
Boðað hefur verið til mótmæla fyrir framan innanríkisráðuneytið í hádeginu á morgun.

Innanríkisráðherra vill að lekamálið verði rannsakað eins ítarlega og mögulegt er
Meintur leki trúnaðarupplýsinga um hælisleitendur úr innanríkisráðuneytinu er nú kominn á borð lögreglu, en Hanna Birna Kristjánsdóttir fagnar að lögreglan sé komin í málið.

Lekamálið komið til lögreglunnar
Ríkissaksóknari hefur framsent kæru, vegna leka á persónuupplýsingum hælisleitanda til fjölmiðla, til embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á vef ríkissaksóknara.

Innanríkisráðuneytið vill enn nánari skoðun vegna lekamálsins
Innanríkisráðuneytið hefur óskað eftir því að öll tölvutæk gögn í lekamálinu verði rannsökuð með aðkomu Persónuverndar og sérstöku samþykki starfsmanna.

Ríkissaksóknari óskar eftir frekari gögnum um lekamálið
Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, hefur óskað eftir frekari gögnum og upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns hælisleitenda um leka á trúnaðargögnum úr ráðuneytinu.

Krefja Hönnu Birnu um svör varðandi lekamálið
Alþingismennirnir Mörður Árnason og Valgerður Bjarnadóttir hafa sent Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, formlega fyrirspurn varðandi lekamálið.

Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili.

Hvatt til óháðrar rannsóknar á lekamálinu
Innanríkisráðherra segir ítarlega rannsókn innan innanríkisráðuneytisins og stofnana þess sýna að minnisblað um hælisleitanda hafi ekki komið úr ráðuneytinu. Mörður Árnason er með minnisblaðið.

Hanna Birna telur „lekamálið“ snúast um annað en hælisleitendur
Hanna Birna Kristjánsdóttir var hvöss í ræðupúlti alþingis í umræðu um hælisleitendur og telur sig sitja ómaklega undir ásökunum.

„Ráðherra grátandi á Facebook eins og táningsstelpa“
Reynir Traustason mætti í Harmageddon og þykir afskaplega vænt um allskonar leka en gerir þá kröfu að gögn séu sönn og ekki stjórnvald að níðast á örsnauðu fólki.

Enginn grætur útlending
Útlendingar sem vilja setjast að hér á landi þurfa að sanna að þeir geti með engu móti verið nokkurs staðar annars staðar í heiminum.

Reynir segist hafa fengið „ógeðfelld símtöl“ frá Hönnu Birnu
Reynir Traustason ritstjóri segir innanríkisráherra hafa reynt að hafa áhrif á fréttaflutning með ósæmilegum hætti.

Segir ritstjóra DV hafa hótað sér
„Læt ekki hóta mér með þessum hætti,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra.

Ríkissaksóknari vill svör frá innanríkisráðuneytinu
Ríkissaksóknari hefur óskað eftir upplýsingum úr innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns Tony Omos sem sakar innanríkisráðuneytið um að hafa dreift gögnum um sig.

Píratar vilja Hönnu Birnu fyrir þingnefnd vegna leka
Jón Þór Ólafsson þingmaður Píratar óskar eftir því að að Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og ráðuneytisstjóri verði kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.

Lögreglan leitar þriggja manna
Óskað eftir aðstoð frá almenningi.

Mótmæli við innanríkisráðuneytið vegna hælisleitenda
Krefjast mannréttinda fyrir hælisleitendurna frá Nígeríu.

Konan sögð beitt þrýstingi að segja hælisleitandann vera föðurinn
Manninum sem synjað var um hæli á Íslandi og er á flótta undan lögreglu er grunaður um aðild að mansalsmáli. Einnig leikur grunur á að konan sem segist bera barn hans undir belti sé beitt þrýstingi að segja manninn vera föðurinn. Konan er einnig hælisleitandi og segist vera fórnarlamb mansals.