
Barnalán

Davíð Helgason og Isabella eignuðust dreng
Davíð Helgason fjárfestir og fyrirsætan Isabella Lu Warburg eignuðust sitt annað barn saman 29. maí síðasliðinn. Fyrir eiga þau soninn Ágúst Lu sem er tveggja ára.

„Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“
„Það er svo skrýtin samblanda að vera glöð og hamingjusöm með börnin sín en á sama tíma vera ótrúlega þungur í sálinni,“ segir tónlistarkonan Salka Sól. Salka Sól skaust upp á stjörnuhimininn árið 2014 og fagnar nú áratugi í tónlistinni.

Annar bakaradrengur í ofninum
Gunnlaugur Arnar Ingason, bakari og kondítor, betur þekktur sem Gulli bakari, og sambýliskona hans Kristel Þórðardóttir, eiga von á sínu öðru barni í nóvember. Fyrir eiga þau soninn Arnar Inga sem er eins árs.

Alfreð og Fríða orðin þriggja barna foreldrar
Alfreð Finnbogason knattspyrnumaður og Fríða Rún Einarsdóttir eignuðust stúlku á dögunum. Um er að ræða þeirra þriðja barn saman.

Bjöggi Takefusa og Sólveig nefna dótturina
Björgólfur Takefusa, fyrrum atvinnumaður í knattspyrnu, og Sólveig Heimisdóttir viðskiptafræðingur nefndu dóttur sína við fallega athöfn um helgina. Stúlkunni var gefið nafnið Indíana Rós.

Elísa Viðars og Rasmus nefndu soninn
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen nefndu son sinn við fallega athöfn um helgina. Drengurinn heitir Theodór Sindri Christiansen.

Edda Falak á von á dreng
Edda Falak baráttukona og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eiga von á dreng. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman.

Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin
Ástarsaga Jóhönnu Helgu Jensdóttur, áhrifavalds og útvarpskonu á FM957, og Geirs Ulrich Skaftasonar viðskiptastjóra hjá Isavia á sér langan aðdraganda þar sem þau voru vinir um nokkurra ára skeið áður en þau felldu hugi saman.

Tvöföld vandræði fyrir Doctor Victor
Victor Guðmundsson, læknir og tónlistarmaður, og Dagbjört Gudjohnsen Guðbrandsdóttir bráðalæknir eignuðust tvíburadrengi. Parið greindi frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

Elín Metta og Sigurður eiga von á barni
Knattspyrnukonan Elín Metta Jensen og Sigurður Tómasson, verkefnastjóri hjá VEX ehf. eiga von á barni.

Forðast drama eins og heitan eldinn
Sunneva Ása Weisshappel listakona segir að hún forðist drama eins og heitan eldinn. Hún býr með sambýlismanni sínum, Baltasar Kormáki kvikmyndagerðamanni, stjúpsyninum Stormi ásamt hænum, hestum og kettinum Ösku. Sunneva segir að sér líði best úti í náttúrunni.

Elísabet og Áki nefndu stúlkuna
Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, tilkynntu nafn dóttur þeirra, sem fæddist fyrr í mánuðinum, í sameiginlegri færslu á Instagram. Stúlkunni var gefið nafnið Maja Svan.

„Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“
Útvarspkonan Valdís Eiriksdóttir, sem margir þekkja sem Völu Eiríks, og Óskar Logi Ágústssonar úr Vintage Caravan eiga von á sínu fyrsta barni saman í nóvember. Parið greinir frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum.

Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku
Dóttir listaparsins Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur og Júlís Heiðars Halldórssonar kom í heiminn á dögunum. Þau segja dótturina hafa stækkað hjörtu þeirra um nokkurn númer.

Baltasar og Sunneva afhjúpa kynið
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eiga von á stúlku í byrjun ágúst. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en Baltasar á fjögur börn fyrir.

Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng
Tónlistarmaðurinn Ari Bragi Kárason og unnusta hans Dórthea Jóhannesdóttir eignuðust dreng á dögunum. Um er að ræða þeirra annað barn en fyrir eiga þau hina þriggja ára gömlu Ellen Ingu.

Greindu frá kyninu á ströndinni
Sandra Björg Helgadóttir þjálfari og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrsta barni í september. Hjónin tilkynntu á Instagram í gær að von sé á dreng.

Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“
Stjörnur landsins nutu liðinnar viku eins og þeim einum er lagið. Mæðradagurinn var í gær og sendu fjölmargir Íslendingar fallegar kveðjur á mæður í lífi þeirra í tilefni dagsins. Fjölmargir sóttu tónleika hljómsveitarinnar GusGus í Hörpu um helgina, þar sem stiginn var trylltur dans.

Bieber-hjónin eiga von á barni
Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber og eiginkona hans Hailey Bieber eiga von á barni.

Gylfi og Alexandra eiga von á barni
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og verslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á öðru barni.

Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng
Jón Daði Böðvarsson knattspyrnumaður og unnusta hans María Ósk Skúladóttir viðskiptafræðingur eignuðust sitt annað barn síðastliðinn þriðjudag, þann 30.apríl. Fyrir eiga þau Sunnevu Sif sem er fimm ára.

Annie Mist og Frederik eignuðust dreng
Crossfit-parið Annie Mist Þórisdóttir og Frederik Emil Aegidius eignuðust dreng í gær. Annie Mist greinir frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum.

Maikai-hjónin eignuðust stúlku
Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eignuðust stúlku á dögunum.

Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Markus Wasserbaech eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau dótturina Elísu Eyþóru sem er eins árs.

Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra
Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi og Vignir Þór Bollason kírópraktor skírðu dóttur þeirra við fallega athöfn í heimahúsi í gær, sumardaginn fyrsta. Stúlkan fékk nafnið Bella Dís.

Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni
Logi Geirsson, fyrrum landsliðsmaður í handbolta, og Inga Tinna Sigurðardóttir, forstjóri Dineout eiga von á barni.

„Óraunverulegustu fréttir sem við getum fært“
Tónlistarkonan og plötusnúðurinn Ragnhildur Jónasdóttir og kærastan hennar Elma Valgerður Sveinbjörnsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í haust. Parið greinir frá gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlum í gær.

Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni
Fótboltakonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er barnshafandi og leikur því ekki með Stjörnunni í sumar.

„Draumur að verða að veruleika“
Þjálfarinn Sandra Björg Helgadóttir og eiginmaður hennar Hilmar Arnarsson eiga von á sínu fyrsta barni saman í haust. Hjónin greina frá tímamótunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Stjörnulífið: „Þarna á sviðinu er æskudraumur að rætast“
Liðin vika var með eindæmum viðburðarík. Edduverðlaunahátíðin, skvísutónleikarnir Mamma þarf að djamma, árshátíðir og afmæli báru þar hæst.