Ástin á götunni
288 289 290 291 292 293 294 295 296 … 334 ›
Arnar skoraði í sigri Lokeren Arnar Grétarsson lék síðustu 10 mínúturnar og skoraði síðasta mark Lokeren sem vann Charleroi 4-2 í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á varamannabekk AZ Alkmaar sem tapaði fyrir PSV Eindhoven 3-0 í hollensku úrvalsdeildinni. Sport 23.10.2005 15:04
Enn tapar Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 2. deildinni tapaði 3-0 fyrir Rochdale í dag. Notts County er nú fallið niður í 14. sæti deildarinnar með 18 stig og hefur nú ekki unnið sigur í 8 leikjum í röð og markatalan 2-10. Sport 23.10.2005 15:04
Leeds í 4. sætið Gylfi Einarsson lék síðustu tvær mínúrnar með Leeds sem vann 1-2 útisigur á Burnley í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Gylfi kom inn á sem varamaður á 88. mínútu í liði Leeds sem náði 4. sæti deildarinnar með sigrinum með 21 stig, níu stigum á eftir toppliði Sheff Utd. Sport 23.10.2005 15:04
Man Utd og Bolton yfir í hálfleik Bolton er 0-1 yfir gegn Chelsea og Man Utd 0-1 yfir gegn Sunderland þegar flautað hefur verið til hálfleiks í fimm leikjum sem nú standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Staðan hjá W.B.A. og Arsenal er jöfn 1-1, markalaust er hjá Tottenham og Everton og sömuleiðis hjá Liverpool og Blackburn. Sport 23.10.2005 15:04
Helgi Sig á leið til Fram Fyrrverandi landsliðsmaðurinn Helgi Sigurðsson er genginn til liðs við sitt gamla félag, Fram sem leikur í 1. deild karla í fótbolta á næsta tímabili. Helgi sem hefur undanfarin 2 ár leikið með AGF í Danmörku hefur gert 2 ára samning við Safamýrarliðið en hann lék að auki með Víkingi áður en hann hélt utan í atvinnumennsku árið 1994. Sport 23.10.2005 15:04
Chelsea óstöðvandi - Eiður skoraði Chelsea heldur ótrautt áfram sigurgöngu sinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið er enn með fullt hús stiga eftir 9 leiki og 5-1 sigur á Bolton í dag. Eiður Smári Guðjohnsen átti stórleik. Arsenal tapaði heldur óvænt fyrir W.B.A. 2-1, Liverpool vann 1-0 sigur á Blackburn, Man Utd vann 1-3 útisigur á Sunderland og Tottenham vann Everton. Sport 23.10.2005 15:04
Eiður inn á og Chelsea komið yfir Chelsea er komið yfir gegn Bolton, 4-1 eftir að hafa verið undir í hálfleik, 0-1. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í hálfleik og átti þátt í tveimur fyrstu mörkum Chelsea. Bolton eru manni færri eftir að Ricardo Gardner var vikið af velli. Tottenham er komið 2-0 yfir gegn Everton. Sport 23.10.2005 15:04
Pardew í samningaviðræðum Alan Pardew, stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni, er nú í samningaviðræðum við félagið um framlengingu á samningi sínum. Pardew hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu í tvö ár og fastlega er búist við að hann skrifi brátt undir nýjan samning. Sport 23.10.2005 15:04
Mido vill fara til Spurs Framherjinn Mido, sem verið hefur í láni hjá Tottenham Hotspurs frá Roma síðan í janúar í fyrra, segir að hann vilji ganga formlega í raðir Lundúnaliðsins þegar leiktíðinni lýkur í vor. Sport 23.10.2005 15:04
Sammi vill leggja Chelsea Sam Allardyce vill að Bolton verði fyrsta liðið til að leggja Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur og varar leikmenn sína við því að þeir verði að nýta hvert einasta færi sem þeir kunna að fá í leiknum um helgina, ef þeir ætli sér að vinna meistarana. Sport 23.10.2005 15:04
Eyjólfur næsti landsliðsþjálfari Eyjólfur Sverrisson verður kynntur sem næsti A-landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu á blaðamannafundi hjá Knattspyrnusambandinu á eftir. Samningurinn við þá Ásgeir Sigurvinsson og Loga Ólafsson verður ekki endurnýjaður og þeir því hættir. Sport 23.10.2005 15:04
Dregið í umspil fyrir HM Nú rétt áðan var ljóst hvaða lið mætast í umspili um laust sæti á HM í knattspyrnu í Þýskalandi næsta sumar. Spánverjar mæta Slóvenum og verður fyrri leikur liðanna á Spáni þann 12. nóvember. Norðmenn fá það erfiða verkefni að mæta Tékkum og Svisslendingar fá Tyrki í heimsókn, en þessir leikir fara allir fram sama dag og æfingaleikur Englendinga og Argentínu. Sport 23.10.2005 15:04
Jewell og Murphy bestir Danny Murphy var í dag kosinn leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni og Paul Jewell var valinn knattspyrnustjóri mánaðarins. Murphy var lykilmaður í liði Charlton sem hefur komið mjög á óvart það sem af er leiktíðinni, eins og reyndar stjórinn Paul Jewell hjá Wigan, sem hefur náð ævintýralegum árangri með nýliðana, sem voru taplausir í mánuðinum. Sport 23.10.2005 15:04
Keane hættur með írska landsliðinu Roy Keane hefur ákveðið að hætta að spila með írska landsliðinu í knattspyrnu í kjölfar þess að liðinu mistókst að vinna sér sæti á HM í Þýskalandi í sumar. Keane, sem er 34 ára gamall, segist ætla að einbeita sér að því að spila með Manchester United það sem eftir er af ferlinum. Sport 23.10.2005 15:04
Hargreaves samdi við Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hefur framlengt samning sinn við þýsku meistarana Bayern Munchen um fjögur ár og slekkur þar með í þeim orðrómi um að hann snúi til heimalandsins og spili í úrvalsdeildinni ensku. Sport 23.10.2005 15:04
Enn eitt áfallið fyrir Arsenal Arsenal hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því nú er ljóst að Hvít-Rússinn Alexander Hleb verður frá keppni í sex til átta vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í landsleik í vikunni. Sport 23.10.2005 15:04
Borgin neitar Rush um partí Þátttakendur á Ian Rush Icelandair Masters knattspyrnumótinu sem fer fram í Egilshöll í byrjun nóvember fá ekki móttöku á vegum Reykjavíkurborgar. Á mótið sem er fyrir "lengra komna knattspyrnumenn" koma nokkrir af frægustu knattspyrnumönnum Englands á fyrri árum úr liðum Liverpool, Manchester United og Arsenal. Sport 23.10.2005 15:04
Fletcher og O´Shea skrifa undir John O´Shea og Darren Fletcher skrifuðu í gær undir nýja samninga við lið Manchester United og því á aðeins einn maður í ungliðasveit liðsins eftir að framlengja samning sinn við félagið, en það er Portúgalinn Cristiano Ronaldo. Sport 23.10.2005 15:04
Benitez ræðir við leikmenn sína Djibril Cissé barmaði sér í fjölmiðlum þegar hann var á ferðalagi með franska landsliðinu í vikunni og sagði að hann hefði hug á að fara frá Liverpool ef honum tækist ekki að vinna sér fast sæti í liðinu á næstu tveimur mánuðum. Benitez tók franska sóknarmanninn inn á teppi og ræddi við hann og heldur því fram að málið sé leyst. Sport 23.10.2005 15:04
Fjórir enskir tilnefndir Fjórir enskir landsliðsmenn hafa verið tilnefndir í 30 manna úrtak fyrir valið á knattspyrnumanni ársins hjá FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandinu. Þetta eru þeir Wayne Rooney, Frank Lampard, David Beckham og Steven Gerrard. Sport 23.10.2005 15:04
Cisse setur sér markmið Framherjinn Djibril Cissé hjá Liverpool hefur sett sér skýr markmið varðandi framtíð sína hjá félaginu og segir að nái hann ekki að vinna sér fast sæti í liðinu á næstu tveimur mánuðum, muni hann róa á önnur mið á nýja árinu. Þetta segir hann að sé nauðsynleg ráðstöfun fyrir sig til að vinna sér sæti í franska landsliðinu fyrir HM næsta sumar. Sport 23.10.2005 15:04
Stjórarnir verða að aga Rooney Sepp Blatter, forseti FIFA, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að hinum skapheita Wayne Rooney og segir að það sé á ábyrgð knattspyrnustjóranna að halda aftur af drengnum. Sport 23.10.2005 15:04
King meiddist með landsliðinu Varnarjaxlinn Ledley King hjá Tottenham Hotspurs gæti misst af leik liðsins gegn Everton um helgina vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleiknum gegn Pólverjum í gær. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir aðdáendur liðsins hér heima, því stuðningsmannaklúbbur Tottenham er nú á leið til London að sjá leik Tottenham og Everton um helgina. Sport 23.10.2005 15:04
Hætt við byggingu spilavítis Eigendur Manchester United hafa hætt við að byggja spilavíti á heimavelli liðsins Old Trafford eins og til stóð, vegna erfiðleika við að fá tilskilin leyfi. Félagið hefur lagt ríka áherslu á að þessi niðurstaða hafi ekkert með Malcom Glazer og syni hans að gera, en margir vildu meina að þeir hefðu runnið á rassinn með að fjármagna fyrirtækið vegna skuldsetningar félagsins. Sport 23.10.2005 15:04
Davies segist betri en Crouch Framherjinn Kevin Davies hjá Bolton segist geta gert betri hluti með enska landsliðinu en hin hávaxni Peter Crouch hjá Liverpool og bendir á að þó hann sjálfur muni líklega ekki fá landsleik úr þessu, gæti hann skilað stöðunni betur en Crouch þegar enska liðið spilar svipaðan stíl og Bolton. Sport 23.10.2005 15:04
Sögulegur sigur Úrugvæ Úrúgvæ vann frækinn sigur á Argentínumönnum í undankeppni HM í gærkvöld, 1-0 með marki frá Alvaro Recoba og tryggði sig í umspil gegn Áströlum um laust sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári. Sport 23.10.2005 15:04
Campbell klár í Meistaradeildina Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á í nokkrum vandræðum með þau miklu meiðsli sem hrjá leikmenn liðsins þessa dagana, en hann hefur nú fengið þær gleðifréttir að Sol Campbell verði líklega klár í slaginn þegar liðið fer til Prag í Meistaradeildinni í næstu viku. Sport 23.10.2005 15:04
Chelsea skoðar Andrade Ensku meistararnir Chelsea eru nú sagðir ætla að festa kaup á portúgalska varnarmanninum Jorge Andrade hjá Deportivo La Corunia í janúar og er talið að hann muni kosta félagið um 16 milljónir punda. Sport 23.10.2005 15:04
Enska U-21 liðið vann Pólverja Enska U-21 árs landsliðið vann auðveldan 4-1 heimasigur á Pólverjum í gærkvöldi. Steven Taylor skoraði tvö marka enska liðsins og Carlton Cole og Jerome Thomas skoruðu sitt markið hvor.> Sport 23.10.2005 18:59
Svíþjóð - Ísland í beinni á Vísi Landsleikur Svíþjóðar og Íslands sem fram fer í Svíþjóð í dag verður sýndur beint á Vísi VefTV. Útsending Sýnar hefst klukkan 17:00 en flautað verður til leiks klukkan 17:30. Svíar virðist ekki hafa miklar áhyggjur af íslenska landsliðinu miðað við blaðamannafund sænska landsliðsins í Stokkhólmi í gær sem Þorsteinn Gunnarsson fylgdist með.> Sport 23.10.2005 18:59