Orkumál

Þau sóttu um embætti forstjóra ÍSOR
Alls sóttu fimmtán manns um stöðu embættis forstjóra Íslenskra orkurannsókna – ÍSOR, sem auglýst var til umsóknar í mars.

Dýrmætasti lífeyrissjóður þjóðarinnar
Hvað varð okkur til bjargar í síðasta efnahagshruni? Það var ekki tilvist Kárahnjúkavirkjunar, ekki bygging virkjunar á Þeistareykjum eða kísilversins á Bakka og alls ekki kísilver United Silicon á Suðurnesjum.

Hörður þreyttur á ónafngreindum heimildarmönnum
Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar skýtur fast á heimildarmenn Morgunblaðsins vegna frétta af hugleiðingum Rio Tinto þess efnis að fyrirtækið íhugi að loka álverinu í Straumsvík og stefna Landsvirkjun.

Gerðu raforkukaupasamninga við eþíópíska ríkið sem hlaupa á hundruðum milljarða
Jarðvarmafyrirtækið Reykjavik Geothermal og samstarfsaðilar hafa gert raforkukaupasamninga við eþíópíska ríkið sem hlaupa á hundruðum milljarða króna.

Kristinn frá Alcoa til Orku náttúrunnar
Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn forstöðumaður virkjanareksturs hjá Orku náttúrunnar (ON).

Rafmagnslaust um stutta stund víða á höfuðborgarsvæðinu
Rafmagn er nú komið aftur á.

Jarðhitaráðstefnunni í Hörpu frestað fram á næsta ár
Ráðstefnan átti að fara fram í Hörpu dagana 27. apríl til 1. maí næstkomandi, þar sem búist var við þrjú þúsund gestum.

Hver hátíðin á eftir annarri blásin af vegna veirunnar
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta ársfundi Samorku, sem fram átti að fara í næstu viku.

Ársfundi Landsvirkjunar frestað vegna kórónuveiru
Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta ársfundi fyrirtækisins sem var á dagskrá á morgun, 5. mars. Ástæðan er varúðarráðstafanir vegna kórónuveirunnar.

Vilja aukið samstarf í jarðvarmamálum
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú eru nú í opinberri heimsókn í Póllandi.

Hlynnt því að leynd verði aflétt en getur ekki beitt sér fyrir því sérstaklega
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra segist fylgjandi því að trúnaði verði aflétt af raforkusamningi milli Landsvirkjunar og Rio Tinto. Hún kveðst þó ekki geta í krafti stöðu sinnar beitt sér fyrir því sérstaklega að svo verði.

„Einn þriðji af gúrkunni fer til RARIK“
Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir takmarkað hversu mikla niðurgreiðslu garðyrkjubændur fái á flutningskostnað rafmagns.

Segir óviðeigandi af Rio Tinto að setja fram afarkosti
Hörður segir Rio Tinto beita óboðlegri samningatækni en Landsvirkjun hefur formlega óskað eftir því að trúnaði um raforkusamninginn verði aflétt.

Segir Rio Tinto beita samningatækni og hótunum til að ná vilja sínum fram
Mikið hefur verið rætt um raforkusamning Landsvirkjunnar við Rio Tinto síðustu vikur eftir að stjórnendur sögðust vera að skoða mögulega lokun álversins í Straumsvík.

Hörður baunar á Samtök iðnaðarins vegna upprunaábyrgða
Forstjóri Landsvirkjunar sakar Samtök iðnaðarins um að fara með ítrekaðar rangfærslur í málflutningi þeirra um upprunaábyrgðir.

Rannveig Rist fer í leyfi
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, er á leiðinni í að minnsta kosti sex mánaða veikindaleyfi. Þetta tilkynnti Rannveig á fundi með starfsmönnum í álverinu á fjórða tímanum í dag.

Segir enga fá betri afslátt á raforku en garðyrkjubændur
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK, segir garðyrkjubændur búa við bestu kjör á rafmagni sem í boði eru og búa við mikla niðurgreiðslu frá hinu opinbera.

Metanbóndi segir metanframleiðslu góða nýtingu á lífrænum úrgangi
"Þetta er takmörkuð auðlind og leysir ekki orkuþörf samgönguflotans en það er gott að þetta geti verið valkostur í þessari grein. Rafmagnið er mjög góður kostur fyrir léttari og smærri bíla en það væri gott að geta afsett þessa vöru við nýtingu á úrganginum,“ segir Jón Tryggvi Guðmundsson, metanbóndi.

Íslensk orkufyrirtæki selja mengunaraflátsbréf
Opinberlega er uppruni raforku á Íslandi 90 prósent kominn frá jarðefnaeldsneyti og kjarnorku, þótt nær öll orka hér á landi sé framleidd með endurnýjanlegum orkulindum.

Garðyrkjubændur ná ekki að anna eftirspurn
Neytendur hafa orðið varir við skort á gúrkum í hillum íslenskra verslana að undanförnu. Framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna eftir raforkuverð of hátt.

Telur meiri líkur en minni að Rio Tinto verði hér um ókomin ár
Það er af og frá að til greina komi að Alþingi beiti sér með einhverjum hætti til að hafa áhrif á samninga um kaup álframleiðenda á raforku. Þetta segir Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.

Jakob Björnsson er látinn
Jakob Björnsson, fyrrverandi orkumálastjóri, er látinn, 93 ára að aldri.

Sogsvirkjun á níræðisaldri gæti átt margar aldir eftir
Ljósafossvirkjun, sem Kristján tíundi Danakonungur lagði hornstein að fyrir 84 árum, gengur ennþá á fullum afköstum á upprunalegum vélbúnaði.

Gerir ekki athugasemd við að kannað verði hvort góð hugmynd sé að selja raforku til útlanda
Iðnaðarráðherra sér ekkert því til fyrirstöðu að það verði kannað hvort það sé góð hugmynd fyrir Íslendinga að selja raforku í gegnum sæstreng til annarra landa til þess að auka fjölbreytni og samkeppni í íslenskum raforkuiðnaði.

Vaxandi atvinnuleysi og raforkusala til útlanda í Víglínunni
Víglínan er í beinni útsendingu klukkan 17:40.

Truflanir í óveðri minna á þörf á uppbyggingu flutnings- og dreifikerfisins
Forstjóri RARIK segir að það taki fimmtán ára að endurnýja raflínur miðað við núverandi áform. Verði þeim flýtt gæti það kallað á gjaldskrárhækkanir í dreifbýli.

Rio Tinto þarf að semja
Fréttir vikunnar hafa líklega ekki farið framhjá neinum. Rekstur hjá ISAL hefur verið í járnum á undanförnum áratug af ýmsum ástæðum. Nú er svo komið að eigendur fyrirtækisins telja sig knúna til að endurmeta starfsemina

Íbúar á hluta Suðurlands beðnir um að spara rafmagn
Bilun er í línu Landsnets og af þeim sökum eru íbúar austan Þjórsár beðnir um að fara sparlega með rafmagn. Á sjötta þúsund heimili og vinnustaðir misstu rafmagn vegna óveðursins í gær.

Rafmagni sló út hjá Norðuráli og Elkem á Grundartanga
Rafmagni sló út í báðum kerskálum álvers Norðuráls á Grundartanga í Hvalfirði í skamma stund nú í kvöld.

Allir íbúar á höfuðborgarsvæðinu komnir aftur með heitt vatn
Heitavatnslaust hefur verið í efri byggðum á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan sex í kvöld.