Erlend sakamál
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 21 ›
Skildi árs gamla dóttur eftir eina heima og fór í tíu daga frí Móðir sem býr í borginni Cleveland í Ohio ríki í Bandaríkjunum hefur verið ákærð fyrir morð á dóttur sinni. Hún er sögð hafa farið í tíu daga frí og skilið dóttur sína, sem var sextán mánaða gömul, eftir eina heima á meðan með þeim afleiðingum að hún lést. Erlent 27.6.2023 13:29
Húsleit hjá skipuleggjendum Ólympíuleikanna í París Franska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum undirbúningsnefndar Ólympíuleikanna í París í dag. Húsleitin er sögð tengjast rannsóknum á meintum fjárdrætti og mismunun á verktökum. Erlent 20.6.2023 13:44
Stal líkum barna sem fæddust andvana Alríkissaksóknarar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum segja umsjónarmann líkhúss læknadeildar Harvard skólans hafa selt líkamsparta líka sem gefin voru skólanum. Hann er sakaður um að hafa leyft kaupendum að koma í líkhúsið og velja sér líkamsparta til að kaupa en kaupendur hans og aðrir hafa verið ákærðir vegna málsins. Erlent 15.6.2023 14:46
Vopnavörðurinn sagður hafa verið þunnur Saksóknarar í máli Hönnuh Gutierrez-Reed, sem ákærð hefur verið fyrir manndráp af gáleysi í tengslum við andlát kvikmyndatökumannsins Halynu Hutchins á tökustað kvikmyndarinnar Rust, segja hana að öllum líkindum hafa verið þunna, þegar hún hlóð leikmyndabyssu með venjulegri byssukúlu. Lífið 14.6.2023 23:44
Þrír drepnir og reynt að keyra fólk niður með sendibíl í Nottingham Rúmlega þrítugur karlmaður er í haldi lögreglunnar í Nottingham á Englandi grunaður um morð eftir að þrír fundust látnir í miðborginni í nótt. Þrír til viðbótar eru á sjúkrahúsi eftir að reynt var að aka þá niður. Lögregla lýsir atvikinu sem „hryllilegu og sorglegu“. Erlent 13.6.2023 09:08
Kaczynski sagður hafa svipt sig lífi í fangelsinu Bandaríski hryðjuverkamaðurinn Ted Kaczynski, kallaður „Unabomber“ er sagður hafa svipt sig lífi í fangelsi um helgina. Kaczynski var með krabbamein á lokastigum og var 81 árs gamall. Hann hafði áður reynt að fyrirfara sér í fangelsi. Erlent 12.6.2023 08:56
Kathleen Folbigg náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi Kathleen Folbigg hefur verið náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi. Hún var dæmd í 25 ára fangelsi árið 2003 fyrir að myrða þrjú barna sinna og valda dauða þess fjórða. Erlent 5.6.2023 07:45
„Fjölskyldumeðlimur“ Charles Manson á rétt á reynslulausn Áfrýjunardómstóll í Kaliforníu í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona sem myrti hjón að fyrirskipan Charles Manson á 7. áratug síðustu aldar ætti rétt á reynslulausn. Konan hefur setið í fangelsi undanfarin fimmtíu ár og hefur ítrekað verið neitað um lausn gegn reynslu. Erlent 31.5.2023 09:04
Stofnandi Theranos hefur afplánun Elizabeth Holmes, stofnandi fallna blóðrannsóknafyrirtækisins Theranos, hefur afplánun á ellefu ára fangelsisdómi í kvennafangelsi í Texas í dag. Henni var hafnað um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar dómnum. Erlent 30.5.2023 09:49
Fimmtán ára stúlka ákærð fyrir nítján morð Fimmtán ára gvæjönsk stúlka hefur verið ákærð fyrir að hafa myrt átján skólasystur sínar og fimm ára dreng í síðustu viku, með því að hafa lagt eld að heimavistarskóla. Hún gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Erlent 29.5.2023 23:24
„Sérstakt“ að sitja inni í réttarsal með Bryan Kohberger Íslensk kona, sem kafað hefur ofan í opinber gögn um stórt morðmál sem átti sér stað í bandarískum háskólabæ í vetur, fékk í vikunni að fara inn í réttarsal þegar hinn grunaði var leiddur fyrir dómara. Hún segir súrrealískt að hafa séð hann og aðstæður með eigin augum eftir að hafa skoðað málið í svo langan tíma. Innlent 28.5.2023 21:01
Leitað við stíflu í máli McCann Blásið hefur verið til leitar í lóni við stíflu í Portúgal í tengslum við mál Madeleine McCann. Stíflan er í um 50 km fjarlægð frá Praia da Luz, þar sem fjölskyldan hennar dvaldi þegar McCann var numin á brott í maí 2007. Fréttir 22.5.2023 16:09
Telja að maðurinn hafi kyrkt Emilie Meng Saksóknarnar í Danmörku telja að 32 ára karlmaður, sem er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa rænt og nauðgað þrettán ára stúlku á Sjálandi í mars, hafi kyrkt hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 og komið líki hennar fyrir í stöðuvatni. Erlent 17.5.2023 14:09
Holmes sleppur ekki við fangelsið og þarf að greiða háar bætur Bandarískur áfrýjunardómstóll hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna blóðprufufyrirtækisins Theranos, um að fá að ganga laus gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sínum í gær. Holmes og meðstjórnandi hennar þurfa að greiða milljarða króna í miskabætur. Erlent 17.5.2023 10:49
Fleiri en tvö hundruð látin svelta sig til bana Rúmlega tvö hundruð lík fólks sem tilheyrði kristnum dómsdagssöfnuði hafa nú fundist í skógi í Kenía. Fyrrverandi prédikari hjá söfnuðinum segir að börn hafi verið þau fyrstu sem voru látin svelta sig til bana áður en röðin kom að fullorðnum. Erlent 14.5.2023 13:49
Brotist inn til Hildar Brotist var inn til óskarsverðlaunahafans Hildar Guðnadóttur í Berlín. Hildur segir innbrotsþjófinn hafa stolið hljóðfæri sem hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana en sé verðlaust fyrir þjófinn. Hún óskar eftir hjálp við að finna hljóðfærið. Innlent 13.5.2023 15:55
Foreldrar Madeleine McCann: „Við munum aldrei gefast upp“ Foreldrar Madeleine McCann óska dóttur sinni til hamingju með 20 ára afmælisdaginn í dag. Þau segjast aldrei ætla að gefast upp á leitinni að dóttur sinni sem hvarf í Portúgal árið 2007. Erlent 12.5.2023 23:06
Neitar sök og ætlar ekki að segja af sér George Santos, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, neitaði sök þegar hann kom fyrir alríkisdómara í dag. Þrátt fyrir að þingmaðurinn sé ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti ætlar hann ekki að segja af sér embætti. Erlent 10.5.2023 21:53
Sagður hafa sett upp falda myndavél á klósetti skemmtiferðaskips Karlmaður hefur verið sakaður um að koma upp faldri myndavél á klósetti eins stærsta skemmtiferðaskips í heimi. Maðurinn er sagður hafa tekið upp yfir 150 manns að nota klósettið, þar á meðal mikið af börnum. Erlent 10.5.2023 08:36
Stálu tvö hundruð skóm en geta ólíklega notað þá Óprúttnir þjófar hlupu á sig er þeir stálu rúmlega tvö hundruð skóm í borginni Huancayo í Perú á dögunum. Tjónið er sagt vera mikið en það er þó ólíklegt að þjófarnir græði mikið á skónum sem þeir stálu. Erlent 8.5.2023 11:33
Vond lykt á hótelherbergi reyndist vera af líki undir rúmi Ferðamaður í Tíbet þurfti að skipta um herbergi á hóteli vegna vondrar lyktar sem angaði um allt herbergið sem honum var úthlutað. Nokkrum dögum síðar kom í ljós að lyktin var af rotnandi líki undir rúminu sem maðurinn átti að gista í. Erlent 7.5.2023 09:39
Handtaka fólk sem hylmdi yfir með fjöldamorðingjanum í Texas Lögreglan í Texas handtók í dag nokkra einstaklinga sem eru grunaðir um hjálpa karlmanni sem skaut fimm nágranna sína til bana á föstudag að komast undir réttvísinni í fjóra sólarhringa. Maðurinn var handtekinn í heimahúsi þar sem hann faldi sig undir þvotti. Erlent 3.5.2023 15:54
Flúði frá Ítalíu eftir manndrápstilraun og fór huldu höfði á Íslandi 43 ára Nígeríumaður sem flúði óafplánaðan fangelsisdóm á Ítalíu og fór huldu höfði á Íslandi hefur nú verið afhentur lögregluyfirvöldum í Róm. Fjölmargir ítalskir fjölmiðlar greina frá málinu. Innlent 2.5.2023 15:56
Fundu sjö lík við leit að tveimur unglingum Lögreglan í Oklahoma í Bandaríkjunum fann líkamsleifar sjö í afskekktu húsi í gær. Lögreglan var að leita að tveimur unglingsstúlkum en talið er að þær séu meðal hinna látna. Þá er maðurinn sem talinn er hafa rænt þeim, og hefur nokkra kynferðisbrotadóma á bakinu, einnig talinn meðal látinna. Erlent 2.5.2023 10:38
Íslandsvinur dæmdur fyrir pólitískt misferli í Bandaríkjunum Bandaríski rapparinn Prakazrel „Pras“ Michel úr hiphopsveitinni Fugees var dæmdur sekur um ólöglega áhrifaherferð gagnvart bandarískum stjórnvöldum í þágu malasísks kaupsýslumanns og kínverskra stjórnvalda. Rapparinn sagðist ekki hafa vitað að það sem hann gerði væri ólöglegt. Erlent 27.4.2023 10:46
Grunuð um að bana tólf vinum sínum með blásýru Lögregla í Taílandi hefur handtekið konu sem grunuð er um að hafa banað tólf vinum sínum og kunningjum með því að eitra fyrir þeim með blásýru. Erlent 27.4.2023 10:08
Maðurinn sem rændi þrettán ára stúlku ákærður fyrir morð á annarri stúlku Maðurinn sem grunaður er um að hafa rænt þrettán ára stúlku nálægt bænum Kirkerup í Danmörku í síðasta mánuði er grunaður um að hafa myrt aðra stúlku árið 2016. Hann hefur verið ákærður af lögreglu fyrir það morð. Erlent 26.4.2023 10:13
Þrír dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á tólf ára stúlku Klíkuleiðtogi að nafni Maykil Yokhanna og tveir aðrir félagar hans hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir morð á tólf ára stúlku. Stúlkan var skotin í Norsborg, suður af Stokkhólmi, árið 2020. Erlent 26.4.2023 10:08
Ákærð fyrir að myrða mann sem kúgaði móður hennar með kynlífsmyndbandi TikTok-áhrifavaldur ætlaði að leggja gildru fyrir mann sem var að fjárkúga móður hennar með kynlífsmyndbandi. Menn á hennar vegum þvinguðu bíl mannsins af veginum með þeim afleiðingum að hann og vinur hans létust. Konan og móðir hennar hafa verið ákærðar fyrir morð ásamt sex öðrum. Erlent 25.4.2023 00:23
Sveltu sig til dauða til þess að hitta Jesúm Að minnsta kosti tuttugu og eitt lík hefur verið grafið upp í tengslum við rannsókn á prédikara sem er talinn hafa sagt fylgjendum sínum að svelta sig til dauða til þess að hitta Jesúm í Kenía. Börn eru á meðal þeirra látnu en lögregla býst við að finna enn fleiri lík. Erlent 23.4.2023 11:53