Sveitarstjórnarmál
31 32 33 34 35 36 37 38 39 … 39 ›
Sjálfkjörið í fjórum sveitarfélögum Kosið verður á milli tveggja eða fleiri lista í 54 af 76 sveitarfélögum í kosningunum 29. maí. Alls eru 185 listar í framboði og sitja á þeim 2.846 manns. Innlent 19.5.2010 22:26
Nýjar bókhaldsreglur blása út eigið fé sveitarfélaganna Gunnlaugur Júlíusson, sviðstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands sveitarfélaga, hefur sent stjórn sambandsins harða gagnrýni á vinnubrögð reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga. Nefndin ákvað 9. apríl síðastliðinn að breyta reikningsskilareglum hvað varðar lóðir og lönd sveitarfélaga. Innlent 18.5.2010 23:09
Flutningur á verkefnum frá ríki til sveitarfélaga þoli enga bið Samband íslenskra sveitarfélaga vill að hrundið verði strax af stað heildstæðum flutningi á verkefnum á sviði velferðar-, félags- og menntamála frá ríki til sveitarfélaga. Fram kemur í ályktun sem samþykkt var á landsþingi sambandsins í dag að undirbúningur flutnings á þjónustu við aldraða, fatlaða og rekstur framhaldsskóla og heilsugæslu þoli enga bið. Innlent 23.3.2007 15:49
Bæjarstjórn Akraness vill tvöfalda Vesturlandsveg Bæjarstjórn Akraness skorar á Alþingi og ríkisstjórnina að tryggja fjarmagn til að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og undirbúa stækkun Hvalfjarðarganga í beinu framhaldi. Innlent 13.12.2006 09:59
Kostnaður við Sundabrautarjarðgöng um 16 milljarðar Heildarkostnaður við nýja tillögu að jarðgöngum vegna Sundabrautar er um 16 milljarðar króna sem er fjórum milljörðum króna meira en kostaður við svokallaða innri leið eða eyjalausn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um jarðgangalausn fyrir Sundabraut sem kynnt var á samráðsfundi með íbúasamtökum Grafarvogs og Laugardals í dag. Innlent 8.12.2006 16:09
Ragnheiður nýr bæjarstjóri í Árborg Ragnheiður Hergeirsdóttir verður bæjarstjóri nýs meirihluta Samfylkingarinnar, Vinstri-grænna og Framsóknarflokks í Árborg. Gengið hefur verið frá samningi um samstarf flokkanna. Viðræður hafa staðið yfir frá því á föstudagskvöld eftir að það slitnaði upp úr samstarfi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Innlent 4.12.2006 14:30
Nýr meirihluti að myndast Allt stefnir nú í að sjálfstæðismenn, sem voru ótvíræðir sigurvegarar síðustu bæjarstjórnarkosninga í Árborg, verði í minnihluta í bæjarstjórn það sem eftir lifir af kjörtímabilinu. Innlent 4.12.2006 11:57
Nýtt hönnunarsafn Íslands verður byggt í Garðabæ Nýtt hönnunarsafn Íslands verður byggt í Garðabæ samkvæmt samningi sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálráðherra skrifuðu undir með Gunnari Einarssyni bæjarstjóra Garðabæjar í dag. Í samningnum um rekstur menntamálaráðuneytisins og Garðabæjar sem tekur gildi 1. janúar 2007 er kveðið á um að Garðabær taki við rekstri og stjórn Hönnunarsafns Íslands. Safnið mun starfa sem stofnun á vegum bæjarfélagsins. Innlent 1.12.2006 15:45
Bolungarvík og Ísafjörður sameina tæknideildir Bæjarstjórar Bolungarvíkurkaupstaðar og Ísafjarðarbæjar, þeir Grímur Atlason og Halldór Halldórsson, undirrita samning um sameiningu tæknideildanna bæjarfélaganna. Síðustu mánuði hafa staðið yfir viðræður milli um sameininguna eða samstarf um reksturinn. Innlent 1.12.2006 12:38
Kona bæjarstjóri í Eyjum í fyrsta sinn Rut Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyjabæjar, gegnir þessa dagana starfi bæjarstjóra í fjarveru Elliða Vignissonar, sem er í leyfi til fimmta desember. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net. Rut er fyrsta konan sem gegnir starfi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Innlent 29.11.2006 16:32
Framkvæmdastjóri SI leggst gegn atkvæðagreiðslu um álversstækkun Sveini Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, finnst ekki góð hugmynd að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík. Hann segir að kjósendur hafi engar forsendur til að taka efnislega afstöðu. Menn greiði atkvæði á þeirri forsendu, að öruggast sé að vera á móti því sem þeir þekki ekki. Sveinn segir að ef auka eigi íbúalýðræði í reynd, væri rétt að leyfa almenningi ap hafa skoðun og jafnvel áhrif á skipulagsmál almennt. Innlent 23.11.2006 14:35
Fékk 250 þúsund króna hækkun á mánuði Launakostnaður vegna bæjarstjóra Árborgar er 250 þúsund krónum meiri en á síðasta kjörtímabili, auk ótakmarkaðs aðgangs að bíl á vegum sveitarfélagsins. Samfylkingin segir þetta ganga í berhögg við kosningaloforð Sjálfstæðisflokksins um sparnað í fjármálum sveitarfélagsins. Innlent 24.8.2006 12:02
Bergur Elías Ágústsson ráðinn sveitarstjóri Byggðaráð sveitarfélagsins Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Berg Elías Ágústsson í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. Auglýst var eftir sveitarstjóra og bárust 13 umsóknir en tvær voru dregnar til baka. Eftir umsögn utanaðkomandi ráðningarþjónstu var einn umsækjendanna metinn hæfur en niðurstaða meirihluta byggðaráðs var að hafna öllum umsóknum. Í framhaldi af því var ákveðið að ráða Berg Elías í starfið. Innlent 3.8.2006 17:53
Allur úrgangur endurunninn Moltugerð á Sauðárkróki í tilraunaskyni gaf það góða raun að innan tíðar verður farið að vinna 18 rúmmetra af úrgangi á dag í þremur stórum tromlum. Hlutafélagið Jarðgerð stendur fyrir því að nýta með þessum hætti allan lífrænan úrgang sem til fellur hjá sveitarfélaginu og nágrenni, sem ekki er hægt að nýta í fóðurgerð. Innlent 30.7.2006 20:21
Hefur strax misst sætið sitt Einn sveitarstjórnarmanna N-listans í Djúpavogshreppi hefur misst nýfengið sæti sitt. Í sveitarstjórnarkosningunum í lok maí voru fjórði maður N-lista og annar maður L-lista jafnir. Hlutkesti var kastað um sætið og fékk þá N-listinn sætið. L-listinn kærði úrslitin og komst kærunefnd að þeirri niðurstöðu í fyrradag, að eitt ógilt atkvæði hefði í raun og veru verið gilt og það atkvæði tilheyrði L-listanum. Sem þýðir að L-listinn fékk sinn annan mann inn. Innlent 16.6.2006 15:02
Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar áfram við völd Sjálfstæðisflokkurinn og Samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabilið 2006-2010. Á kjörtímabilinu verður lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara, umhverfismál, fjölskylduvænt samfélag, markaðssetningu sveitarfélagsins, atvinnumál, ábyrga fjármálastjórn, ferða- og samgöngumál. Innlent 5.6.2006 12:23
Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál. Innlent 3.6.2006 11:56
Nýr bæjarstjóri á Hornafirði Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið. Innlent 31.5.2006 16:11
Sjálfstæðismenn og frjálslyndir mynda meirihluta á Akranesi Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri. Innlent 30.5.2006 08:24
Meirihlutaviðræður halda áfram í dag Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð. Innlent 30.5.2006 06:53
Sjálftæðismenn og Frjálslyndir funda á Akranesi í dag Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn. Innlent 29.5.2006 10:26
Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn áfram í meirihluta í Kópavogi Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn í Kópavogi náðu undir miðnætti samkomulegi um að halda meirihluta samstarfi sínu áfram í bæjarstjórn. Innlent 29.5.2006 07:01
Segir slit R-listans hafa verið mistök Vel kemur til greina að endurvekja Reykjavíkurlistann fyrir borgarstjórnarkosningarnar árið 2010, að mati Katrínar Jakobsdóttur, varaformanns Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs. Þetta kom fram í umræðum forystumanna stjórnmálaflokkanna á NFS og Stöð 2 í gærkvöldi. Innlent 29.5.2006 06:42
Gunnar Birgisson áfram bæjarstjóri Oddvitar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi náðu nú í kvöld samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili. Samkomulag er um að Gunnar I. Birgisson verði bæjarstjóri og að Ómar Stefánsson, oddviti Framsóknarflokks verði formaður bæjarráðs. Málefnasamningur liggur fyrir og veðrur hann lagður fyrir fulltrúaráð flokkanna á miðvikudag. Innlent 28.5.2006 23:36
Tekur aftur við oddvitahlutverkinu Eyþór Arnalds segist líta á það sem traustsyfirlýsingu við sig hversu margir kusu Sjálfstæðisflokkinn í Árborg. Hann ætlar að taka strax til starfa með bæjarstjórnarflokki sjálfstæðismanna í Árborg. Innlent 28.5.2006 19:45
Sigur Á-listans staðfestur Kjörstjórn á Álftanesi lauk fyrir skemmstu endurtalningu á atkvæðum sem greidd voru í sveitarstjórnarkosningunum í gær. Endurtalningin staðfesti sigur Álftaneslistans. Sjálfstæðismenn fóru fram á endurtalningu vegna þess hversu mjótt var á munum en aðeins munaði þremur atkvæðum þegar talningu lauk í gærkvöldi. Innlent 28.5.2006 18:20
Meirihlutinn hélt óvænt velli Meirihlutinn hélt á Ísafirði, þvert á það sem skoðanakannanir höfðu gefið ástæðu til að ætla. Bæjarstjórinn og oddviti Sjálfstæðismanna vill halda áfram samstarfinu við Framsóknarflokkinn undir sinni forystu. Innlent 28.5.2006 08:44
Straumurinn lá til vinstri Straumur kjósenda lá til vinstri í nótt í stærstu sveitarfélögum landsins þar sem Vinstri-grænir og Samfylkingin bættu við sig fjölda sveitarstjórnarmanna. Sjálfstæðismenn bættu lítillega við sig en Framsóknarmenn töpuðu miklu. Innlent 28.5.2006 08:30
Atvinnumál og velferðarmál í öndvegi Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn á Hornafirði í komandi sveitastjórnakosningnum. Bæði Framóknarmenn og Sjálfstæðismenn spá því að Samfylkingin muni ná tveimur mönnum inn í sveitastjórn. Innlent 24.5.2006 20:15
Sjálfstæðismenn til valda í Kópavogi Sjálfstæðisflokkurinn næði meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs ef kosið yrði nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar fyrir NFS. Sjálfstæðismenn fengju 46,8 prósent atkvæða og það dygði þeim til að fá sex bæjarfulltrúa af ellefu í Kópavogi. Innlent 23.5.2006 19:25