Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Sindri Sverrisson skrifar 16. september 2026 08:08 Vinicius Junior og Kylian Mbappé brettu upp á bolina og voru svo fljótir að klæða sig úr þeim að myndatöku lokinni, fyrir leik við Elche í gærkvöld. Getty/Jose Breton Þrír leikmenn Real Madrid, þar af tvær helstu stjörnur liðsins, neituðu að sýna skilaboð til stuðnings við spænsku borgina Ceuta í Marokkó, fyrir leikinn við Elche í spænsku 1. deildinni í fótbolta í gærkvöld.
Leikmenn liðanna klæddust allir bolum sem á stóð „Todos somos Caballas“, eða „Við erum öll Caballas“ en íbúar Ceuta eru kallaðir „Caballas“. Frakkarnir Kylian Mbappé og Ibrahima Konaté, og Brasilíumaðurinn Vinicius, virtust hins vegar ekki hafa áhuga á að sýna þessi skilaboð og rúlluðu þeir bolunum upp, eins og sjá má á myndinni að ofan. Ceuta er eins og fyrr segir spænsk sjálfstjórnarborg í Norður-Afríku, með landamæri að Marokkó, sem mikið var fjallað um í sumar eftir að tugir þúsunda komu sér ólöglega inn í borgina í lok júlí, með því að synda frá Marokkó. Aðeins 85.000 manns búa í borginni en talið er að 72.000 ólöglegir innflytjendur hafi brotið sér leið þangað og sumir náðu ekki alla leið. Spænsk stjórnvöld hafa í kjölfarið verið gagnrýnd fyrir of lina stefnu í innflytjendamálum, meðal annars með mótmælum á götum úti. Flestum hinna ólöglegu innflytjenda hefur þó verið vísað úr borginni en enn er töluverður fjöldi þar eftir. Real Madrid hefur sýnt íbúum Ceuta stuðning og það gerðu stuðningsmenn með stórum fánum á leik við Inter Mílanó í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku. Fyrir leik í gær, sem var á heimavelli Elche, voru svo allir leikmenn liðanna í bolum sem sýna áttu stuðning við Ceuta en það vildi fyrrnefnt þríeyki ekki gera. Þeir hafa ekki skýrt afstöðu sína frekar. Real Madrid vann leikinn 3-2 en það stoð ansi tæpt. Mbappé hafði komið liðinu í 2-0 á 33. mínútu en heimamenn náðu svo að jafna þegar aðeins sjö mínútur voru eftir. Carlos Espí skoraði hins vegar sigurmark í lokin og sá til þess að Real jafnaði Barcelona að stigum á toppi deildarinnar en Börsungar eiga leik til góða við Racing Santander í kvöld.
Spænski boltinn Innflytjendamál Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Sjá meira