Íslensk erfðagreining

Kæmi ekki á óvart ef fleiri greindust með veiruna í dag en í gær
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, kveðst ekki eiga sérstaklega von á því að það greinist fleiri með kórónuveiruna í dag heldur en greindust í gær. Það kæmi þó heldur ekki á óvart.

Telur líkur á að næsta bylgja verði verri
Kári Stefánsson telur möguleika á hertum aðgerðum. Það sé þó ekki hans að ákveða. Hann segir þriðja afbrigði veirunnar hafa greinst fyrir skemmstu en það hafi náðst að kveða það niður. Hann telur líkur á að ný bylgja veirunnar verði mögulega verri en sú sem glímt var við um verslunarmannahelgina.


Með tjald fyrir augunum
Alþjóðlegur kaupsýslumaður og stjórnmálarýnir Ole Anton Bieltvedt birti í gær á Visir.is framhald af grein, sem hann færði okkur á sama miðli þann 27. maí 2020, þar sem hann hélt því fram að ég hefði ýkt þann kostnað sem Íslensk erfðagreining (ÍE) hefði borið út af skimun í fyrsta kapítula kórónafaraldursins.

Ólafur E. Friðriksson látinn
Einn af brautryðjendum fréttastofu Stöðvar 2, Ólafur E. Friðriksson, er látinn, 66 ára að aldri, eftir langvinn veikindi. Hann þótti einn öflugasti stjórnmálafréttamaður landsins.

Kári svarar Herði og spyr hverju hann hafi átt að hóta ríkisstjórninni
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, virðist ekki sáttur við leiðara Harðar Ægissonar, ritstjóra Markaðsins, fylgiblaðs Fréttablaðsins um viðskipti, sem birtist í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag.

Mótefni minnkar ekki á fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu
Niðurstöður rannsóknar vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra benda til þess að ekki dragi úr mótefni sem myndast í blóði þegar fólk smitast af Covid-19 á fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu.

Segir ekki rétt að enginn hafi greinst við seinni skimun
Kári Stefánsson segir ekki rétt að enginn hafi greinst við seinni skimun eftir komuna til landsins. Þrír hafi greinst með veiruna í seinni skimun. Hann telur að ef seinni skimun verði hætt komi mánaðarlega upp ný bylgja smita.

„Grautur af alls konar“ afbrigðum veirunnar greinst á landamærum
Sjömenningarnir sem virtu ekki heimkomusmitgát en greindust síðar jákvæðir fyrir covid-19 reyndust vera með afbrigði veirunnar sem ekki hefur greinst hér á landi áður.

Hægt verði að greina 5000 sýni á dag eftir helgi
Vonir standa til að hægt verði að greina umtalsvert fleiri kórónuveirupróf á næstunni.

Meðvitund
Meðvitundin er þess eðlis eins og svo margt annað að þú getur ekki misst hana nema þú hafir hana. Það er kannski þess vegna sem það lítur út fyrir að Ólafur Hauksson taki ekki roti.

Skapsmunir
Það er ekki til vinsælda fallið að gagnrýna Kára Stefánsson. Síst af öllu að atyrða hann fyrir að láta skapsmuni ráða við örlagaríkar ákvarðanir. Enda er Kári vinsæll og veit af því og minnir okkur reglulega á hvað Íslensk erfðagreining hefur varið mörgum milljörðum króna í viðbrögð við kórónuveirunni.

Telur líklegt að veiran komi frá Austur-Evrópu
Hann segir líkur á að veiran komi frá landi þar sem faraldurinn hefur verið í langan tíma eða smitað mjög stóran hóp af fólki.

Veiran á landinu barst ekki frá „öruggu ríki“
Sú gerð veirunnar sem nú finnst á víð og dreif um landið barst ekki með farþega frá ríki sem er undanþegið skimun á landamærunum.

Hagsmunir
Það er ekki alltaf öfundsvert hlutverkið almannatengla sem er gjarnan ætlað að leiða mönnum fyrir sjónir þær hliðar á málefnum sem ekki eru auðsæjar, stundum vegna þess að þær eru einfaldlega ekki til

Báðir sjúklingarnir greindust í Vestmannaeyjum
Þeir tveir einstaklingar sem greindust með kórónuveirusmit á Íslandi síðasta sólarhringinn eru báðir búsettir í Vestmannaeyjum.

Íslensk erfðagreining léttir álagið við landamæraskimun
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til við ráðherra að skimun á landamærunum við kórónuveirunni haldi áfram.

Kári tilkynnti um 4,8 milljóna styrk til Björgvins
Velferðarsjóður barna hefur ákveðið að styrkja forvarnar- og fræðsluverkefnin Vopnabúrið og Við sem lið.

„Við megum ekki láta deigan síga“
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir Skagamenn finna fyrir létti eftir að allir greindust neikvæðir fyrir kórónuveirunni sem veldur covid-19 í skimun gærdagsins.

Telur góða hugmynd að skima víðar um land
Kári Stefánsson telur það góða hugmynd að skimað verði fyrir kórónuveirunni með slembiúrtaki víðar en þegar hefur verið gert.

Enginn smitaður í skimuninni á Akranesi
Enginn af þeim 612 sem skimaðir voru fyrir kórónuveirunni á Akranesi í dag reyndist smitaður.

Skagamenn mættu í hundraðatali í skimun
Skagamenn sem lentu í slembiúrtaki hjá Íslenskri erfðagreiningu mættu í hundraðatali í skimun fyrir kórónuveirunni á Akranesi í dag.

Íslensk erfðagreining boðar þrjá hópa í skimun
Íslensk erfðagreining vinnur nú aftur að skimun einstaklinga fyrir COVID-19 í samvinnu við sóttvarnalækni.

Hefði viljað ganga lengra en virðir ákvörðunina
Kári Stefánsson segist ánægður með að tekin hafi verið ákvörðun um að herða á samkomutakmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins hér á landi.

Óttast að veiran sé að breiðast út með leifturhraða um samfélagið
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, óttast að kórónuveiran sé að breiðast út aftur með leifturhraða um íslenskt samfélag. Skimun hefst hjá Íslenskri erfðagreiningu í dag.

ÍE vildi ekki skriflegan samning
Verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu segir að vegna vinsælda landsins þurfi annað hvort að gefa fleiri þjóðum undanþágur fyrir skimun eða aflýsa flugi. Íslensk erfðagreining hafi verið mótfallinn því að skriflegur samningur yrði gerður um skimun á landamærum.

Íslensk erfðagreining skimar áfram næstu vikuna
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir reikning til stjórnvalda vegna skimunarvinnu ekki á borðinu, enn sem komið er.

Ríkið býst við reikningi fyrir skimuninni frá Íslenskri erfðagreiningu
Forsætisráðuneytið hefur rætt við Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um að hann sendi reikning fyrir skimun fyrir kórónuveirunni. Mögulegt er að kostnaður við greiningu sýna sem eru tekin á Keflavíkurflugvelli aukist þegar Landspítalinn tekur við skimuninni af fyrirtækinu.

Ákvörðun ÍE hafi engin áhrif á skimun Norrænufarþega
Ákvörðun Íslenskrar erfðagreiningar um að draga sig úr samstarfi um landamæraskimun hefur engin áhrif á komu 750 farþega með Norrænu hingað til lands í morgunsárið.

Smári og Kári karpa: Mannskaðanálgun við rekstur samfélagsins
Smári McCarthy telur samskiptin við Íslenska erfðagreiningu opinbera grafalvarlega bresti í samfélagsgerðinni.