Erlendar
91 92 93 94 95 96 97 98 99 … 264 ›
Real Madrid tapaði á heimavelli Stjörnum prýtt lið Real Madrid tapaði óvænt á heimavelli fyrir Celta Vigo, 1-2, í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Sevilla er á toppi deildarinnar eftir leiki helgarinnar. Fótbolti 5.11.2006 19:57
Tottenham lagði Chelsea Tottenham gerði sér lítið fyrir og lagði Englandsmeistara Chelsea af velli í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Lokatölur urðu 2-1 en það var Aaron Lennon sem skoraði sigurmarkið með stórglæsilegu marki. Enski boltinn 5.11.2006 18:05
Sér eftir rifrildinu Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, hefur beðið Arsene Wenger, kollega sinn hjá Arsenal, afsökunar á framkomu sinni í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Stjórunum tveimur lenti saman í lok leiksins og hnakkrifust þeir þar til það þurfti að skilja þá í sundur. Enski boltinn 5.11.2006 16:59
Vilja Shepherd burtu Þúsundir stuðningsmanna Newcastle söfnuðust fyrir framan aðalinngang St. James Park, heimvöll félagsins, eftir tapið gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í gær og kröfðust þess að Freddie Shepherd segði af sér stjórnarformennsku hjá félaginu. Enski boltinn 5.11.2006 11:02
Reyes gæti komið til baka Arsene Wenger hjá Arsenal segist ekki útiloka þann möguleika að Jose Antonio Reyes snúi aftur til félagsins eftir þessa leiktíð. Reyes er í láni hjá Real Madrid og hefur sagt að hann vilji alls ekki fara aftur til Englands. Wenger segir að það sé ekki alfarið undir honum sjálfum komið. Enski boltinn 5.11.2006 10:45
Harewood hetja West Ham Sóknarmaðurinn Marlon Harewood reyndist hetja West Ham í nágrannaslagnum gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Harewood skoraði eina mark leiksins, mínútu fyrir leikslok. Enski boltinn 5.11.2006 15:43
Arenas fór á kostum Gilbert Arenas hjá Washington var maður næturinnar í NBA-körfuboltanum en hann skoraði 44 stig í sigurleik liðs síns gegn Boston, 124-117. Þá fóru leikmenn Houston á kostum gegn Dallas á heimavelli sínum og unnu 107-76 sigur. Yao Ming skoraði 36 stig. Körfubolti 5.11.2006 10:51
Það á að fangelsa svona aumingja Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, er öskuvondur út í þann sem henti smápeningi úr stúkunni í viðureign Fulham og Everton í gær sem hafnaði á höfði Claus Jensen, markaskorara Fulham í leiknum. Coleman segir viðkomandi vera heigul sem eigi heima í fangelsi. Enski boltinn 4.11.2006 20:21
Barcelona náði aðeins jafntefli Ríkjandi Spánarmeistarar Barcelona náði aðeins jafntefli gegn Deportivo í stórleik gærkvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Lokatölur urðu 1-1. Fótbolti 5.11.2006 10:22
Zlatan gefur kost á sér á nýjan leik Zlatan Ibrahimovich hefur náð sáttum við Lars Lagerback, þjálfara sænska landsliðsins í fótbolta, og aðra forkólfa sænska knattspyrnusambandsins, og mun hann snúa aftur í sænska liðið í næsta leik þess. Fjölmiðlar á Ítalíu greindu frá þessu í gær. Fótbolti 4.11.2006 20:04
Kuyt er frábær liðsmaður Hollenski framherjinn Dirk Kuyt fékk mikið hrós frá stjóra sínum, Rafael Benitez, eftir leikinn gegn Reading í dag. Liverpool vann 2-0 og skoraði Kuyt bæði mörkin. Enski boltinn 4.11.2006 20:12
Þú ert ennþá of feitur Brasilíski framherjinn Ronaldo er ennþá of feitur að mati þjálfara Real Madrid, Fabio Capello. Ítalski þjálfarinn segir að það verði ekki fyrr en nokkur kíló séu farin til viðbótar sem hann geti farið að gera tilkall til byrjunarliðssætis. Fótbolti 4.11.2006 20:52
Lék með Ciudad í kvöld ÓIafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lék með liði sínu Ciudad Real á ný í Evrópukeppninni í kvöld eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í özl síðustu vikur. Ólafur skoraði þrjú mörk í 32-25 sigurleik spænsku Evrópumeistaranna á Pick Szeged frá Ungverjalandi. Handbolti 4.11.2006 20:46
Við erum í rosalegu formi Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, segist finna mikinn meðbyr með sínu liði þessa dagana og miðað við andann og stemninguna í hópnum segist hann handviss um að lærisveinar sínir muni koma til með að berjast um titla í vetur. Enski boltinn 4.11.2006 20:05
Man. Utd. heldur sínu striki Manchester United heldur sínu striki í ensku úrvalsdeildinni og er nú komið með 28 stig á toppi deildarinnar eftir sannfærandi 3-0 sigur á Portsmouth á Old Trafford í dag. Liverpool sigraði Reading, 2-0, en Bolton tapaði óvænt á heimavelli fyrir Wigan. Enski boltinn 4.11.2006 17:10
Ívar, Brynjar og Hermann í byrjunarliðinu Ívar Ingimarsson er fyrirliði Reading sem mætir Liverpool á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Brynjar Björn Gunnarsson er sömuleiðis í byrjunarliðinu, sem hægri bakvörður, og þá er Hermann Hreiðarsson í vörn Charlton sem tekur á móti Man. City. Enski boltinn 4.11.2006 15:25
Allir þjálfarar vildu hafa Carragher í sínu liði Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að Jamie Carragher sé leikmaður sem allir þjálfarar vildu hafa í sínu liði. Benitez hrósar leikmanninum í hástert en hann leikur sinn 300. leik fyrir Liverpool þegar það tekur á móti Reading í dag. Enski boltinn 4.11.2006 11:17
Hefur rætt við stjórnarformann West Ham Eggert Magnússon, formaður KSÍ, ræddi við Terry Brown, stjórnarformann West Ham, í gær um hugsanlega yfirtöku fjárfestingarhóps undir hans stjórn á Lundúnarfélaginu. Fundurinn þykir gefa sterkar vísbendingar um að Eggert sé ennþá með í baráttunni um yfirtöku á félaginu. Íslenski boltinn 4.11.2006 13:38
Er ekki fúll yfir því að sitja á bekknum Portúgalski markvörðurinn Hilario hjá Chelsea segist reiðubúinn að gefa sæti sitt í byrjunarliði liðsins til Ítalans Carlo Cudicini, sem er orðinn heill heilsu eftir að hafa fengið heilahristing í leik gegn Reading fyrir nokkrum vikum. Chelsea tekur á móti Tottenham á morgun. Enski boltinn 4.11.2006 11:06
Cassano á að biðjast afsökunar Predrag Mijatovic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid og fyrrum fyrirliði liðsins, telur að Antonio Cassano skuldi þjálfara sínum og samherjum afsökunarbeiðni fyrir hegðan sína eftir að hafa verið skilinn eftir utan leikmannahópsins um síðustu helgi. Fótbolti 4.11.2006 10:56
Puyol ekki með vegna andláts föður Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona, hefur dregið sig út úr leikmannahópi Barcelona fyrir leikinn gegn Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld, eftir að faðir hans lést í gær. Fótbolti 4.11.2006 10:47
Logi og Ásgeir heitir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk. Handbolti 4.11.2006 10:42
Bryant með 23 stig í fyrsta leik Kobe Bryant skoraði 23 stig í sínum fyrsta leik fyrir LA Lakers á tímabilinu þegar liðið bar sigurorð af Seattle, 118-112. LA Lakers hefur unnið alla þrjá leiki sína það sem af er leiktíð. Körfubolti 4.11.2006 10:31
Ætlar að taka vel á móti Wenger Alan Pardew segist ekki hafa neitt á móti Arsene Wenger knattspyrnustjóra Arsenal og segist ætla að taka vel á móti honum þegar Arsenal mætir West Ham á Upton Park um helgina. Pardew gagnrýndi lið Arsenal fyrir að vera með eintóma útlendinga í liðinu á síðustu leiktíð og féllu þessi ummæli í mjög grýttan jarðveg. Enski boltinn 3.11.2006 20:14
Gefur leikmönnum átta vikur til að sanna sig Martin O´Neill hefur sent leikmönnum sínum þau skilaboð að þeir hafi tvo mánuði til að sanna tilverurétt sinn í liðinu, en það er tíminn fram að því þegar leikmannamarkaðurinn opnar á ný. Enski boltinn 3.11.2006 20:03
Redknapp ætlar að versla í janúar Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, ætlar sér að versla sér varnarmenn til að styrkja hóp sinn í janúar til að koma í veg fyrir meiðslakrísu eins og þá sem hann stendur frammi fyrir skömmu fyrir mikilvægan leik gegn Manchester United um helgina. Enski boltinn 3.11.2006 19:54
Drogba framlengir við Chelsea Framherjinn sterki Didier Drogba hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistara Chelsea um fjögur ár og er því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Drogba er 28 ára gamall og var keyptur til Chelsea fyrir 24 milljónir punda árið 2004. Hann hefur skorað 10 mörk í 15 leikjum á leiktíðinni. Enski boltinn 3.11.2006 19:17
San Antonio - Cleveland í beinni á Sýn í kvöld Leikur San Antonio Spurs og Cleveland Cavaliers verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan eitt eftir miðnætti. Bæði lið hafa spilað einn leik til þessa í deildinni og höfðu þau bæði sigur. Körfubolti 3.11.2006 18:17
Líkir rannsókninni við yfirheyrslur KGB Paul Jewell segist hafa verið óttasleginn þegar hann var yfirheyrður af fyrrverandi lögreglumönnum í tengslum við rannsóknina sem stendur yfir vegna gruns um spillingu í enska boltanum. Enski boltinn 3.11.2006 16:03
Það er mitt mál hvenær ég hætti Sir Alex Ferguson lét fjölmiðlamenn heyra það á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður hvort hann ætlaði ekki að fara að hætta störfum í tilefni þess að á mánudag eru 20 ár liðin frá því hann tók við Manchester United. Enski boltinn 3.11.2006 15:55