Fjármálamarkaðir
1 2 3 4 5 6 7 8 … 12 ›
Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Alþjóðlegt eyðsluæði Sádiaraba er sagt byrjað að renna af þeim og setja þeir nú ríkari skilyrði um að fjárfestingar þjóðarsjóðs þeirra skili sér heima fyrir. Sjóðurinn hefur veitt milljörðum og milljarða ofan víða um heim á undanförnum árum. Viðskipti erlent 21.8.2024 15:26
Engin salernisaðstaða við Kerið þrátt fyrir hagnað og ellefu ára gjaldtöku Þrátt fyrir að fyrrverandi og núverandi eigendur Kersins hafi tekið gjald af ferðamönnum í ellefu ár er ekki boðið upp á neina þjónustu á svæðinu eins og salernisaðstöðu. Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Arctic Adventures segir fyrirhugað að reisa þjónustumiðstöð á svæðinu á næstu árum. Innlent 21.8.2024 13:16
Seðlabankanum hefnist núna fyrir neikvætt raunvaxtastig um of langt skeið Það verður bið á því að vaxtalækkunarferli Seðlabankans hefjist í vikunni en funheitur fasteignamarkaður, áframhaldandi spenna á vinnumarkaði og óvænt hækkun á árstakti verðbólgunnar þýðir að peningastefnunefndin verður var um sig og telur það ekki áhættunnar virði að losa um aðhaldsstigið á þessum tímapunkti, að mati hagfræðinga og markaðsaðila í vaxtakönnun Innherja. Nánast fullkominn samhljómur er um að vöxtunum verði haldið óbreyttum sjötta fundinn í röð, mögulega með harðari tón en áður, en sumir benda á að Seðlabankanum hefnist núna fyrir að hafa haldið raunvöxtum neikvæðum um of langt skeið. Innherji 19.8.2024 07:50
Verðtryggingarskekkja bankanna í hæstu hæðum vegna ásóknar í verðtryggð lán Verðtryggingarskekkja stóru viðskiptabankanna, munurinn á verðtryggðum eignum og skuldum á efnahagsreikningi þeirra, hefur margfaldast á aðeins átján mánuðum samtímis því að heimili og fyrirtæki flykkjast yfir í verðtryggða fjármögnun í skugga hárra vaxta. Skuldabréfamiðlari telur sennilegt að þessi þróun muni halda áfram af fullum þunga á næstunni sem ætti að óbreyttu að viðhalda raunvöxtum hærri en ella. Innherji 13.8.2024 07:01
Dvínandi áhugi erlendra sjóða á íslenskum ríkisbréfum þrátt fyrir háa vexti Þrátt fyrir tiltölulega háan vaxtamun við útlönd hefur fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra fjárfesta á ríkisskuldabréfum stöðvast á undanförnum mánuðum eftir að hafa numið tugum milljarða króna á liðnum vetri. Gengi krónunnar hefur að sama skapi farið nokkuð lækkandi og ekki verið lægri gagnvart evrunni frá því undir árslok 2023. Innherji 11.8.2024 22:04
Ættu ekki að vænta kröfulækkunar á löngum ríkisbréfum þegar vextir lækka Ef marka má þróunina hjá nýmarkaðsríkjum sem hófu vaxtalækkunarferli á síðasta ári þá er ósennilegt að skuldabréfafjárfestar njóti góðs af því að færa sig yfir í lengri ríkisbréf þegar fyrstu vaxtalækkanirnar koma til framkvæmda, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, enda sé þá mestöll kröfulækkun bréfanna komin fram. Vaxtarófið á íslenskum ríkisskuldabréfamarkaði hefur verið niðurhallandi um nokkurt skeið, og því lítið upp úr því að hafa fyrir fjárfesta að lengja í skuldabréfasöfnum, en væntingar eru um að peningastefndin lækki vexti síðar á árinu. Innherji 7.8.2024 07:30
Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Nikkei-hlutabréfavísitalan japanska skaust upp um rúm tíu stig í dag, aðeins sólarhring eftir mesta hrun hennar í hátt í fjóra áratugi sem skók vestræna hlutabréfamarkaði. Aðrir asískir markaðir tóku einnig við sér eftir minni lækkun. Viðskipti erlent 6.8.2024 08:30
Markaðurinn er að átta sig á því að verðbólgan sé eins og „slæm tannpína“ Fjárfestar voru „fullbjartsýnir“ á að verðbólgan myndi ganga hratt niður á árinu með tilheyrandi vaxtalækkunum Seðlabankans, að sögn forstöðumanns fjárfestinga hjá Sjóvá, en neikvæð afkoma af skráðum hlutabréfum – ásamt stórum brunatjónum – réð hvað mestu um að tryggingafélagið tapaði yfir 400 milljónum á öðrum fjórðungi. Í þessu árferði hárra vaxta sé erfitt fyrir aðra eignaflokka að keppa við víxla og stutt skuldabréf en Sjóvá bætti engu að síður verulega við stöðu sína í Marel. Innherji 17.7.2024 18:18
Akur færir virði fisksalans Gadusar niður um nærri helming Akur fjárfestingarfélag færði niður eignarhlut sinn í belgíska fisksölufélaginu Gadus um 43 prósent milli ára. Árið 2020 var ríflega helmingshlutur í fyrirtækinu metinn á 2,3 milljarða en þemur árum síðar var virði hans yfir 800 milljónir í bókum félagsins sem er í eigu lífeyrissjóða, VÍS og Íslandsbanka. Innherji 12.7.2024 10:43
Erlendir fjárfestar minnka við sig í ríkisbréfum annan mánuðinn í röð Eftir stöðugt innflæði fjármagns um nokkurt skeið vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum ríkisskuldabréfum hefur sú þróun snúist við að undanförnu og hafa þeir núna verið nettó seljendur síðastliðna tvo mánuði. Dvínandi áhugi erlendra fjárfesta kemur á sama tíma og ríkissjóður áformar umtalsvert meiri útgáfu ríkisbréfa á seinni helmingi ársins en áður var áætlað. Innherji 10.7.2024 16:58
Verðbréfafyrirtæki fá líklega að greiða hærri kaupauka en bankar Líklega verður verðbréfafyrirtækjum heimilt að greiða hærri kaupauka en viðskiptabankar þegar reglur vegna EES-samningsins verða leidd í lög hérlendis á næsta ári. Gildandi rammi er sagður óþarflega flókinn og íþyngjandi fyrir flest verðbréfafyrirtæki. Fjármála- og efnahagsráðuneytið bendir á að verðbréfafyrirtæki hafi ekki hliðstætt kerfislægt mikilvægi og lánastofnanir og því séu „ekki viðlíka samfélagslegir hagsmunir“ af því að takmarka áhættutöku þeirra með sama hætti og gildir um starfsemi banka. Innherji 10.7.2024 14:57
Hagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af aukinni útgáfu ríkisbréfa Aðalhagfræðingur Kviku hefur „ekki verulegar áhyggjur“ af fjármögnun ríkissjóðs og það hafi því komið honum um „örlítið spánskt fyrir sjónir“ hvað markaðsvextir ríkisbréfa hækkuðu skarpt þegar ríkið upplýsti um 30 milljarða aukna útgáfu af ríkisbréfum. Hann telur „fjármögnunarbrekkuna“ framundan ekki líta út fyrir að vera óyfirstíganleg. Innherji 4.7.2024 15:44
„Ekki tímabært“ að rýmka reglur um afleiðuviðskipti með krónuna Seðlabankinn telur rétt að fara „varlega“ í að létta á þeim takmörkunum sem gilda um afleiðuviðskipti bankanna með íslensku krónuna gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Ekki sé tímabært að rýmka þær reglur, eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur nýlega lagt til, enda gæti það opnað á aukna stöðutöku með gjaldmiðilinn nú þegar vaxtamunur við útlönd fer hækkandi. Innherji 4.7.2024 10:46
Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur komist að þeirri niðurstöðu að Kvika banki hafi brotið gegn ákvæðum laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Margvíslegar athugasemdir eru gerðar við starfshætti í tengslum við áhættumat bankans, áreiðanleikakannanir og rekjanleika í upplýsingakerfum. Viðskipti innlent 3.7.2024 18:11
Lífeyrissjóðir draga heldur úr gjaldeyriskaupum sínum milli ára Þrátt fyrir stórtæk gjaldeyriskaup lífeyrissjóða í maímánuði síðastliðnum, þau mestu í einum mánuði í tvö ár, þá dróst fjárfesting sjóðanna í erlendum gjaldmiðlum saman á fyrstu fimm mánuðum ársins en gengi krónunnar hélst afar stöðugt á því tímabili. Í byrjun ársins hækkaði hámark á gjaldeyriseignir lífeyrissjóðanna en þeir settu flestir hverjir sér þá stefnu að auka enn frekar vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum fyrir yfirstandandi ár. Innherji 3.7.2024 07:00
Fjárfestar stækka framvirka stöðu með krónunni um tugi milljarða Þrátt fyrir að blikur séu á lofti í ferðaþjónustunni þá hefur það ekki haft neikvæð áhrif á væntingar fjárfesta um gengisþróun krónunnar en þeir hafa aukið stöðutöku sína um tugi milljarða á síðustu mánuðum. Eftir að hafa haldist óvenju stöðugt um langt skeið gagnvart evrunni hefur gengið styrkst lítillega á síðustu vikum. Innherji 1.7.2024 18:25
CAPE-hlutfall Úrvalsvísitölunnar lækkaði milli mánaða í júní Undanfarna mánuði hefur gildi CAPE, hlutfall virðis á móti hagsveifluleiðréttum hagnaði, fikrað sig nær sögulegu meðaltali, að sögn hagfræðings. Umræðan 1.7.2024 07:42
Fjármagn heldur áfram að streyma út úr hlutabréfasjóðum Aukinn áhugi fjárfesta á hlutabréfasjóðum í kringum síðustu áramót reyndist skammlífur og fjármagn er aftur tekið að flæða út úr slíkum sjóðum samtímis erfiðu árferði á hlutabréfamarkaði. Fjárfestar seldu í verðbréfasjóðum, einkum þeim sem fjárfesta í skuldabréfum, fyrir samanlagt um fimmtán milljarða í liðnum mánuði. Innherji 28.6.2024 12:02
JPMorgan Chase afnemur hámark á bónusa í Bretlandi Bandaríski stórbankinn JPMorgan Chase hefur fetað í fótspor Goldman Sachs og tilkynnt starfsfólki sínu í Bretlandi að það muni afnema hámark á kaupaukagreiðslur. Hérlendis er þakið lögum samkvæmt 25 prósent af árslaunum sem hefur haft í för með sér að föst laun hafa hækkað sem kann að auka rekstraráhættu fyrirtækja, einkum þeirra minni. Bankastjórar evrópskra banka, sem geta greitt allt að 200 prósenta kaupauka til starfsmanna miðað við árslaun, kalla eftir því að fara sömu leið og Bretar og afnema hámarkið. Innherji 26.6.2024 15:49
Gullhúðun gerir óverðtryggð lán með föstum vöxtum dýrari Gullhúðun, sem átti að verja neytendur, gerir það að verkum að óverðtryggð lán með föstum vöxtum eru dýrari en annars væri, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka. Þegar reglur séu settar þurfi að fylgja þeim vel eftir, horfa á stóru myndina og meta heildaráhrifin til lengri tíma. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sagt að fyrirkomulagið smitist yfir í skuldabréfamarkað því bankar geti fyrir vikið ekki fjármagnað sig með löngum sértryggðum skuldabréfum á móti fastvaxtaíbúðalánum. Innherji 24.6.2024 18:14
Coripharma eykur hlutafé um 1,8 milljarða króna Samheitalyfjafyrirtækið Coripharma hefur lokið 1,8 milljarða króna hlutafjáraukningu til að styðja við framtíðarvöxt félagsins með þróun nýrra samheitalyfja. Gert er ráð fyrir að þetta sé síðasta hlutafjáraukning félagsins fram að skráningu í Kauphöll. Horft er til þess að skráningin verði á næsta ári. Innherji 12.6.2024 10:47
„Nokkuð einhæf“ fjármögnun eykur endurfjármögnunaráhættu bankanna Markaðsfjármögnun stóru viðskiptabankanna innanlands er enn „nokkuð einhæf“ og eigi að takast að minnka endurfjármögnunaráhættu þeirra er mikilvægt að þeim takist að auka útgáfur ótryggðra skuldabréfa í krónum, að sögn Seðlabankans. Bankarnir hafa hins vegar nýtt sér hagfelldari aðstæður á erlendum mörkuðum á þessu ári til að sækja sér fjármagn á betri kjörum en áður sem ætti að hafa jákvæð áhrif á útlánavexti. Innherji 6.6.2024 11:03
Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Íslandsbanki hefur tekið sáttaboði fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna ófullnægjandi varna gegn peningaþvætti. Bankinn viðurkennir að brotin séu mörg og alvarleg. Viðskipti innlent 1.6.2024 15:11
Félagið ARMA fær til sín þrjá starfsmenn úr fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka Hið nýstofnaða fyrirtæki ARMA Advisory, sem er í eigu fyrrverandi stjórnenda Íslandsbanka og Kviku, hefur fengið til liðs við sig þrjá starfsmenn úr fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka. Atli Rafn Björnsson, framkvæmdastjóri ARMA, stýrði ráðgjöfinni um árabil áður en hann lét af störfum þar um mitt árið í fyrra. Innherji 30.5.2024 17:22
Fjárfestar leita í erlend fasteignafélög en selja þau íslensku Gengi fasteignafélaga erlendis hefur hækkað upp á síðkastið. Aukin óvissa í heims- og efnahagsmálum hefur leitt til þess að fjárfestar erlendis hafa leitað á örugg mið og í stöðug arðgreiðslufélög eins og fasteignafélögin. „Á sama tíma eru fasteignafélögin á Íslandi seld sem aldrei fyrr. Enn og aftur eru því fasteignafélögin á meðal vanmetnustu félaga,“ segir í hlutabréfagreiningu en fyrirtæki á markaði hér heima eru að jafnaði undirverðlögð um 38 prósent. Innherji 29.5.2024 14:33
Þekktir fjárfestar styðja við vegferð Indó sem tapaði 350 milljónum Indó tapaði 350 milljónum króna á sínu fyrsta formlega starfsári 2023 en sparisjóðurinn fjárfesti á sama tíma fyrir 250 milljónir. Á meðal þeirra sem tóku þátt í hlutafjáraukningu Indó á liðnu ári voru félög í eigu Guðmundar Fertram Sigurjónssonar, Andra Sveinssonar, Birgis Más Ragnarssonar, Jónasar Hagan Guðmundssonar. Að auki bættist Iceland Venture Studio II og sænskur vísisjóður í hluthafahópinn í fyrra. Innherji 17.5.2024 14:57
Krónan stöðug þrátt fyrir áföll og fátt sem kallar á veikingu á næstunni Krónan hefur sýnt styrk sinn með því að haldast afar stöðug í kringum gildið 150 á móti evrunni samfellt um margra mánaða skeið þrátt fyrir að ýmislegt hafi unnið á móti henni á liðnum vetri, að sögn gjaldeyrismiðlara. Væntingar eru um gengisstyrkingu horft inn í árið, sem endurspeglast að hluta í meiri framvirki gjaldeyrissölu, samhliða meðal annars mögulegu fjármagnsinnflæði við yfirtökuna á Marel en sumir vara við viðkvæmri stöðu eftir miklar launahækkanir sem hefur þrýst raungenginu á nánast sömu slóðir og fyrir heimsfaraldurinn. Innherji 16.5.2024 10:07
Gengi bréfa Arion rýkur upp eftir „frábæra“ skuldabréfaútgáfu í evrum Hlutabréfaverð Arion hækkaði skarpt eftir að bankinn kláraði 300 milljóna evra almennt skuldabréfaútboð á hagstæðustu kjörum sem íslenskum bönkum hefur boðist í yfir tvö ár en umframeftirspurnin reyndist meiri en sést hefur í útgáfum evrópskra fjármálafyrirtækja í nokkurn tíma. Alþjóðlegi fjárfestingabankinn JP Morgan, einn umsjónaraðila útboðsins, segir niðurstöðuna endurspegla þann aukna áhuga sem er meðal fjárfesta á skuldabréfum íslenskra banka. Innherji 14.5.2024 17:10
Telja að „bestu dagar Airbnb séu framundan“ Sjóðstjórar Paragon Fund telja að bestu dagar Airbnb séu framundan og að félagið muni auka enn frekar við markaðshlutdeild sína á næstu árum. Paragon Fund uppskar 130 prósenta ávöxtun á hálfu ári við kaup á hollensku fjártækni fyrirtæki sem lækkaði verulega eftir lélegt uppgjör. Sjóðstjórunum þótti viðbrögð við uppgjörinu ýkt og hófu að fjárfesta í bréfum Adyen. Þeir telja að undirliggjandi rekstrarframlegð Amazon samstæðunnar eigi mikið inni. Innherji 12.5.2024 09:00
Halda áfram kaupum á íslenskum ríkisbréfum þótt það hægist á vextinum Fjárfesting erlendra sjóða í íslensk ríkisskuldabréf hélt áfram að aukast í liðnum mánuði þótt nokkuð hafi hægt á vextinum og hefur innflæðið ekki verið minna að umfangi í meira en hálft ár. Stöðugt fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra skuldabréfafjárfesta síðustu mánuði hefur átt sinn þátt í því að halda gengi krónunnar stöðugu um nokkurt skeið. Innherji 11.5.2024 13:57