Stjarnan

Stjarnan

Fréttir af Ungmennafélaginu Stjörnunni frá Garðabæ.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið

Ægir Þór Steinars­son, lykilmaður í liði Stjörnunnar og lands­liðs­fyrir­liði í körfu­bolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úr­slita­keppni Bónus deildarinnar. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.

Körfubolti
Fréttamynd

Oln­bogi Ægis brotnaði

Ægir Þór Steinarsson olnbogabrotnaði í leik með Stjörnunni gegn KR í úrslitakeppni Bónus deildarinnar í körfubolta. Hann gekkst undir aðgerð í gærkvöldi. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Brugðumst vel við í krefjandi að­stæðum“

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, er kominn með lið sitt í undanúrslit í Bónus-deild karla í körfubolta. Þar verður Stjörnuliðið án Ægis Þórs Steinarssonar, sem meiddist þegar Stjarnan tryggði sér farseðil í undanúrslitin, en án hans snéri liðið taflinu sér í vil í leiknum í kvöld. 

Körfubolti
Fréttamynd

Ægir fluttur í burtu í sjúkra­bíl

Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði Stjörnunnar og íslenska landsliðsins, meiddist illa í fjórða leik KR og Stjörnunnar í átta liða úrslitum Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

KR með bakið upp við vegg: „Erum ekki klárir í að fara í sumar­frí“

Jakob Örn Sigurðar­son, þjálfari KR, segir sitt lið ekki til­búið í að fara í sumar­frí. KR er með bakið upp við vegg fyrir leik á heima­velli gegn ríkjandi Ís­lands­meisturum Stjörnunnar þar í úr­slita­keppni Bónus deildarinnar í körfu­bolta þar sem ekkert annað en sigur dugir KR til þess að halda lífi í keppninni.

Körfubolti
Fréttamynd

„Gáfum ó­dýr mörk“

Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir óhagstæð úrslit hans manna sem töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni í fyrstu umferð Bestu deildar karla í dag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum

Hilmar Smári Henningsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik í kvöld en, eins og Stjarnan í heild, sprakk út í þeim seinni þegar KR-ingar voru lagði af velli í þriðja leik átta liða úrslitum Bónus deildar karla. Stjarnan vann seinni hálfleikinn 51-29 og skoraði Hilmar 17 stig í leiknum.

Körfubolti
Fréttamynd

„Galið“ að Stjörnu­menn spili sig sem fórnar­lömb

Jakob Örn Sigurðar­son, þjálfari KR, gefur lítið fyrir gagn­rýni þjálfara Stjörnunnar á dóm­gæsluna í öðrum leik liðanna sem endaði með sigri KR. Hann telur það engin áhrif munu hafa að Garðbæingar spili sig sem fórnar­lamb. Þeir brjóti ítrekað af sér, væli svo og tuði. Leikur þrjú í ein­vígi liðanna fer fram í kvöld.

Körfubolti