Cristiano Ronaldo með áhrifamikla kveðju til Lindsey Vonn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. febrúar 2026 23:15 Cristiano Ronaldo var virkur í athugasemdum hjá bandarísku skíðakonunni Lindsey Vonn. Getty/Mohammed Saad/@lindseyvonn Cristiano Ronaldo, markahæsti leikmaður allra tíma sendi bandarísku skíðakonunni Lindsey Vonn skilaboð á samfélagsmiðlum.
Vonn hefur verið að segja fylgjendum sínum frá martröð sinni eftir fótbrotið á Vetrarólympíuleikunum og öllum aðgerðunum sem hún hefur þurft að gangast undir síðan þá til að bjarga fæti sínum. Vonn hlaut flókið fótleggsbrot í ljótri byltu í brunkeppni Ólympíuleikanna í Cortina d'Ampezzo sunnudaginn 8. febrúar. Það gerðist aðeins rúmri viku eftir að hún sleit krossband í byltu í Crans Montana. Eftir byltuna á Ólympíuleikunum fór bandaríska ofurstjarnan í fjórar aðgerðir á sjúkrahúsinu í Treviso á Ítalíu áður en hún var flutt heim til Bandaríkjanna þar sem hún fór síðan í sex klukkutíma aðgerð. Í myndbandi og texta sem birtur var á Instagram á mánudag segir Vonn nánar frá þeim dramatísku atburðum sem hafa átt sér stað undanfarnar vikur. Hún þakkar sérstaklega einum lækni. „Dr. Tom Hackett bjargaði fætinum á mér frá aflimun. Hann bjargaði mér. Ég tala alltaf um að allt gerist af ástæðu og ef ég hefði ekki slitið krossbandið hefði Tom ekki verið þarna til að bjarga fætinum á mér. Ég er mjög þakklát,“ segir Vonn í myndbandinu. Cristiano Ronaldo var virkur í athugasemdum við færslu Vonn og sendi henni áhrifamikil skilaboð. „Meistarar eru skilgreindir út frá bæði sigurstundum þeirra en einnig þegar þeir neita að gefast upp. Fjöllin sem þú klefist og voru aldrei hærri en styrkurinn sem þú býrð yfir innanbrjósts. Haltu áfram að berjast. Goðsagnir standa alltaf upp,“ skrifaði Ronaldo. Lindsey Vonn svaraði kveðjunni eins og sjá má líka með því að fletta myndinni hér fyrir neðan. „Það að þetta komi frá þér skiptir mig miklu máli,“ skrifaði Vonn. View this post on Instagram A post shared by 433 (@433)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Sádiarabíski boltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira