
Tækni

Gripu eldflaugarþrep á stærð við Hallgrímskirkju með vélarmi
Geimferðafyrirtækinu SpaceX tókst í fyrsta skipti að grípa risavaxið eldflaugarþrep með vélarmi á skotpallinum við tilraunaflug í dag. Eldflaugarþrepið er 71 metri á hæð, örlítið lægra en Hallgrímskirkjuturn.

Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans
Íslenska tæknifyrirtækið Carbon Recycling hefur samið um hönnun rafeldsneytisverksmiðju í Kína. Þetta er einn stærsti samningur í sögu fyrirtækisins en með honum stefnir í að framleiðslumagn vistvæns eldsneytis á grunni íslenskrar tækni dugi til orkuskipta á öllum íslenska skipaflotanum.

Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent
Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar.

Spyr hvort Ísland vilji vera miðpunktur eða eftirbátur annarra
Íslendingar þurfa að gera upp við sig hvort þeir vilji taka virkan þátt í þróun gervigreindar eða verða eftirbátar annarra ríkja. Gríðarleg og vaxandi orkuþörf er til staðar vegna gervigreindarvinnslu og í því felast tækifæri fyrir Ísland að sögn sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Á sama tíma geti orkumálin reynst vera hindrun en áform eru uppi um að skoða möguleika þess að reisa gervigreindargagnaver á Íslandi.

Controlant frestar hluthafafundi að beiðni hóps óánægðra hluthafa
Stjórn Controlant hefur fallist á beiðni hóps hluthafa um að fresta hlutafundi félagsins, sem átti að fara fram á morgun, um eina viku þannig að þeim gefist tími til að koma fram með breytingartillögur fyrir fundinn. Veruleg óánægja hefur verið í röðum margra stórra einkafjárfesta með þá tillögu að fara í hlutafjárhækkun í því skyni að verja þá fjárfesta sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði félagsins fyrir þeirri lækkun á hlutabréfaverði sem er að óbreyttu væntanleg í yfirstandandi útboðsferli.

Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“
Einhverjar allra vafasömustu vefsíður sem finna má á alnetinu eru með heimilisfang skráð á Íslandi, nánar tiltekið við Kalkofnsveg 2 í Reykjavík, þar sem Reðasafnið er meðal annars til húsa. Umfangsmikil fréttaskýring um málið birtist á vef New York Times í dag undir yfirskriftinni „Svona varð Ísland að stafrænu heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar.“

Mikill fjöldi fyrirtækja með ófullnægjandi netvarnir
Sviðsstjóri hjá Fjarskiptastofu segir nýja Evróputilskipun um netöryggi setja ríkari skyldur á stjórnendur stofnanna og fyrirtækja að tryggja að fram fari áhættumat á netöryggi. Gert er ráð fyrir að innleiðingu ljúki á Íslandi 2026. Hér á landi er talið að lítið sé vitað um fjölda netárása á ári.

Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika
Stofnandi Defend Iceland vill knýja fram viðhorfsbreytingu um öryggisveikleika. Hann fullyrðir að þeir séu jákvæðir ef þeir eru meðhöndlaðir á ábyrgan hátt; tilkynntir og birtir í forvarnaskyni. Sumum finnist óþægilegt að sýna veikleikamerki en ef veikleikinn er meðhöndlaður sé það ekkert annað en styrkleikamerki.

Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk
Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli.

Loftmyndir opna nýtt og einstakt þrívíddarkort af Íslandi
„Við erum mjög stolt af þessu. Þetta er nýtt í þessum þrönga geira sem kortabransinn er,“ segir Karl Arnar Arnarson, framkvæmdastjóri Loftmynda ehf., um nýtt þrívíddarkort af Íslandi.

Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltingu
Menningar- og viðskiptaráðherra skrifaði í gær undir nýjan samning við sjálfseignarstofnunina Almannaróm um að gegna hlutverki miðstöðvar máltækni á Íslandi til ársins 2027. Almannarómur var eini aðilinn sem lýsti yfir áhuga á verkefninu.

Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess
Verkfræðingar bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA slökktu á einu mælitækja Voyager 2, næstvíðförlasta geimfars sögunnar, til þess að spara orku og framlengja líftíma þess í síðasta mánuði. Farið hefur þegar verið í geimnum í hátt í hálfa öld.

Gerir óþægilegt samtal auðveldara
Ný launavakt, Rúna, gefur fyrirtækjum færi á að fá upplýsingar um laun starfsmanna mánaðarlega. Lausnin er hönnuð hjá Origo og er ætlað að auka gagnsæi í launum. Lausnin hefur verið í þróun í tvö ár og var opnuð fyrirtækjum síðasta föstudag.

„Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“
„Já ég myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum,“ segir Elva Sara Ingvarsdóttir og hlær.

Dauði vefsíðunnar eins og við þekkjum hana
Frá upphafi internetsins, eins og flestir þekkja það, hafa fyrirtæki og stofnanir reitt sig mjög á það hversu netið er opið og þá helst á hefðbundnar leitarvélar. Að neytendur vafri um netheima og með góðri leitarvélabestun, sé réttum viðskiptavinum stýrt inn á vefsíður þeirra.

„Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“
„Ég viðurkenni að fyrst var ég mjög óöruggur. Velti fyrir mér hvort ég væri nógu góður. Hvort varan mín væri nógu góð. Fjárfestar virka einhvern veginn á mann eins og þeir hljóti að vera einhverjir svakalegir risar,“ segir Geoffrey Stekelenburg, stofnandi Neurotic sprotafyrirtækis sem starfrækt er í Grósku.

Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní
Andri Úlfarsson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri stafrænu stofunnar Júní. Í tilkynningu kemur fram að Andri hafi gengið til liðs við stofuna í júní eftir að hafa starfað sem framkvæmdastjóri sölusviðs Toyota í sjö ár.

Skilur að fólk sé hugsi yfir mögulegum skyldleika við sæðisgjöf
Heimspekingur segist skilja vel að fólk hafi orðið hugsi eftir fréttir af því að skyldleiki íslenskra sæðisgjafa og þeirra sem þiggja sæði hérlendis sé ekki skoðaður. Smæð samfélagsins geti kallað á að farið sé lengra en lagarammi og læknisfræðileg rök kveða á um.

Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki
„Kerfið okkar nýtist öllum aðilum sem eru að selja fatnað á netinu. Það nýtist líka þeim sem nú þegar bjóða upp á að fólk geti „séð“ hvernig það mátast í flíkina,“ segir Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir og vísar þar til „virtual fitting,“ sem sífellt fleiri eru að taka upp.

Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“
Mikil eftirspurn ríkir hér á landi eftir sæði að sögn yfirlæknis hjá Livio. Skyldleiki sæðisgjafa og þeirra sem þiggja sæðið er ekki kannaður.

Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina
Kafbáturinn Títan, sem fórst í leiðangri að flaki Titanic í fyrra, bilaði nokkrum dögum fyrir hinstu förina. Fimm létust í slysinu, þeirra á meðal Stockton Rush, forstjóri fyrirtækisins sem átti kafbátinn.

Hlustar á íslenskt útvarp í finnskri sveit
Finnskum útvarpsáhugamanni tókst á dögunum að bæta íslenskum útvarpsstöðvum í safn þeirra erlendu útvarpsstöðva sem hann nær að hlusta á í sumarbústaði sínum í finnskri sveit í norðurhluta Finnlands í Lapplandi. FM 957, Gullið og fleiri útvarpsstöðvar hljóma því í eyrum Finnans.

Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar
Forsvarsmenn Apple kynna í dag nýjustu græjur fyrirtækisins á viðburði í Kaliforníu. Búist er við því að sýndir verði nýjustu símar fyrirtækisins, snjallúr og önnur tæki. Þá er einnig búist við því að gervigreind muni spila stóra rullu í kynningunni, sem ber titilinn: „It‘s glowtime“.

Byggja „risagagnaver“ : Endurnýta varma í upphitun húsa og gróðurhúsa
Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hyggst byggja sitt stærsta gagnaver til þessa í bænum Ølgod í Varde á Vestur Jótlandi í Danmörku. Í því verður sérstök áhersla á fyrirtæki sem nota mikið magn gagna. Gert er ráð fyrir að endurnýta varma frá gagnaverinu til að hita upp hús og aðra starfsemi í nágrenni við gagnaverið.

Gísli Kr. bætist í eigendahóp Snjallgagna
Gísli Kr. og fjárfestingafélag hans, Bright Ventures, hafa bæst við eigendahóp sprotafyrirtækisins Snjallgagna. Aðrir bakhjarlar Snjallgagna í dag eru Tennin, MGMT Ventures, Founders Ventures og Icelandic Venture Studio.

Treble sækir tæpa tvo milljarða
Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies, sem þróað hefur hugbúnað á sviði hljóðhermunar, lauk nýverið ellefu milljón evra A fjármögnunarlotu, jafnvirði 1,7 milljörðum króna, með þátttöku erlendra og innlendra fjárfesta. Fjármagnið verður nýtt til að ráða fleira starfsfólk, efla rannsóknar- og þróunarstarf, skala upp söluteymi og sækja á nýja markaði. Meðal viðskiptavina félagsins eru stærstu tæknifyrirtæki heims.

Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“
„Enda segi ég oft við útlendinga að ég lifi tvöföldu lífi,“ segir Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda og eigenda YAY og hlær.

Æfðu viðbragð við netárásum sem fjölgar um hundruð prósenta
Í dag fór fram fjölmenn netárásaræfing á vegum Syndis og Origo. Þetta er í annað sinn sem slík æfing er haldin á Íslandi en leikarar aðstoðuðu við að láta atburðina líta eins raunverulega út og hægt er.

Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega
Hollenska fyrirtækið Elysian hefur kynnt áform um smíði 90 sæta rafmagnsflugvélar sem þjóna á allt að 800 kílómetra löngum flugleiðum. Fyrirtækið stefnir að því að hún verði komin í farþegaflug árið 2033, eftir níu ár.

Hundrað og fimmtíu missa vinnuna hjá Controlant
Íslenska hátæknifyrirtækið Controlant hefur sagt upp 150 starfsmönnum, um þriðjungi starfsmanna, í hagræðingaraðgerðum. Nú starfa 290 manns hjá fyrirtækinu sem óx á ógnarhraða í heimsfaraldri með lykilhlutverk í dreifingu bóluefna.