Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar 2026 í Mílanó og Cortina

Vetrarólympíu­leikar fóru fram í Mílanó og Cortina d'Ampezzo á Ítalíu dagana 6. til 22. febrúar 2026.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á met­tíma

Skíðagöngukappinn Johannes Klæbo sópaði til sín sex gullverðlaunum á Vetrarólympíuleikunum og öðlaðist heimsfrægð. Einna helst vakti hann athygli fyrir ótrúlegan hraða í miklum halla í sprettgöngunni, en hversu hratt fór hann og er hægt að leika þetta afrek eftir?

Sport
Fréttamynd

Sænsku konurnar sigursælustu konur Ólympíu­leikanna

Norðmenn unnu vissulega langflest verðlaun á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en það voru norsku karlarnir sem héldu upp verðlaunasöfnun Noregs. Þetta kemur vel í ljós þegar bara eru skoðuð verðlaun kvenfólksins á leikunum.

Sport
Fréttamynd

Fór á skeljarnar og vann svo Ólympíugull

Daginn áður en hún vann Ólympíugull í íshokkí fór Hilary Knight á skeljarnar í Mílanó og bað kærustu sinnar, skautahlaupsstjörnunnar Brittany Bowe, sem sagði já eins og sjá má í myndbandi sem þær birtu á samfélagsmiðlum.

Sport
Fréttamynd

„Hægt að ná langt með því að vera hress og skemmti­legur“

Skíða­kappinn Jón Erik Sigurðs­son er nú kominn heim eftir frábært gengi á Vetrarólympíu­leikunum. Þar vakti hann at­hygli fyrir jákvætt og hressandi viðhorf en þurfti einnig að leiðrétta mis­skilning sem fór á kreik þegar sumir töldu hann hrein­lega vera að skemmta sér of mikið. 

Sport
Fréttamynd

Fékk skauta í augað á Ólympíu­leikunum

Hræðilegt slys varð í skautakeppni á stuttri braut á Vetrarólympíuleikunum á föstudag. Nokkrir keppendur rákust saman og féllu og pólska skautakonan Kamila Sellier fékk skauta í augað.

Sport