Erlendar
100 101 102 103 104 105 106 107 108 … 264 ›
Phoenix lagði LA Lakers Þrír leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA deildinni liðna nótt. LA Lakers tapaði fyrsta leik sínum til þessa þegar liðið lá fyrir Phoenix Suns í Las Vegas. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland. Körfubolti 16.10.2006 16:15
Petr Cech verður frá í hálft ár Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea gæti orðið frá keppni í allt að hálft ár að mati lækna sem framkvæmdu aðgerð á höfuðkúpubroti hans um helgina. Stephen Hunt, leikmaður Reading, hefur sent Cech skriflega afsökunarbeiðni fyrir að valda meiðslunum og stjóri Bolton hefur boðist til að lána Chelsea markvörð. Enski boltinn 16.10.2006 14:46
Ætlar að spila aftur fyrir Rangers Gennaro Gattuso hjá AC Milan segist ákveðinn í að spila aftur með liði Glasgow Rangers á ný áður en hann leggur skóna á hilluna, en þessi magnaði miðjumaður var aðeins 19 ára gamall þegar Walter Smith keypti hann frá Perugia á sínum tíma og gaf honum tækifæri með Rangers. Fótbolti 15.10.2006 17:29
LA Lakers - Phoenix í beinni Viðureign LA Lakers og Phoenix Suns á undirbúningstímabilinu í NBA verður sýnd í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Digital Ísland í kvöld. Leikurinn fer fram í Las Vegas og hefst klukkan hálf tvö eftir miðnætti. Körfubolti 15.10.2006 19:11
Viðræður hafnar um nýjan samning Framherjinn Wayne Rooney er sagður vera kominn í viðræður við forráðamenn Manchester United um framlengingu á samningi sínum. Enn eru nokkur ár eftir af samningnum sem hann undirritaði þegar hann gekk í raðir félagsins frá Everton árið 2004 fyrir 27 milljónir punda. Enski boltinn 15.10.2006 19:22
Barcelona lagði Sevilla Barcelona lagði Sevilla 3-1 í spænska boltanum í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona. Ronaldinho skoraði tvö mörk, annað úr víti og Leo Messi bætti við þriðja marki Katalóníumanna sem skutust á toppinn með sigrinum. Fótbolti 15.10.2006 19:06
Betis - Deportivo í beinni Nú klukkan 19:00 hefst leikur Real Betis og Deportivo í spænska boltanum og er hann sýndur beint á Sýn. Betis er í fallsæti með aðeins 3 stig eftir 5 leiki, en Deportivo hefur fengið 10 stig og er í 7. sæti. Fótbolti 15.10.2006 18:59
Baulað á Jackson í Indiana Átta æfingaleikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. Áhorfendur í Indiana bauluðu á vandræðagemlinginn Stephen Jackson þegar hann kom inn sem varamaður í tapleik gegn Utah Jazz. Körfubolti 15.10.2006 18:13
Gummersbach vann Lubbecke Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu góðan 37-31 útisigur á Lubbecke. Róbert Gunnarsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach og Guðjón Valur Sigurðsson 5. Þórir Ólafsson skoraði 2 mörk fyrir Lubbecke en Birkir Ívar Guðmundsson kom ekki við sögu í leiknum. Sport 15.10.2006 17:46
Inter á toppinn Inter Milan skellti sér á toppinn í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag með 2-1 sigri á Catania í dag. Það var Dejan Stankovic sem skorað bæði mörk Inter í dag og eru ítölsku meistararnir þar með komnir með 14 stig eftir 6 leiki og hafa 2 stiga forskot á Roma sem tapaði 1-0 úti gegn Reggina. Fótbolti 15.10.2006 17:39
Bolton í þriðja sætið Bolton skaust í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í dag með því að leggja Newcastle á útivelli 2-1. Newcastle hafði undirtökin framan af og Shola Ameobi kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik. El Hadji Diouf skoraði hinsvegar tvö mörk á innan við tveimur mínútum í þeim síðari og gerði út um leikinn fyrir Bolton. Enski boltinn 15.10.2006 17:24
RIbery vill fara til Arsenal Umboðsmaður franska miðjumannsins Franck Ribery segir leikmanninn hafa fullan hug á að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal í framtíðinni. Enski boltinn 15.10.2006 16:00
Óttast að missa starfið Alan Pardew viðurkennir að hann óttist mjög að verða vikið úr starfi hjá West Ham eftir að liðið seig niður í fallbaráttuna í gær með 2-0 tapi gegn Portsmouth. Enski boltinn 15.10.2006 15:40
Grönholm sigraði í Tyrklandi Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford sigraði örugglega í Tyrklandsrallinu sem fram fór um helgina og hefur því saxað á forskot heimsmeistarans Sebastien Loeb í stigakeppni ökumanna til heimsmeistara. Sport 15.10.2006 15:31
Cech fór í aðgerð Tékkneski markvörðurinn Petr Cech hjá Chelsea fór í aðgerð í dag vegna höfuðkúpubrots sem hann varð fyrir í leiknum gegn Reading í gærkvöldi. Enski boltinn 15.10.2006 14:47
Grönholm á sigurinn vísan Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford Focus hefur mjög gott forskot eftir tvo fyrstu keppnisdagana í Tyrklandsrallinu og útlit er fyrir að hann nái að saxa vel á forskot heimsmeistarans Sebastien Loeb. Sport 15.10.2006 02:19
Getafe hefur tak á Real Madrid Stórliðið Real Madrid reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við granna sína í smáliðinu Getafe í spænska boltanum í gær og tapaði 1-0 á útivelli. Eins og til að fullkomna ömurlegt kvöld fyrir Real, lék framherjinn Ronaldo reka sig af velli fyrir kjaftbrúk í lok leiksins og verður því í banni í næsta leik þegar Real mætir Barcelona. Fótbolti 15.10.2006 02:09
Cech var á sjúkrahúsi í nótt Petr Cech, aðalmarkvörður Chelsea, varði síðustu nótt á sjúkrahúsi eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg í upphafi leiksins gegn Reading í gær, en Carlo Cudicini var leyft að fara heim að lokinni rannsókn í gærkvöldi. Enski boltinn 15.10.2006 01:43
Enn vinnur Calzaghe Joe Calzaghe varði í gær IBF og WBO titla sína í millivigt hnefaleika þegar hann vann sigur á Sakio Bika á stigum í bardaga þeirra í Manchester á Englandi. Sigur Calzaghe var nokkuð öruggur þegar upp var staðið, en þessi mikli meistari þurfti að hafa mikið fyrir honum. Sport 15.10.2006 01:50
Æfur yfir meiðslum markvarða sinna Jose Mourinho var afar ósáttur við framgöngu Stephen Hunt í leik Reading og Chelsea í dag, en honum þótti Hunt brjóta gróflega á Petr Cech með þeim afleiðingum að markvörðurinn lenti á sjúkrahúsi líkt og félagi hans Carlo Cudicini. Enski boltinn 15.10.2006 01:07
Ósáttur við færin sem fóru forgörðum Martin Jol þurfti enn að skammast yfir því hvað leikmenn hans fóru illa með færi sín þegar liðið gerði jafntefli við Aston Villa á útivelli í dag. Enski boltinn 14.10.2006 18:28
Telur að Watford muni halda sér í deildinni Arsene Wenger segir sitt lið hafa þurft á öllu sínu að halda í dag þegar það lagði Watford 3-0 í ensku úrvalsdeildinni. Hann segir að þó Watford hafi enn ekki unnið leik í deildinni, hafi það alla burði til að halda sér uppi í vor. Enski boltinn 14.10.2006 17:56
Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. Handbolti 14.10.2006 18:34
Dýr sigur hjá meisturunum Englandsmeistarar Chelsea unnu mikilvægan 1-0 útisigur á Reading í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Ívar Ingimarsson tryggði Chelsea sigurinn með sjálfsmarki í blálokin á fyrri hálfleik, en sigurinn gæti átt eftir að reynast liði Chelsea mjög dýr. Enski boltinn 14.10.2006 18:14
Bremen valtaði yfir Bochum Werder Bremen skellti sér á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með því að valta yfir Bochum á útivelli 6-0. Frábært lið Bremen skoraði fimm mörk á síðasta hálftíma leiksins, en á meðan vann Bayern góðan sigur á Hertha Berlín 4-2. Fótbolti 14.10.2006 17:15
Ívar Ingimarsson í sviðsljósinu Íslenski landsliðsmaðurinn Ívar Ingimarsson hefur sannarlega verið í sviðsljósinu í leik Reading og Chelsea, en gestirnir hafa 1-0 forystu þegar flautað hefur verið til leikhlés. Ívar, sem ber fyrirliðabandið hjá Reading, varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir aukaspyrnu Frank Lampard undir lok hálfleiksins, en áður hafði Ívar skallað í slá á eigin marki. Enski boltinn 14.10.2006 17:06
Ferguson og Jewell hrósa Rooney Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og Paul Jewell, stjóri Wigan, skiptust á að hrósa Wayne Rooney fyrir frammistöðu hans í sigri United í dag. Rooney náði ekki að skora mark, en leikur hans þótti bera vitni um að hann væri að finna sitt fyrra form. Enski boltinn 14.10.2006 16:13
Ívar í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson er að venju í byrjunarliði Reading í dag þegar liðið tekur á móti Englandsmeisturum Chelsea í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Brynjar Björn Gunnarsson er á varamannabekknum. Enski boltinn 14.10.2006 16:08
Liverpool og Blackburn skildu jöfn Leikjunum sex sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Liverpool þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Blackburn á heimavelli sínum, en Arsenal vann auðveldan sigur á Watford 3-0. Enski boltinn 14.10.2006 15:58
Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. Handbolti 14.10.2006 15:17