Fjármálamarkaðir
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 12 ›
Kaup erlendra sjóða á ríkisbréfum jukust hröðum skrefum undir lok ársins Erlendir fjárfestar héldu áfram að bæta við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á síðasta mánuði ársins 2023 eftir að hafa sýnt þeim lítinn áhuga um nokkurt skeið þar á undan. Hlutfallsleg eign þeirra á útistandandi ríkisbréfum jókst þannig um meira en helming á fjórða ársfjórðungi samhliða því að gengi krónunnar hafði gefið nokkuð eftir. Innherji 10.1.2024 11:56
Ætlar að stórauka vægi erlendra skuldabréfa sem eru „álitlegri kostur“ en áður Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu. Innherji 9.1.2024 11:53
EpiEndo ætlar að sækja yfir 15 milljarða til að fjármagna frekari rannsóknir Íslenska lyfjafyrirtækið EpiEndo Pharmaceuticals, sem vinnur að þróun á lyfi í töfluformi gegn lungnaþembu, hefur samið við alþjóðlegan fjárfestingabanka til að sjá um stóra hlutafjáraukningu síðar á árinu þar sem félagið áformar að sækja sér fjármagn upp á vel á annan tug milljarða króna. Sú fjármögnun á að standa undir kostnaði við næsta fasa af klínískum rannsóknum fram til ársins 2028 en stjórnendur EpiEndo eru bjartsýnir á að félagið geti náð verulegri hlutdeild á markaði sem gæti verið verið árlega um 30 milljarðar Bandaríkjadala að stærð. Innherji 4.1.2024 15:07
Áforma að auka gjaldeyriseignir sínar um liðlega 150 milljarða á nýju ári Lífeyrissjóðir landsins setja stefnuna á að auka hlutfallslegt vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum um meira en tvær prósentur á þessu ári, samkvæmt þeim fjárfestingastefnum sem stjórnir sjóðanna hafa samþykkt, en á sama tíma búast þeir við að minnka hlutfall ríkisbréfa og innlendra hlutabréfa. Neikvæð raunávöxtun annað árið í röð þýðir að sumir sjóðir þurfa að óbreyttu að bregðast við halla á tryggingafræðilegri stöðu. Innherji 4.1.2024 08:00
Hlutabréf enn hátt verðlögð miðað við hagnað og áhættulausa kröfu Þetta er í síðasta skipti sem CAPE-hlutfallið er birt byggt á Úrvalsvísitölunni OMXI10 en frá og með 1. janúar 2024 mun hún bera heitið OMXI15 og innihalda fimmtán félög í stað tíu. Hagsveifluleiðrétt hlutfall verðs á móti raunhagnaði (CAPE) fyrir Úrvalsvísitöluna OMXI10 endaði síðasta ár í 28,1 samanborið við 29,1 árið áður. Innherji 3.1.2024 09:35
Fjárfestar selt í hlutabréfasjóðum fyrir meira en tíu milljarða á árinu Þrátt fyrir viðsnúning á mörkuðum undir lok síðasta mánaðar þegar fréttir af mögulegu yfirtökutilboði í Marel bárust þá var ekkert lát á áframhaldandi útflæði fjármagns úr hlutabréfasjóðum. Á fyrstu ellefu mánuðum ársins hafa fjárfestar minnkað stöðu sína í slíkum sjóðum umtalsvert meira en allt árið 2022 en í tilfelli skuldabréfasjóða hefur útflæðið nærri þrefaldast. Innherji 29.12.2023 11:19
Heilbrigðisvottorð á fjármálakerfið Öllum er okkur hollt að fá reglulega utanaðkomandi aðila til að kanna hvort hlutirnir gangi fyrir sig eins og þeir eiga að gera, enda gests augað glöggt. Nokkrar slíkar úttektir sem snúa að íslensku fjármálakerfi voru framkvæmdar á árinu. Rauði þráðurinn í niðurstöðum þeirra er að þær breytingar sem gerðar hafi verið á umgjörð fjármálastarfsemi hér á landi undanfarin ár hafi reynst heillavænlegar. Umræðan 23.12.2023 10:01
Fossaforstjórarnir veðsetja allt sitt í VÍS Haraldur I. Þórðarson, forstjóri samstæðu VÍS og fyrrverandi forstjóri Fossa, og Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa, hafa sett alla hluti sína í VÍS, sem þeir eignuðust í kjölfar sameiningar félaganna tveggja, að veði til tryggingar lánasamningum. Samanlagt virði hlutanna er tæplega 1,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:23
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18.12.2023 11:19
Bala safnar um 700 milljónum í vísisjóð Founders Ventures Management, sem stýrt er af Bala Kamallakharan, vinnur að því að stækka vísisjóð um um það bil fimm milljónir bandaríkjadala, jafnvirði um 700 milljónir króna. Sjóðurinn fjárfestir í fyrirtækjum á hugmyndastigi og við það yrði hann um 9,5 milljónir dala, jafnvirði um 1,3 milljarðar króna. Innherji 15.12.2023 07:19
Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. Innherji 14.12.2023 07:01
Segir bók Þorvaldar rugl frá upphafi til enda Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, mætti í Bítið í morgun til að ræða bók Þorvaldar Logasonar Eimreiðarelítuna – spillingarsögu. Jón Steinar sagði ekki eitt einasta atriði sem þar er um sig skrifað, í bók ef bók skyldi kalla, halda vatni. Innlent 13.12.2023 13:35
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. Innherji 13.12.2023 11:41
Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. Innherji 11.12.2023 11:45
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. Innherji 6.12.2023 09:10
Mestu þyngslin á íslenska markaðnum en tæknirisar tosað upp ávöxtun erlendis Íslenski hlutabréfamarkaðurinn hefur lækkað hvað mest á heimsvísu, ásamt markaðnum í Kólumbíu, á meðan ávöxtun hlutabréfa er með ágætum í mörgum kauphöllum erlendis. Viðmælendur Innherja benda á að ekki séu sambærileg félög í íslensku kauphöllinni og hafa verið að leiða hækkanir í Evrópu og Bandaríkjunum. Þá hafi starfsumhverfi á Íslandi verið krefjandi með miklum launahækkunum síðustu misseri ásamt mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi, umfram það sem þekkist í öðrum löndum. Innherji 25.11.2023 08:35
Treble stefnir á um tveggja milljarða fjármögnun frá erlendum fjárfestum Djúptæknifyrirtækið Treble Technologies stefnir á 12-15 milljón evra fjármögnun, jafnvirði 1,8-2,3 milljarða króna, frá erlendum fjárfestum og fjölga starfsmönnum úr 32 í um 50 hérlendis. Evrópski fjárfestingarbankinn hefur skuldbindið sig til að taka þátt í fjárfestingarlotunni og leggja fram jafn háa fjárhæð og safnast frá öðrum fjárfestum, upplýsir framkvæmdastjóri sprotafyrirtækisins. Innherji 20.11.2023 14:01
Óvissan á Reykjanesskaga knýr Seðlabankann til að halda vöxtum óbreyttum Allt útlit er fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi vöxtum óbreyttum í vikunni vegna þess óvissuástands sem ríkir út af jarðhræringunum á Reykjanesskaga en markaðsaðilar og hagfræðingar hafa ekki verið eins samstíga í væntingum sínum um ákvörðun nefndarinnar um langa hríð. Nánast allir þátttakendur í vaxtakönnun Innherja eiga von á biðleik hjá peningastefnunefndinni í annað sinn í röð enda séu merki um að hátt vaxtastig sé farið að kæla einkaneysluna og þá muni náttúruhamfarirnar draga mátt úr hagkerfinu á næstu mánuðum og þensla á vinnumarkaði minnka. Innherji 20.11.2023 11:02
Rafmyntasjóðurinn Viska hækkaði um 29 prósent í október Gengi Visku rafmyntasjóðs hækkaði verulega í október samhliða miklum hækkunum á Bitcoin, en mörgum öðrum rafmyntum vegnaði ekki eins vel. Um var að ræða besta mánuð sjóðsins frá stofnun hans, þar síðasta sumar. Sjóðurinn hefur tvöfaldast að stærð á innan við ári. Innherji 16.11.2023 16:08
Vægi íslenskra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða ekki verið lægra í þrjú ár Hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða hefur fallið stöðugt undanfarin misseri samhliða meðal annars því að verðlækkanir á mörkuðum hér heima hafa verið mun meiri en þekkist erlendis og er vægi þess eignaflokks núna nokkuð undir meðaltali síðasta áratugs. Með auknum umsvifum lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði á nýjan leik er hlutfall sjóðsfélagalána í eignasöfnum sjóðanna á sama tíma búið að hækka skarpt. Innherji 16.11.2023 12:45
Væntingar um vaxtatoppinn „klárlega að koma niður“ vegna óvissunnar Jarðhræringar og óvissan um framvindu mála á Reykjanesskaga hafa slökkt í öllum væntingum skuldabréfafjárfesta um mögulega vaxtahækkun þegar peningastefnunefnd Seðlabankans kemur saman í næstu viku. Ávöxtunarkrafa styttri ríkisskuldabréfa hefur lækkað skarpt síðustu daga samtímis því að undirliggjandi raunvextir eru að koma niður, að sögn sjóðstjóra á markaði, en útlit er fyrir að fjármögnunarþörf ríkissjóðs eigi eftir að aukast talsvert frá fyrri áætlun vegna meiri hallareksturs. Innherji 15.11.2023 10:46
Staðan á hlutabréfamarkaðnum á mannamáli Hlutabréfamarkaðurinn hefur leikið marga grátt undanfarin misseri og úrvalsvísitalan hrunið um tuttugu prósent á einu ári. Viðskipti innlent 14.11.2023 11:15
Fjárfestar loka framvirkum samningum með krónunni vegna ótta við eldgos Gengi krónunnar hefur fallið skarpt á síðustu dögum samhliða því að auknar líkur eru nú taldar á eldgosi á Reykjanesskaga sem gæti meðal annars raskað verulega starfsemi stórra ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu. Talsvert hefur verið um að fjárfestar séu að loka framvirkum stöðum sínum með krónunni í þessum mánuði sem hefur ýtt enn frekar undir gengislækkun krónunnar. Innherji 13.11.2023 12:41
Lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hækkar í fyrsta sinn frá 2019 Matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+, sem endurspeglar útlit fyrir áframhaldandi kraftmikinn hagvöxt, en ef opinber fjármál styrkjast meira en nú er áætlað gætu verið forsendur fyrir enn frekari hækkun. Líklegt er að hækkun á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs muni í framhaldinu sömuleiðis skila sér í uppfærslu á lánshæfismati íslensku bankanna en S&P gerir ráð fyrir að arðsemi þeirra verði áfram sterk sem geri þá vel í stakk búna til að mæta mögulegum auknum útlánatöpum. Innherji 11.11.2023 13:21
Hvað er greiðslustöðvun? Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun? Viðskipti innlent 9.11.2023 14:21
„Of þröng“ viðmið fyrir kauprétti í nýsköpunarfyrirtækjum Endurskoða þarf skattalega meðferð kauprétta starfsfólks í nýsköpunar- og hugverkafyrirtækjum. Viðmiðin eru of þröng og henta ekki þorra fyrirtækja í hugverkaiðnaði, segir sviðsstjóri hjá Samtökum iðnaðarins. Danskur stjórnandi vísisjóðs sagði að skynsamleg ráðstöfun kauprétta væri mikilvægur þáttur til að skapa frjóan jarðveg til að sprotafyrirtækið geti blómstrað og orðið að einhyrningum. Innherji 9.11.2023 13:23
Árni Oddur fær samþykkta greiðslustöðvun Hlutabréf í Marel hafa fallið um ríflega sextíu prósent á tveimur árum. Arion banki gerði því veðkall í hlutabréf forstjórans sem hætti í kjölfarið. Hann segir bankann ekki hafa farið að lögum því hann hafi lagt fram nægar tryggingar. Fráfarandi forstjóri hefur nú fengið samþykkta greiðslustöðvun. Viðskipti innlent 8.11.2023 18:38
Marel lækkaði um rúm sex prósent Gengi bréfa í Marel lækkaði um 6,42 prósent í Kauphöllinni í dag. Í gærkvöldi var greint frá því að forstjóri félagsins væri hættur eftir tíu ára starf. Viðskipti innlent 8.11.2023 17:59
Arion eignaðist 1,2 prósent í Marel með innlausninni Forstjóri Marel síðustu tíu ár er hættur eftir að Arion banki leysti til sín hlutabréf hans í Eyri Invest stærsta hluthafa í fyrirtækinu. Arion banki eignast næstum fimm prósent í fjárfestingarfélaginu eftir innlausnina. Viðskipti innlent 8.11.2023 13:01