Umhverfismál
49 50 51 52 53 54 55 56 57 … 94 ›
Nýorkubílar rúmlega helmingur nýskráðra bíla Ríflega helmingur allra nýskráðra bíla á þessu ári eru nýorkubílar. Borgarstjóri segir Reykjavík ætla að vera leiðandi í aðgengi almennings að hleðslu rafbíla þannig að það eigi ekki að hindra þróun bílaflotans yfir í græna orku. Innlent 20.11.2020 19:31
Svifryksmengun nærri tvöfalt yfir mörkum í borginni í gær Styrkur svifryks var nærri tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í gær. Mengun hefur áfram verið viðvarandi í frosti og stillu í borginni í dag þrátt fyrir að borgin hafi látið rykbinda götur. Nagladekk eru sögð vega þungt í svifryksmengun af þessu tagi. Innlent 19.11.2020 16:33
Bullandi tækifæri í þjóðgarði ef hálendisleiðir verða greiðar Ein hálendasta bújörð landsins, Svartárkot í Bárðardal, er orðin lifandi kennslustofa háskóla um búsetu fólks á jaðri hins byggilega heims. Þar segjast bændur sjá bullandi tækifæri í því að gera hálendið að einum þjóðgarði, að því gefnu að það verði ekki lokað og læst. Innlent 16.11.2020 22:06
Tæming Árbæjarlónsins hafi mikil áhrif á geðheilsu íbúa Landslagsarkitekt segir marga íbúa Árbæjarhverfisins miður sín yfir því að Orkuveitan hafi ákveðið að tæma Árbæjarlónið til frambúðar. Ásýnd svæðisins sé horfin og skorar hann á Orkuveituna að snúa þessari ákvörðun við. Innlent 14.11.2020 22:01
Ungt fólk sækir í störf hjá fyrirtækjum sem hlúa að jafnrétti og sjálfbærni Bjarney Harðardóttir, einn eigenda 66°Norður segir reynslu fyrirtækisins vera að ungt fólk sækist í störf hjá fyrirtækjum sem vinna að því að vera fyrirmyndir í jafnréttis- og sjálfbærnimálum. Bjarney segist þeirrar skoðunar að fyrirtæki sem ekki huga að þessum málum muni tilheyra fortíðinni. Atvinnulíf 12.11.2020 09:31
Landvernd kveðst ekki bera ábyrgð á vegamálum á Vestfjörðum Umhverfisverndarsamtökin Landvernd hafna því að þau beri ábyrgð á því að vegir á Vestfjörðum haldi ekki bílum sem um þá aka, og segja ábyrgðina liggja hjá Vegagerðinni. Þetta kemur fram í Facebook-færslu samtakanna. Innlent 10.11.2020 19:46
Segir réttast að gefa Landvernd trukkinn Flutningabíl sem valt með fiskfarm á Hjallahálsi á Vestfjörðum á föstudag var náð upp í dag. Eigandi flutningafyrirtækisins er óhress með margra ára drátt á endurbótum Vestfjarðavegar og segist skrifa tafirnar á reikning Landverndar. Innlent 8.11.2020 15:28
Ráðgáta um ólykt af heitavatni í Vesturbæ gæti verið leyst Vísbendingar eru um að óvenjuleg lykt af heitu vatni í Vesturbæ Reykjavíkur, sem íbúar hafa m.a. kvartað undan á samfélagsmiðlum síðustu daga, komi úr borholum hitaveitu í Laugarnesi. Innlent 6.11.2020 18:11
Ráðherra veitir undanþágu vegna urðunar fjár við Skarðsmóa Er það mat umhverfis- og auðlindaráðuneytisins að hröð förgun dýranna varði almannaheill og mæti því skilyrðum um undanþágu. Innlent 6.11.2020 14:33
Hákarlar við Ísland lifa lengst allra hryggdýra Hákarlar við Ísland virðast verða elstir allra hryggdýra á jörðinni, 200-300 ára gamlir. Og það sem meira er: Rannsókn á heila eins þeirra sýndi engin merki öldrunar þótt sá væri orðinn 245 ára gamall. Innlent 3.11.2020 21:26
Kynna áform um stofnun þjóðgarðs á Vestfjörðum Unnið er að undirbúningi friðlýsingarinnar að því er fram kemur í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Innlent 2.11.2020 23:34
Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað. Viðskipti erlent 1.11.2020 22:19
„Mjög slæm för“ eftir utanvegaakstur í Bjarnarflagi Náttúruspjöllum í Bjarnarflagi í Mývatnssveit verður vísað til lögreglu eftir í ljós komu djúp för í sendnum mel á svæðinu eftir utanvegaakstur. Innlent 30.10.2020 10:24
Gæti tekið tíu til tólf vikur að farga sauðfénu sem þarf að skera niður Umhverfisstofnun hefur lagt það til við Matvælastofnun að hún óski eftir nánari framkvæmdaáætlun frá Kölku Sorpeyðingarstöð um brennslu þess sauðfés sem skera þarf niður í Skagafirði vegna riðusmits sem þar er komið upp Innlent 28.10.2020 21:43
Rjúpnaveiðin að hefjast og veiðimenn beðnir um að skjóta í sinni heimabyggð Rjúpnaveiðitímabilið hefst á sunnudaginn og verður það með sama sniði og í fyrra. Almannavarnir á Austurlandi biðla til skotveiðimanna að þeir skjóti í sinni heimabyggð og leggist ekki í ferðir á milli landshluta í ljósi kórónuveirufaraldursins. Innlent 28.10.2020 11:39
Fundu fimmhundruð metra hátt kóralrif undan strönd Ástralíu Vísindamenn í Ástralíu hafa uppgötvað áður óþekkt en gríðarstórt kóralrif undan ströndum landsins. Erlent 28.10.2020 07:56
Þetta eru verðlaunahafar Norðurlandaráðs í ár Monika Fagerholm, Jens Mattsson, Jenny Lucander, Dag Johan Haugerud, Yngve Sæther, Sampo Haapamäki og Jens-Kjeld Jensen tóku við verðlaunum Norðurlandaráðs 2020 á stafrænni verðlaunaafhendingu í kvöld. Menning 27.10.2020 22:11
Tína fleiri tonn af rusli við strandlengjuna Tuttugu sjálfboðaliðar frá sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS, Bláa hernum, starfsfólki nokkurra fyrirtækja og sendiráðsfulltrúum söfnuðu um 700 kílóum af plastúrgangi á strandlengjunni frá Herdísarvík til Viðarhelli. Innlent 27.10.2020 18:00
Geta séð fossinn Dynjanda í fyrsta sinn í klakaböndum Ísfirðingar og aðrir íbúar á norðanverðum Vestfjörðum, sem óku um Dýrafjarðargöng í gær, uppgötvuðu margir óvænt nýjan möguleika sem jarðgöngin skapa. Í fyrsta sinn verður mögulegt að aka um þjóðvegakerfið að fossinum Dynjanda um hávetur auk þess sem leiðin hefur styst verulega. Innlent 26.10.2020 11:21
Nýta hátækni úr Svartsengi í norskri metanólverksmiðju Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. Viðskipti innlent 25.10.2020 23:06
Efni úr endurunnum plastflöskum notað í úlpur 66° Norður “Við vitum að úlpur frá okkur ganga oft mann frá manni og eru notaðar í fjölda ára. Það er okkar innblástur við hönnunina.” Þetta segir Sæunn Þórðardóttir fatahönnuður hjá 66° Norður í viðtali við Vísi. Lífið 25.10.2020 13:00
Framtíð innan þolmarka plánetunnar okkar Bæjarráð samþykkti nýlega að Kópavogsbær tæki þátt í samnorrænu verkefni um kolefnishlutleysi sveitarfélaga með innleiðingu hringrásarhagkerfisins. Skoðun 23.10.2020 13:31
Krónan hættir alfarið með plastpoka Síðustu plastpokabirgðir Krónunnar eru að klárast þessa dagana og mun Krónan þá alfarið hætta sölu burðarplastpoka í verslunum sínum. Viðskipti innlent 22.10.2020 09:05
Velti upp þörfinni á sameinuðu efnahags- og loftslagsráðuneyti „Neyðin til að samtvinna aðgerðir í efnahagslífinu og loftslagsmálum orðin svo brýn að maður veltir því fyrir sér hvort umhverfismál og efnahagsmál eigi ekki að heyra undir sama ráðherra,“ sagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, í sérstökum umræðum um loftslagsmál sem fara nú fram á Alþingi. Innlent 20.10.2020 15:55
Af hverju græna utanríkisstefnu núna? Það er ljóst að grípa þarf til róttækra kerfisbreytinga til þess að vinna gegn enn verri afleiðingum loftslagsbreytinga af mannavöldum eins og hlýnun jarðar, öfgum í veðurfari, neikvæðum áhrifum á gróðurfar og lífríki, súrnun sjávar og hækkandi sjávarstöðu. Til þess þarf að rýna öll okkar kerfi út frá aðgerðum gegn hlýnun loftlags. Skoðun 20.10.2020 13:00
Talsvert magn olíu í hreinsistöð í Klettagörðum Olía hefur borist í töluverðu magni inn í hreinsistöð Veitna í Klettagörðum í Reykjavík. Erfitt er sagt að rekja uppruna olíumengunarinnar en hreinsistöðin tekur við fráveituvatni frá stórum hluta höfuðborgarsvæðisins. Innlent 19.10.2020 15:30
Við eigum nýja stjórnarskrá! Mörg fyrirtæki á Íslandi stunda svokallaða gæðastjórnun, gera sér gæðaskjöl í samvinnu við sína starfsmenn, fyrirtækjunum og starfsmönnum þess til heilla. Skoðun 19.10.2020 13:01
Er stjórnsýslan í algjörum molum? Nýlega bárust fregnir af því að ákveðið hefur verið að falla frá þeirri aðgerð að leggja á urðunarskatt. Skoðun 19.10.2020 09:00
Veiðistofn rjúpu einn sá minnsti í aldarfjórðung Fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verður með sama sniði og í fyrra þrátt fyrir að veiðistofn rjúpu sé nú einn sá minnsti frá því að mælingar hófust árið 1995. Yfirvöld hvetja því veiðimenn til þess að sýna hófsemi í veiðum. Innlent 16.10.2020 19:47
Ætla að veita geislavirku vatni út í Kyrrahafið Yfirvöld í Japan ætla að veita rúmlega milljón tonnum af geislavirku vatni úr Fukushima kjarnorkuverinu út í sjó. Nærri því áratugur er liðinn frá því að kjarnorkuverið skemmdist í kjölfar jarðskjálfta og flóðbylgju árið 2011. Erlent 16.10.2020 10:44