Lögmennska
1 2 3 4 5 … 5 ›
Óvenjulegi tölvupósturinn birtur: Spurði dómarann hvaða starfsmann hann ætti að reka fyrir jólin Ómar Valdimarsson lögmaður hefur verið hirtur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir tölvupósta sem hann sendi dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, dómstjóra sama dómstóls og 26 öðrum lögmönnum. Ómar sendi dómaranum bréf þar sem hann kvartaði undan lágri dæmdri málsvarnarþóknun og sagðist þurfa að segja upp starfsmanni vegna hennar. Innlent 17.7.2024 14:17
Áminntur fyrir að hóta að afhjúpa meintan fíknivanda Lögmaður hefur verið áminntur og látinn greiða 150 þúsund króna sekt fyrir að hafa hótað að afhjúpa fíknivanda barnsmóður umbjóðanda síns. Innlent 12.7.2024 17:01
Ætlar að leggja til málshöfðun á hendur íslenska ríkinu Íslenska ríkið hefur hafnað miska- og skaðabótagreiðslu til handa ekkju Andemariams Beyene sem lést 30. janúar 2014 í kjölfar plastbarkaígræðslu á Karólínska háskólasjúkrahúsinu í júní árið 2011. Lögmaður ekkjunnar er Sigurður G. Guðjónsson mun að öllum líkindum leggja til við skjólstæðing sinn að hún höfði mál á hendur íslenska ríkinu. Innlent 11.7.2024 11:24
Nýr verjandi Quang Le segir búið að dæma skjólstæðing sinn Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður hefur tekið við máli Quang Lé og er nú verjandi hans. Sveinn segir skjólstæðing sinn grátt leikinn, og enginn Íslendingur hefði mátt þola annað eins. Innlent 9.7.2024 11:53
Ómar fær fyrir ferðina Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta. Neytendur 27.6.2024 20:24
Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn. Innlent 27.6.2024 13:34
Róbert á lista yfir bestu lögmenn Bretlands Róbert Spanó, lagaprófessor og fyrrum forseta Mannréttindadómstóls Evrópu, hefur verið valinn á lista yfir bestu lögmenn Bretlands á sviði mannréttinda og þjóðréttar. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem það gerist með íslenskan lögfræðing. Innlent 21.6.2024 09:54
Tók 38 prósent bótanna og þarf að endurgreiða hundruð þúsunda Ómar R. Valdimarsson lögmaður þarf að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 400 þúsund krónur vegna óhæfilegrar þóknunar sem hann tók fyrir lögmannsþjónustu vegna uppgjörs slysabóta. Eftir fullnaðaruppgjör við Ómar hélt konan aðeins 62 prósentum af bótum sem vátryggingafélag greiddi henni. Innlent 19.6.2024 19:41
Hrefna og Unnur til Novum Hrefna Þórsdóttir og Unnur Edda Sveinsdóttir hafa gengið til liðs við Novum lögfræðiþjónustu. Alls starfa nú sjö lögmenn undir merkjum Novum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 11.6.2024 10:34
Stefán Andrew tekur við formennsku af Sigurði Erni Ný stjórn Lögmannafélags Íslands var kjörin í liðinni viku. Stefán Andrew Svensson lögmaður á Juris var kjörinn formaður félagsins og tekur við af Sigurði Erni Hilmarssyni. Innlent 4.6.2024 10:13
Gerður ráðin til BBA//Fjeldco Gerður Guðmundsdóttir lögmaður hefur verið ráðin til starfa hjá BBA//Fjeldco þar sem hún verður hluti af skattateymi stofunnar. Viðskipti innlent 22.5.2024 11:09
Örlætisgerningur Í dómum Hæstaréttar í málum nr. 20/2023, 21/2023, 22/2023 og 23/2023, frá 27. mars 2024 (71. gr.), segir: Samkvæmt öllu framansögðu fólst í raun í samkomulaginu einhliða ákvörðun fyrrverandi ríkislögreglustjóra um nærri 50% hækkun á grunnlaunum stefnda sem hvorki var í samræmi við kjara- né stofnanasamning. Skoðun 3.5.2024 09:15
Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Gunnar Hauksson, sem á jörðina Sandeyri á Snæfjallaströnd, hefur lagt fram beiðni um lögbann við sjókvíaeldi Arctic Sea Farm á Sandeyri. Er þetta meðal annars á þeim forsendum að sjókvíaeldið sem heimilað er sé innan hans jarðarmarka. Innlent 30.4.2024 15:19
Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn „Hér er Landsréttur að taka fram fyrir hendurnar á ákæruvaldinu, koma fram við það eins og lítið barn sem nýtur ekki lögræðis,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson verjandi hjúkrunarfræðings, sem var sýknaður af ákæru fyrir manndráp á geðdeild Landspítala á síðasta ári. Í dag var dómur héraðsdóms ómerktur í Landsrétti og lagt fyrir héraðsdóms að taka málið til meðferðar á ný. Innlent 26.4.2024 21:33
Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Skiptastjóri veit ekki hvað skal gera með fjármuni sem fundust í búi félags þar sem engin gögn eru til. Geri enginn tilkall til fjármunanna mun skiptastjórinn þurfa sjálfur að velja góðgerðarfélag sem fær peningana. Innlent 25.4.2024 20:30
Skipaður deildarforseti lagadeildar HR Dr. Gunnar Þór Pétursson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur verið skipaður deildarforseti lagadeildar HR. Viðskipti innlent 12.4.2024 10:32
Ráðuneytið greitt Juris hundruð milljóna vegna þjóðlendumála Á undanförnum tíu árum hefur fjármálaráðuneytið greitt lögmannastofunni Juris slf. 354 milljónir króna vegna þjóðlendismála auk greiðslna vegna lögfræðiaðstoðar. Meðal þekktra eigenda Juris eru Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður Árvarkurs og einn innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins, Andri Árnason sem varði Geir H. Haarde í Landsdómsmálinu og Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ og fyrrverandi stjórnarformaður Bankasýslunnar. Innlent 8.4.2024 11:14
Þarf að afhenda reikninga lögmannsstofunnar sem hefur malað gull Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verið gert að afhenda Frigusi II, sem lengi hefur staðið í stappi við ríkið í Lindarhvolsmálinu svokallaða, reikninga frá lögmannsstofunni Íslögum án yfirstrikana. Frá ársbyrjun 2018 hefur ráðuneytið greitt stofunni áttatíu milljónir króna. Innlent 4.4.2024 17:00
Rögnvaldur nýr yfirlögfræðingur hjá Landspítala Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson hefur verið ráðinn sem yfirlögfræðingur Landspítala. Hann hóf störf í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 4.4.2024 14:24
Ráðin yfirlögfræðingur VÍS trygginga Bergrún Elín Benediktsdóttir hefur verið ráðin sem yfirlögfræðingur VÍS trygginga. Viðskipti innlent 2.4.2024 10:44
Fíll í postulínsbúð? Svigrúm ríkisins til athafna á samkeppnismarkaði Þegar ríkisfyrirtæki kaupir eignir eða rekstur þarf að sama skapi að sýna fram á að ákvörðun standist prófið um skynsamlega hegðun markaðsaðila. Ef leiða má að því líkur að eignarhald ríkisins feli í sér einhvers konar forskot, til dæmis að því er varðar fjármögnun kaupanna eða arðsemiskröfu, fellur ríkið á prófinu og þá er um ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins að ræða, að sögn lögmanns og sérfræðings í Evrópurétti. Umræðan 29.3.2024 11:15
Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Sigurður Árnason hefur verið ráðinn í starf lögfræðings hjá ÖBÍ réttindasamtökum. Viðskipti innlent 26.3.2024 12:53
Kæra Ómar til lögreglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins. Innlent 25.3.2024 11:07
Krafði Ómar um endurgreiðslu eftir að hafa lesið um hann í blöðunum Lögmaðurinn Ómar R. Valdimarsson hefur, ásamt lögmannsstofu sinni ESJA Legal, verið dæmdur til að greiða fyrrverandi umbjóðanda sínum 490 þúsund krónur. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu síðastliðinn fimmtudag. Innlent 19.3.2024 10:46
Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals Par segir Ómar Valdimarsson lögmann hafa hótað þeim málsókn eftir að þau sögðu hann hafa höfðað dómsmál fyrir þeirra hönd án vitneskju þeirra. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebook og sagði þau skorta lesskilning. Parið skoðar hvort tilefni sé til að kæra birtingu Ómars á persónuupplýsingum þeirra og íhuga að kvarta yfir honum til úrskurðarnefndar lögmanna. Innlent 18.3.2024 11:25
Segir lesskilningi fara hrakandi og baunar á formanninn Ómar R. Valdimarsson, lögmaður og eigandi Flugbóta.is, gefur lítið fyrir gagnrýni á störf hans þegar mál var höfðað fyrir hönd ungra hjóna, að því er virðist að þeim forspurðum. Máli sínu til stuðnings birtir hann tölvupóstsamskipti við umbjóðendur sína opinberlega á Facebook. Innlent 15.3.2024 14:49
Segir formanninn haldinn „athyglissýki á lokastigi“ Sveinn Andri Sveinsson verjandi sakborninga í hryðjuverkamálinu segir Sigurð Örn Hilmarsson, formann Lögmannafélags Íslands, vera haldinn athyglissýki á lokastigi vegna ummæla hans í viðtali við Ríkisútvarpið fyrr í dag. Innlent 13.3.2024 22:41
Kolbrún tekin til starfa hjá Eurojust Kolbrún Benediktsdóttir hóf í dag störf sem fyrsti sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust í dag. Hún segir um að ræða mikilvægt skref fyrir Ísland. Innlent 12.3.2024 19:09
Heyrðu fyrst frá blaðamanni um dómsmálið og að þau hefðu tapað því Par sem sótti bætur í gegnum flugbaetur.is vissi hvorki að dómur hefði fallið í málinu né að þeim hefði verið dæmt að greiða málskostnað. Formaður lögmannafélagsins segir að slíkt eigi ekki að geta gerst. Ómar R. Valdimarsson sem rekur Flugbætur segir að skjólstæðingar beri ekki kostnaðinn þegar mál fari á þennan veg. Neytendur 12.3.2024 08:01
Lögmaðurinn John Van De North bætist í hóp eigenda BBA//Fjeldco Íslenska lögmannsstofan BBA//Fjeldco, sem starfrækir meðal annars skrifstofu í Mayfair í London, hefur stækkað teymi sitt þar í borg með því að fá til liðs við sig bandaríska lögmanninn John Van De North. Hann er með áratuga reynslu af ráðgjöf við stór fjármögnunarverkefni og var áður einn eiganda alþjóðlegu lögmannsstofunnar Goodwin í London. Innherji 5.3.2024 19:56