Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. ágúst 2026 07:03 Chelsea Gray fagnar hér sigurkörfu sinni fyrir Las Vegas Aces en hún skoraði sex af ellefu stigum sínum með þriggja stiga flautukörfum. Getty/Andy Lyons Það eru hetjulegar frammistöður og svo sögulegar frammistöður eins og hjá bandarísku körfuboltakonunni Chelsea Gray í mikilvægum leik í bestu kvennakörfuboltadeild í heimi.
Chelsea Gray tryggði Las Vegas Aces 86-84 sigur á Indiana Fever í uppgjöri tveggja heitustu liðanna í WNBA-deildinni í körfubolta. Gray gerði reyndar gott betur en það. Hún byrjaði á að tryggja Las Vegas framlengingu með þriggja stiga flautukörfu og skoraði síðan sigurkörfuna á flautunni í framlengingunni en hefði hún klikkað á báðum þessum skotum hefði lið hennar tapað leiknum. Þetta var þó ekki leikurinn hennar Caitlin Clark sem klikkaði á tveimur vítaskotum sjö sekúndum fyrir lok venjulegs leiktíma og tapaði boltanum síðan rétt fyrir lok framlengingarinnar. Gray skoraði reyndar bara 11 stig og þrjá þrista í öllum leiknum en kom sér engu að síður í sögubækurnar. Hún er fyrsti leikmaðurinn í sögu WNBA til að jafna leikinn með flautukörfu í lok venjulegs leiktíma og tryggja sigurinn með flautukörfu í lok framlengingar í sama leik. View this post on Instagram A post shared by Las Vegas Aces (@lvaces) Gray þakkaði liðsfélögum sínum Jackie Young (22 stig) og A'ju Wilson (26 stig og 13 fráköst) fyrir að koma henni í góða stöðu fyrir flautukörfurnar. „Við vorum með leikkerfi en það var ekki fyrir mig. Það var ekki teiknað upp þannig. Aliyah Boston sló boltann frá – þetta var sending til mín og þetta átti að vera öðruvísi skot,“ sagði Gray um lok venjulegs leiktíma. „En Jackie, hún hélt áfram að spila, sendi boltann aftur á mig og ég leit upp á klukkuna, átti bara eina sekúndu eftir, eitt dripl og skot, og ég setti hann niður,“ sagði Gray. „Og svo í framlengingunni, ja, fyrst og fremst var A'ja með frábæra vörn. Við segjum alltaf að þetta muni snúast um vörnina okkar. Og hún var með frábæra vörn, kom boltanum til mín í hraðaupphlaupinu. Ég vissi að [þjálfarinn Becky Hammon] ætlaði ekki að taka leikhlé. Þannig að ég sendi boltann á Jackie og hún hefði getað skorað. En hún leitaði að mér við þriggja stiga línuna. Ég leit aftur upp á klukkuna, setti hann niður. Vú! Ótrúlegt,“ sagði Gray en það má sjá þessar körfur með því að smella hér fyrir ofan.
WNBA Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Man. City verður meistari Sport Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu Sjá meira