Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sindri Sverrisson skrifar 3. október 2026 20:06 Á myndbandi má sjá að Daníel Berg og Braga sinnaðist eftir leikinn á Ísafirði um helgina. Skjáskot/Handboltapassinn Eftir mikil læti sem urðu á milli þjálfara á leik í 3. flokki karla í handbolta á Ísafirði um helgina, og yfirlýsingar á báða bóga, hafa menn nú náð sáttum og ákveðið að mál sé að linni.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá handknattleiksdeild Harðar og þjálfara 3. flokks Stjörnunnar sem er Daníel Berg Grétarsson. Athygli vekur að handknattleiksdeild Stjörnunnar kvittar ekki undir yfirlýsinguna. Félagið sendi frá sér tilkynningu í vikunni og sagðist þar fordæma atvik sem varð í leik Harðar og Stjörnunnar á Ísafirði á sunnudaginn. Samkvæmt þeirri tilkynningu veittist Bragi Rúnar Axelsson, aðstoðarþjálfari Harðar, að Daníel og hafði í hótunum við hann. Myndbandið hér að neðan renndi stoðum undir þann málflutning. Kvaðst Stjarnan ætla að vísa málinu til HSÍ. Forráðamenn Harðar svöruðu þessu með yfirlýsingu og sögðu Stjörnumenn segja ósatt. Þar sagði að Daníel hefði aftur á móti viðhaft ítrekað ljót ummæli í leiknum um leikmenn Harðar, þjálfara og aðstoðarþjálfara. Nú virðast menn hins vegar hafa náð sáttum og í sameiginlegri yfirlýsingu Daníels og Harðar segir að allar kvartanir vegna málsins hafi verið dregnar til baka. Orð hafi fallið í hita leiksins en aðilar „sammála um að þau voru misskilin og er það miður“. Yfirlýsinguna má sjá í heild hér að neðan. Sameiginleg yfirlýsing Harðar og þjálfara Stjörnunnar vegna leiks félaganna í 3. flokki karla Aðalþjálfari Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari Harðar hafa náð fullum sáttum vegna atvika sem urðu í leik liðanna á Ísafirði og eftir hann. Þeir hafa rætt saman í bróðerni og beðið hvor annan afsökunar. Þeir eru sammála um að allir hefðu átt að vanda samskipti sín betur og þjálfarar eigi öllum stundum að vera fyrirmyndir ungra iðkenda. Orð féllu í hita leiksins og eru aðilar sammála um að þau voru misskilin og er það miður. Báðir aðilar hafa jafnframt dregið til baka allar kvartanir sínar vegna málsins og telja ekki tilefni til frekari aðgerða af neinu tagi. Áfram handboltinn. Ísafirði og Garðabæ, 3. október 2026 Handknattleiksdeild Harðar þjálfari Stjörnunnar
Handbolti Stjarnan Hörður Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Fleiri fréttir FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Sjá meira