Spænski boltinn

Fréttamynd

Doc Zone: Trylltust af fögnuði er Orri bætti við öðru marki sínu

Orri Steinn Óskarsson skoraði tvennu þegar Real Sociedad gerði 3-3 jafntefli gegn Real Oviedo í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Það trylltist allt í Doc Zone á Sýn Sport þegar Orri seinna mark sitt sem virtist vera að tryggja Sociedad sigur en Eric Bailly, fyrrverandi leikmaður Manchester United náði að skora jöfnunarmark fyrir Oviedo undir lok leiks.

Fótbolti
Fréttamynd

„Við erum heppin að hafa leik­mann eins og Trent“

Alvaro Arbeloa, þjálfari Real Madrid, hrósaði enska landsliðsmanninum Trent Alexander-Arnold og sagði Real Madrid vera „heppið að hafa“ hann eftir að bakvörðurinn átti stórleik og lagði upp mark í 4-1 sigri liðsins á Orra Steini Óskarssyni og félögum í Real Sociedad á laugardag.

Fótbolti
Fréttamynd

Mark dæmt af Orra á Bernabéu

Real Sociedad, lið Orra Steins Óskarssonar, átti erfitt uppdráttar á Bernabéu leikvanginum í kvöld og varð að sætta sig við 4-1 tap gegn Real Madrid.

Fótbolti
Fréttamynd

Orri fagnaði sætum bikarsigri í Baska­landi

Orri Steinn Óskarsson kom inn af varamannabekk Real Sociedad og sigldi í höfn 0-1 sigri á útivelli gegn Athletic Bilbao. Strákarnir frá San Sebastian eru því í góðri stöðu fyrir seinni leik undanúrslitaeinvígisins í spænska bikarnum.

Fótbolti
Fréttamynd

Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé

Ís­lenski lands­liðs­fyrir­liðinn Orri Steinn Óskars­son hlýtur mikið lof í spænska miðlinum Mundo Deporti­vo í dag. Orri hefur komið inn af krafti í lið Real Sociedad eftir krefjandi meiðsli og í grein miðilsins er sjónum beint að áhuga­verðri töl­fræði þar sem Ís­lendingurinn skákar Kyli­an Mbappé.

Fótbolti
Fréttamynd

Orri aftur með draumainnkomu

Orri Steinn Óskarsson átti aðra flotta innkomu af bekknum í kvöld þegar Real Sociedad vann 3-1 heimasigur á Elche í spænsku deildinni.

Fótbolti
Fréttamynd

„Don Orri Steinn Óskars­son“

Orri Steinn Óskarsson tryggði í gær Real Sociedad sæti í undanúrslitum spænska konungsbikarsins þegar hann tryggði liðinu 3-2 útisigur á Alavés með marki tíu mínútum fyrir leikslok.

Fótbolti
Fréttamynd

Mbappé bætti upp fyrir hrika­legt klúður

Real Madrid vann hádramatískan 2-1 sigur þegar fallbaráttulið Rayo Vallecano kom í heimsókn í 22. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Kylian Mbappé klúðraði fyrir opnu marki en bætti upp fyrir það undir blálok leiksins og skoraði sigurmarkið. Gestirnir enduðu með níu menn inni á vellinum.

Fótbolti
Fréttamynd

Orri sneri aftur eftir meiðsli

Orri Steinn Óskarsson sneri aftur til leiks með Real Sociedad og spilaði síðustu mínúturnar í 3-1 sigri liðsins gegn Celta Vigo í 21. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar.

Fótbolti