Vatnaskil gætu verið í kortunum og spá því að vaxtahækkunum sé lokið í bili
Þótt verðbólgan verði að líkindum í kringum fimm prósent á næstu mánuðum þá gætu verið vatnaskil í kortunum samhliða hratt lækkandi hrávöruverði og skýrum vísbendingum um hægari efnahagsumsvif. Greinendur Acro telja því að vaxtahækkunarferlinu sé lokið, í bili að minnsta kosti, og segja „nauðsynlegt“ að innlenda hagkerfið fái aukið súrefni á komandi misserum.
Tengdar fréttir
Þriðja verðbólgumælingin í röð sem sýnir ekki hækkanir á breiðum grunni
Verðbólgan í júní, meðal annars drifin áfram af mikilli verðhækkun flugfargjalda, mældist talsvert yfir meðalspá hagfræðinga og verðbólguálag á skuldabréfamarkaði hefur hækkað nokkuð eftir tíðindin. Sumir greinendur benda hins vegar á að þriðja mánuðinn í röð séu verðhækkanir ekki á breiðum grunni sem er góðs viti fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans.
Vextir hækkaðir samhliða horfum á minni hagvexti og meira atvinnuleysi
Annan fundinn í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið að hækka meginvexti Seðlabankans um 25 punkta, sem var í samræmi við spár flestra greinenda, á sama tíma og ný þjóðhagsspá teiknar upp dekkri efnahagshorfur sem einkennast af minni hagvexti og meira atvinnuleysi. Nefndin segist reiðubúin að herða taumhald peningastefnunnar frekar en ekki er útlit fyrir að verðbólgan fari undir fjögur prósent fyrr en á seinni hluta næsta árs.
Forsendum fjárlaga ógnað og hallinn gæti orðið 40 milljörðum meiri
Á meðan óveðursskýin hrannast upp yfir innlendu efnahagslífi, sem er líklegt til að birtast í minni vexti einkaneyslu og verulega auknu atvinnuleysi, þá mun það óhjákvæmilega raska forsendum fjárlaga ríkissjóðs og gæti halli þessa árs orðið nærri fjörutíu milljörðum meiri en var áætlað, samkvæmt nýrri greiningu Acro. Ef stjórnvöld ætla að standa við fyrirheit sín um hallalaus fjárlög á árinu 2027 þá er ljóst að hægari efnahagsumsvif munu kalla á víðtækari hagræðingaraðgerðir, eða enn meiri hækkun skatta.