
WNBA

Serena Williams orðin eigandi fyrsta kanadíska WNBA-liðsins
Bandaríska tennisgoðsögnin Serena Williams er alls ekki hætt að skipta sér af íþróttum þó að spaðinn sé kominn á hilluna. Hún er nú orðin einn af eigendum nýs körfuboltafélags.

„Geitin“ í kvennakörfunni hætt
Diana Taurasi, stigahæsti leikmaður WNBA deildarinnar í körfubolta frá upphafi, hefur ákveðið að setja skóna upp á hillu. Hún tilkynnti þetta í viðtali við Time tímaritið.

Nashville vill fá WNBA lið og nefna í höfuðið á frægum þjálfara
Stjórnarformaður NHL liðsins Nashville Predators og eiginkona hans vinna nú að því að fá WNBA til Kantrýborgarinnar.

Eltihrellir Caitlin Clark með uppsteyt í dómsal
Maðurinn sem var handtekinn fyrir að ofsækja körfuboltastjörnuna Caitlin Clark var með uppsteyt þegar mál hans var tekið fyrir í dómsal.

Handtekinn fyrir að ofsækja Caitlin Clark
Bandarískur maður á sextugsaldri, Michael Lewis, hefur verið kærður fyrir að ofsækja körfuboltastjörnuna Caitlin Clark.

Græddi meira á fyrstu vikunni á Onlyfans en allan körfuboltaferilinn
Liz Cambage var stjarna í WNBA körfuboltadeildinni í mörg ár en nú hefur hún skipt um starfsvettvang.

Var aðdáandi Chiefs áður en Mahomes og Travis mættu til sögunnar
Caitlin Clark, ein þekktasta íþróttakona heims um þessar mundir, er harður aðdáandi tvöfaldra NFL-meistara Kansas City Chiefs. Hún tekur þó ekki í mál að fólk haldi hana aðeins halda með liðinu eftir gríðarlega velgengni undanfarin ár.

Time valdi Caitlin Clark Íþróttamann ársins
Bandaríska fréttatímaritið Time valdi körfuboltakonuna Caitlin Clark Íþróttamann ársins í ár.

Tók starfi í NBA eftir hvatningu frá íslenskum vinkonum
Kvennakarfan verður í brennidepli í þriðja þætti Kanans sem verður sýndur í kvöld. Þar verður meðal annars rætt við fyrrverandi leikmann Keflavíkur sem starfar við þjálfun í NBA.

Fær meira fyrir að tala í hálftíma en fyrir heilt tímabil í WNBA
Körfuboltastjarnan Caitlin Clark er talin hafa fengið meira borgað fyrir einn hálftíma fyrirlestur en hún fékk í laun fyrir allt síðasta tímabil í WNBA.

Fær meira fyrir hálftíma ræðu en fyrir að spila heilt tímabil
Körfuboltakonan Caitlin Clark er ein vinsælasta íþróttakona Bandaríkjanna en það kostar greinilega sitt að fá hana til að koma og flytja fyrirlestur.

Caitlin Clark nálægt því að skjóta niður áhorfendur á golfmóti
Ein besta körfuboltakona heims, Caitlin Clark, fór brösuglega af stað á Pro-Am móti í golfi.

Mahomes vill eignast lið í WNBA og koma með það til Kansas City
Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs í NFL, vill eignast fleiri íþróttafélög. Núna er hann með augum á kvennakörfuboltaliði.

Búið að reka meira en helming þjálfaranna í WNBA
Kvennadeild NBA hefur verið í mikilli sókn í ár og slegið öll met yfir áhorf og aðsókn á leiki. Það er líka ljóst að eigendur félaganna í deildinni sýna enga miskunn þegar kemur að þjálfarastöðunni.

Langþráður meistaratitill til New York
New York Liberty varð í nótt WNBA meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir sigur á Minnesota Lynx, 67-62, í framlengdum oddaleik. Liberty vann einvígið, 3-2.

Hreinn úrslitaleikur um titilinn
Minnesota Lynx tryggði sér hreinan úrslitaleik um WNBA meistaratitilinn í körfubolta eftir 82-80 sigur í fjórða úrslitaleiknum á móti New York Liberty í nótt.

Fékk öskurskilaboð frá Steph Curry
Sabrina Ionescu skoraði eina stærstu körfu tímabilsins þegar hún tryggði New York Liberty sigur á Minnesota Lynx í þriðja leik úrslitaeinvígi WNBA deildarinnar í körfubolta.

New York einum leik frá því að eignast aftur meistara
New York Liberty er í komið í 2-1 og þar með aðeins einum sigri frá því að tryggja sér WNBA meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Allir nema einn völdu Clark sem nýliða ársins
Caitlin Clark var valinn nýliði ársins í WNBA deildinni í körfubolta með miklum yfirburðum. Aðeins einum blaðamanni fannst hún ekki vera besti nýliðinn í deildinni.

Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“
Nýliðatímabili stórstjörnunnar Caitlin Clark í WNBA deildinni í körfubolta er lokið. Lið hennar, Indiana Fever, féll úr leik í úrslitakeppni deildarinnar í nótt. Clark hefur rifið deildina upp á annað plan í vinsældum og um leið sett fjöldan allan af metum. Framhaldið er afar spennandi. Ekki bara fyrir WNBA deildina. Heldur körfuboltann í heild sinni.

Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet
Caitlin Clark setti skoraði 35 stig í 110-109 sigri gegn Dallas Wings. Fjöldi íslenskra kvenna kom saman og horfði á leikinn, að frumkvæði Silju Úlfarsdóttur og Helenu Sverrisdóttur.

„Sem samfélag erum við að vakna“
„Við finnum meðbyr," segir Helena Sverrisdóttir, ein allra besta körfuboltakona Íslands frá upphafi, sem ásamt Silju Úlfarsdóttur stendur fyrir áhorfspartýi í Minigarðinum í kvöld sem hefur vakið mikla athygli. Þar verður horft á leik Indiana Fever og Dallas Wings í WNBA deildinni í körfubolta en Caitlin Clark, stórstjarna deildarinnar, leikur með Indiana Fever.

Valin best þriðju vikuna í röð
Nýliðinn Caitlin Clark heldur áfram að blómstra í WNBA deildinni í körfubolta og hún er ekki aðeins besti nýliðinn í deildinni heldur hefur hún nú verið valin besti leikmaður Austurdeildarinnar þrjár vikur í röð.

Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð
Nýliðinn og frákastadrottningin Angel Reese, leikmaður Chicago Sky, spilar ekki meira í WNBA-deildinni í körfubolta á þessari leiktíð eftir meiðsli á úlnlið. Frá þessu greindi hún á samfélagsmiðlum sínum.

Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA
NBA goðsögnin Sir Charles Barkley er allt annað en hrifinn af meðferðinni á nýliðanum Caitlin Clark í umfjöllun kvenna um WNBA deildina í Bandaríkjunum.

Setti enn eitt metið í nótt
Caitlin Clark heldur áfram að skrá sig á spjöld sögunnar í WNBA-deildinni í körfubolta. Þessi magnaði nýliði leiddi Indiana Fever til sigurs í nótt og leyfir félaginu þar með að dreyma um að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2016.

Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir
Körfuboltakonan Caitlin Clark heillar flesta sem á hana horfa enda bæði frábær skotmaður og frábær sendingamaður. Það er einkum henni að þakka að áhorf hefur stóraukist á kvennakörfuna í Bandaríkjunum.

Caitlin Clark þakkaði dómaranum fyrir tæknivilluna sína
Caitlin Clark og félagar hennar í Indiana Fever eru að byrja mjög vel eftir að WNBA deildin í körfubolta fór aftur af stað eftir Ólympíuleikana í París.

Cailtin Clark áritaði kornabarn
Bandaríska körfuboltakonan Cailtin Clark getur varla farið út úr húsi lengur án þess að það hópist að henni fólk enda í dag einn frægasti íþróttamaður Bandaríkjanna.

WNBA sölutölur fimmfaldast eftir komu Caitlin Clark og Angel Reese
Sala á varningi tengt WNBA körfuboltadeildinni fimmfaldaðist milli ára. Nýliðarnir Caitlin Clark og Angel Reese eiga vinsælustu treyjurnar.