

Kona sem stofnaði undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni á ekki von á því að listinn muni knýja fram kosningar eða afsögn nýs forsætisráðherra, en hann sé haldbær heimild um hversu lítils trausts hann njóti meðal almennings. Yfir þrjátíu og þrjú þúsund Íslendingar hafa nú skrifað undir.
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að í heilbrigðiskerfinu fari allt of mikill tími í skriffinnsku og alltof lítill tími í að sinna sjúklingum.
Íslendingar standa framarlega á mörgum sviðum. Af þeim sviðum þar sem við skörum fram úr má færa rök fyrir því að lífeyriskerfið okkar sé það mikilvægasta. Kerfið er talið það annað besta í heimi, sjónarmun á eftir Hollandi, að mati ráðgjafafyrirtækisins Mercer.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir óskynsamlegan kost fyrir fjármálaráðherra að rifta samningi Landsbankans um kaup á TM, þó hann sé pólitískt sammála því að það sé óréttlætanlegt að ríkið sé að auka umsvif sín áfjármálamarkaði með kaupunum. Slíkt þyrfti að gera eftir að lagaleg atriði riftunar samningsins yrðu skoðuð gaumgæfilega.
Nýr forsætisráðherra svaraði því ekki beint hvort hann hygðist bregðast við harðri gagnrýni, meðal annars frá matvælaráðuneytinu, á vinnubrögð í tengslum við breytingar á búvörulögum en bætti við að spyrja mætti hvort eðlilegar framfarir hefðu átt sér stað hjá afurðarstöðvunum með gamla fyrirkomulaginu.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Breki Karlsson framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda rituðu harðorða grein þar sem þeir fordæma fortakslaust lög sem þeir vilja kalla ólög.
„Ég veit bara það að formaður Sjálfstæðisflokksins var í einum viðræðum, sem var við forystumenn þessara flokka, Framsóknar og Vinstri grænna. Hvað aðrir þingmenn eða aðrir hafa verið að ræða sín á milli um stöðuna bara þekki ég ekki til.“
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er svolítið eins og hljómsveitin sem enginn klappaði upp en mætir samt sem áður aftur á sviðið og tekur enn eitt lagið. En nú undir formerkjunum að þetta sé ríkisstjórn „hins breiða samhengis“ eins og það var orðað í vikunni.
Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun.
Listakonan Margrét Rut Eddudóttir var ein þeirra sem var handtekin á mótmælum við Bessastaði í gær. Hún vill meina að það sé ofbeldi að Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, fái að valsa um valdastöður í íslensku samfélagi.
Ég er ekki reið en staðráðin. Í gær var ég handtekin af lögreglunni á Bessastöðum af því í dag, eins og í gær, er ég ekki lengur meðvirk með gerendum þessarar þjóðar. Þegar ég sá fréttir af nýrri stöðu Bjarna Benediktssonar upplifði ég ofbeldi. Það er ofbeldi sem fær að viðgangast gagnvart þjóðinni að þessi maður fái að halda ótrautt áfram að valsa um valdastöður þessarar þjóðar óáreittur.
Stjórnarandstæðingar eru ekki hrifnir af endurnýjuðu stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segist sjá litlar breytingar með endursmíðaðri stjórn sem hann kallar „hræðslubandalag“. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og fyrrverandi Vinstri grænn, segir þá sem kusu VG hafa keypt köttinn í sekknum.
Alltof margar fjölskyldur í Grindavík eru enn á hrakhólum. Þetta var meðal þess sem kom fram á afmælishátíð bæjarins sem var haldin í skugga hamfara. Forseti Íslands hvetur fólk til að gefast ekki upp og sýna áfram kjark.
Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var fyrst upp í ræðupúlt eftir að Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra flutti ávarp sitt á þingi og hún gaf ekki mikið fyrir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar.
Margréti Kristínu Blöndal, Möggu Stínu, var vísað af pöllum Alþingis eftir að hún hrópaði að forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á meðan hann flutti yfirlýsingu sína á þingi í dag.
Þingkona Viðreisnar er viss um að ríkisstjórnin lifi ekki af kjörtímabilið. Þingkona Pírata segist þreytt á því að hugsa um það og segist hætt að hugsa um það. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fullvíst að ríkisstjórnin þrauki fram að kosningum næsta haust. Þetta kom fram í Pallborði á Vísi í dag.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta.
VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda sendu í síðustu viku erindi til matvælaráðherra (sem þá var Katrín Jakobsdóttir) og fóru fram á að ráðherra beitti sér fyrir því að lögin um víðtæka undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu.
Rúmlega ellefu þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista þar sem fólk segir Bjarni Benediktsson ekki hafa þeirra stuðning sem forsætisráðherra. Listinn hefur verið í loftinu í tæpan sólarhring og hrannast tugir undirskrifta inn á hverri mínútu.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er tekin til starfa og ráðherrar skipust á lyklum í fimm ráðuneytum í morgun. Katrín Jakobsdóttir gekk frá skrifstofunni í forsætisráðuneytinu í síðasta sinn og sagði það nokkuð ljúfa tilfinningu að kveðja stjórnmálin.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, segist ætla að halda áfram þeim verkefnum sem Svandís Svavarsdóttir hefur sinnt í ráðuneytinu. Hún segist spennt takast á við ný verkefni sem ráðherra en að hún ætli að nýta daginn í að kynna sér málin í ráðuneytinu.
„Velkomin heim,“ sagði Bjarna Benediktsson þegar hann afhenti Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur aðgangskortið að utanríkisráðuneytinu í morgun. Hann sagðist vita vel að hún tæki við verkefninu eins og fiskur í vatni. Hann hefði tekist á við stór verkefni á þeim sex mánuðum sem hann sinnti embætti en hefði einnig hugsað til lengri tíma.
Sigurður Ingi hefur nú afhent Svandísi Svavarsdóttur lyklana að innviðaráðuneytinu. Svandís hefur sinnt embætti matvælaráðherra síðustu misseri en Bjarkey Olsen tekur við af henni síðar í dag.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir afhenti Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, lyklana að fjármálaráðuneytinu í morgun. Sigurður Ingi kemur úr innviðaráðuneytinu og Þórdís fer nú aftur í utanríkisráðuneytið.
Bjarni Benediktsson hefur nú tekið við lyklum að forsætisráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir afhendi honum lyklana í morgun. Katrín segist spennt fyrir nýjum verkefnum og Bjarni líka.
Ráðherrar, gamlir og nýir, taka við lyklavöldum í fjórum ráðuneytum í dag, eftir myndun nýrrar ríkistjórnar í kjölfar samningaviðræðna síðustu daga.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, vildi ekki tjá sig um það í gær hvort hún myndi heimila eða banna hvalveiðar. Hún var þó afdráttarlaus um afstöðu sína á þingfundi í febrúar árið 2019.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun taka við lyklunum að forsætisráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í Stjórnarráðshúsinu klukkan 8:30 í dag. Hægt er að fylgjast með í spilaranum að neðan og á Stöð 2 Vísi.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir það myndu verða algjör niðurlæging fyrir Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn ef það kæmi í ljós að þeir hefðu ekki tryggt það í viðræðum síðustu daga að hvalveiðar verði leyfðar að nýju.