Ofbeldi á vinnustað

Fréttamynd

„Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum á­föllum“

Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, segir niðurstöður nýrrar könnunar um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum í starfi gefa tilefni til að kanna hvað sé hægt að gera til að tryggja góða eftirfylgni á vinnustöðum og að félagsráðgjafar fái þann stuðning sem þeir þurfa til að sinna vinnu sinni vel. 

Innlent
Fréttamynd

Setið um fjöl­skyldur fé­lags­ráð­gjafa og börn þeirra á­reitt

Dæmi eru um að börn félagsráðgjafa geti ekki gengið ein heim, verið ein heima og séu með svokallaðar krækjur á sínum síma sem sýni lögreglu að þegar þau hringi þurfi að bregðast strax við. Rúmur helmingur félagsráðgjafa greinir frá því í nýrri könnun að hafa verið beittir ofbeldi í starfi og um þriðjungur að þau óttist um fjölskyldur sínar og sérstaklega börn. Setið hafi verið um þau og þau áreitt.

Innlent
Fréttamynd

„Hel­vítis kerling“ sé eitt en hótun um í­kveikju annað

Siðanefnd Félagsráðgjafafélags Íslands lýsir yfir áhyggjum vegna aukins ofbeldis, hótana, niðrandi ummæla og annarrar óviðunandi framkomu sem félagsráðgjafar verða fyrir í starfi sínu. Siðanefndin hefur sent út könnun á alla félagsmenn. Formaður nefndarinnar segir nefndina vilja kanna bæði algengi ofbeldis gegn félagsráðgjöfum í starfi og viðbrögð vinnuveitenda við því.

Innlent