
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Þegar enginn heldur utan um þig
Í réttnefndu velferðarsamfélagi þurfa stjórnmálaflokkar að sameinast um að tryggja velferð alls fólks sem í samfélaginu býr. Á undanförnum áratug hafa hagsmunir landsmanna ekki verið valdhöfum ofarlega í huga.

Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana
Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi sagðist ekki vilja tjá sig um Katrínu Jakobsdóttur, sem einnig gefur kost á sér til embættisins, þegar hún væri ekki viðstödd. Jón Gnarr, sem er líka að bjóða sig fram, segir smá meðvirkni í því að tjá sig ekki um aðra frambjóðendur þegar þeir gætu alveg verið á staðnum.

Enginn niðurskurður í síðustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
Gert er ráð fyrir áframhaldandi halla á rekstri ríkissjóðs á næstu árum samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálum í stað þess að taka dýfur með miklum niðurskurði.

Segir yfirlýsingu bankaráðsins „auma“
Formaður stjórnar Bankasýslunnar segir það „aumt“ hjá bankaráði Landsbankans að fullyrða í yfirlýsingu að henni hefði átt að vera fullkunnugt um áform bankans um að bjóða í TM. Skipta þurfi bankaráðinu út til þess að fara nánar yfir kaupin.

Bankasýslan hafi ekki gert athugasemdir við tilboð í TM
Bankaráð Landsbankans segir að Bankasýslan hafi verið upplýst um áhuga bankans á að kaupa tryggingafélagið TM í desember og ekki gert neinar athugasemdir fyrr en eftir að tilboð bankans var samþykkt. Bankasýslan ætlar að skipta út fimm bankaráðsmönnum á næstu dögum.

Munu skoða að losna strax við TM
Bankasýsla ríkisins mun funda með nýju bankaráði Landsbankans að loknum aðalfundi bankans og leggja áherslu á að ráðið meti kaup bankans á TM og leiti leiða til þess að losna við tryggingafélagið. Fyrrverandi fjármálaráðherra vildi að skoðað yrði hvernig væri hægt að losa um eignarhlutinn eins fljótt og auðið er.

Öllu bankaráði Landsbankans skipt út
Bankasýsla ríkisins ákvað á fundi sínum í fyrradag, að fengnum tilnefningum valnefndar, að velja nýja einstaklinga sem verða tilnefndir í bankaráð Landsbankans á aðalfundi hans þann 19. apríl næstkomandi. Til stóð að fimm bankaráðsmenn yrðu tilnefndir til áframhaldandi setu en í ljósi kaupa Landsbankans á TM var hætt við það.

Ríkisstjórnin leyfir verðsamráð í Öskjuhlíð
Er frelsi og heilbrigð samkeppni bara eitthvað skraut hjá Sjálfstæðisflokknum en ekki raunveruleg stefna? Er það orðið að sjálfstæðu markmiði hans að stuðla að hærra matarverði og þar með hærri verðbólgu og vöxtum?

Viss um að Svandís yfirgefi Bjarna eins og Katrín
Þingkona Viðreisnar er viss um að ríkisstjórnin lifi ekki af kjörtímabilið. Þingkona Pírata segist þreytt á því að hugsa um það og segist hætt að hugsa um það. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur fullvíst að ríkisstjórnin þrauki fram að kosningum næsta haust. Þetta kom fram í Pallborði á Vísi í dag.

Beitir nýr matvælaráðherra sér fyrir afnámi ólaganna?
VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda sendu í síðustu viku erindi til matvælaráðherra (sem þá var Katrín Jakobsdóttir) og fóru fram á að ráðherra beitti sér fyrir því að lögin um víðtæka undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu.

„Fyrst og fremst bara ljúft“
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er tekin til starfa og ráðherrar skipust á lyklum í fimm ráðuneytum í morgun. Katrín Jakobsdóttir gekk frá skrifstofunni í forsætisráðuneytinu í síðasta sinn og sagði það nokkuð ljúfa tilfinningu að kveðja stjórnmálin.

„Ég ætla ekki að vera með neinar yfirlýsingar“
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr matvælaráðherra, segist ætla að halda áfram þeim verkefnum sem Svandís Svavarsdóttir hefur sinnt í ráðuneytinu. Hún segist spennt takast á við ný verkefni sem ráðherra en að hún ætli að nýta daginn í að kynna sér málin í ráðuneytinu.

Bjarni bauð Þórdísi velkomna heim
„Velkomin heim,“ sagði Bjarna Benediktsson þegar hann afhenti Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur aðgangskortið að utanríkisráðuneytinu í morgun. Hann sagðist vita vel að hún tæki við verkefninu eins og fiskur í vatni. Hann hefði tekist á við stór verkefni á þeim sex mánuðum sem hann sinnti embætti en hefði einnig hugsað til lengri tíma.

Yfirgefur innviðaráðuneytið með trega en treystir Svandísi vel
Sigurður Ingi hefur nú afhent Svandísi Svavarsdóttur lyklana að innviðaráðuneytinu. Svandís hefur sinnt embætti matvælaráðherra síðustu misseri en Bjarkey Olsen tekur við af henni síðar í dag.

Sigurður Ingi tekinn við af Þórdísi
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir afhenti Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni Framsóknarflokksins, lyklana að fjármálaráðuneytinu í morgun. Sigurður Ingi kemur úr innviðaráðuneytinu og Þórdís fer nú aftur í utanríkisráðuneytið.

Katrín afhenti Bjarna lyklana að forsætisráðuneytinu
Bjarni Benediktsson hefur nú tekið við lyklum að forsætisráðuneytinu. Katrín Jakobsdóttir afhendi honum lyklana í morgun. Katrín segist spennt fyrir nýjum verkefnum og Bjarni líka.

Vaktin: Bjarni tekur við lyklunum úr hendi Katrínar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun taka við lyklunum að forsætisráðuneytinu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur í Stjórnarráðshúsinu klukkan 8:30 í dag. Hægt er að fylgjast með í spilaranum að neðan og á Stöð 2 Vísi.

Alveg óvíst hvort ríkisstjórnin lifi kjörtímabilið af
Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir jafnvel meiri styr munu standa um ríkisstjórnina undir forystu Bjarna Benediktssonar en Katrínar Jakobsdóttur. Stólaskiptin feli ekki í sér mikla efnisbreytingu en mikla ásýndarbreytingu sem hann telur að geti reynst ríkisstjórninni erfið þegar fram í sækir.

Katrín á leið í „óvissuferð“
Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra gekk út af ríkisráðsfundi eftir að hafa verið í ríkisstjórn með hléum frá árinu 2009. Hún segir tilfinninguna stórkostlega og að hún sé alsæl við að fara í það sem hún kallar „dálitla óvissuferð.“

Ávarp Guðna: Greinamunur á að vera skráður á Ísland.is og vera í framboði
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ávarpaði fjölmiðla að loknum fyrri ríkisráðsfundi af tveimur sem fara fram á Bessastöðum í kvöld.

Líst ekkert á blikuna
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir fráfarandi ríkisstjórn skilja eftir sig erfiða stöðu og að ekkert bendi til þess að ný ríkisstjórn geti leyst þau verkefni betur. Hún hefði viljað að frekar yrði boðað til kosninga í haust.

Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins verður næsti forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins tekur við sem fjármálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir verður innviðaráðherra.

Viðbrögð á samfélagsmiðlum: „Í hvaða trúðalýðræði lifum við?“
Netverjar hafa ekki setið á skoðunum sínum um væntanleg stólaskipti í ríkisstjórn landsins. Tíðinda er að vænta af viðræðum ríkisstjórnarflokkanna klukkan 14 en þá hefur verið boðað til blaðamannafundar í Hörpu.

Bjarni leiðir og Bjarkey kemur ný inn
Formenn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks kynntu nýja ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar í dag. Ráðherrastóladans verður dansaður á Bessastöðum í kvöld.

Ný ríkisstjórn fær handbók um siðareglur í sængurgjöf
Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra, sem samin var af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni og í samvinnu við ráðuneytið.

Hafa nýtt tímann til að leysa ágreining VG og Sjálfstæðismanna
Formaður Framsóknarflokksins segir viðræður forystumanna stjórnarflokkanna þriggja um helgina og í gær meðal annars hafa farið í að leysa ágreining sem hefur verið milli Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna. Ríkisstjórnarflokkarnir boða til blaðamannafundar klukkan 14 í Hörpu til að kynna áherslur nýs ráðuneytis.

Nestið hennar Katrínar
Fráfarandi ríkisstjórn er nú í andslitrunum, að leysast upp og ráðherrarnir með örfáum undantekningum hafa lagst á flótta frá verkefnum sínum, sem þeir hafa meira og minna gefist upp á.

Kennir ráðherrum siðareglurnar áður en hún hættir
Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra. Handbókin var samin af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytisins og í samvinnu við ráðuneytið. Í handbókinni eru settar fram skýringar á siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra.

Fjármálaráðherraflakkið minni á Tinder-sambönd
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir fólk vera í lengri samböndum á stefnumótaforritinu Tinder en í stól fjármálaráðherra. Hún fullyrðir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins verði þriðji fjármálaráðherrann á hálfu ári.

Vaktin: Ný ríkisstjórn tekur við í kvöld
Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu nýja ríkisstjórn og áherslumál hennar á blaðamannafundi í Hörpu í dag.