
Franski boltinn

Heimsmeistari tekur við af heimsmeistara
Laurent Blanc var á dögunum rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Lyon. Ítalski þjálfarinn og fyrrum leikmaðurinn Fabio Grosso tekur við af honum.

Verratti genginn til liðs við Aron Einar og félaga í Al-Arabi
Ítalski miðjumaðurinn Marco Verratti hefur gengið til liðs við Al-Arabi í Katar. Hann hittir þar Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliða Íslands, sem hefur leikið með félaginu síðan 2019.

Munnlegt samkomulag um félagaskipti í höfn
Marco Veratti virðist vera á leið til katarska félagsins Al-Arabi. Félag hans PSG og katarska félagið hafa náð munnlegu samkomulagi um félagaskipti Ítalans.

Teknir á teppið af sínum eigin stuðningsmönnum eftir leik í gær
Leikmenn franska úrvalsdeildarliðsins Lyon í fótbolta fengu óánægju stuðningsmanna félagsins beint í æð eftir að hafa lotið í lægra haldi gegn Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain nokkuð örugglega á heimavelli.

Mbappé á skotskónum í stórsigri PSG
Eftir að hafa byrjað tímabilið utan hóps hefur Kylian Mbappé heldur betur reimað á sig markaskóna með PSG en hann skoraði tvö mörk í öruggum sigri liðsins á botnliði Lyon í kvöld.

Fenginn frítt og seldur á tæpa fjórtán milljarða ári síðar
Ákvörðun Eintracht Frankfurt að semja við franska framherjann Randal Kolo Muani sumarið 2022 hlýtur að vera ein besta ákvörðun í sögu félagsins. Leikmaðurinn var nýverið seldur til París Saint-Germain á 95 milljónir evra eða tæpa 14 milljarða íslenskra króna.

Hákon Arnar skipt út í fyrri hálfleik í tapi Lille
Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille í tapi liðsins gegn Lorient í dag. Lorient fór með sigur af hólmi og fyrsta tap Lille í deildinni því staðreynd.

Þriðju stóru kaup Manchester City staðfest
Manchester City hefur staðfest kaupin á Jeremy Doku frá franska liðinu Rennes. Doku skrifar undir fimm ára samning við enska liðið.

Lyngby í efri hlutanum eftir góðan sigur
Íslendingalið Lyngby vann 1-0 heimasigur á Randers í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er sem stendur í efri hluta deildarinnar. Virðist sem lærisveinar Freys Alexanderssonar ætli sér ekki að endurtaka leik síðasta tímabils og vera í fallbaráttu allt til lokadags.

Mbappé úr skammakróknum en PSG tókst samt ekki að vinna
Kylian Mbappé er kominn úr skammakróknum í París en samt sem áður tókst Frakklandsmeisturum París Saint-Germain ekki að landa sigri gegn Toulouse í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Útskrifaður af sjúkrahúsi og bata hans lýst sem kraftaverki
Sergio Rico, markvörður franska stórliðsins Paris Saint-Germain hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi en þar hefur hann dvalið síðan undir lok maí eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg.

Neymar segist vilja endurskrifa íþróttasöguna
Brasilíska stórstjarnan Neymar gekk í gær í raðir sádiarabíska liðsins Al-Hilal frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain. Hann segist vilja prófa sig fyrir utan Evrópu og um leið eiga þátt í því að endurskrifa íþróttasöguna.

Mbappé sagður ræða nýjan samning við PSG eftir óvænta U-beygju
Kylian Mbappé mætti brosandi á æfingu með félögum sínum í Paris Saint Germain í gær eftir að hafa áður verið bannað að æfa með aðalliðinu.

Schmeichel í ensku úrvalsdeildina á ný?
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel er orðaður við bæði Chelsea og Nottingham Forest en dvöl hans hjá Nice í Frakklandi virðist vera á enda runnin.

Mbappé fær að æfa með liðsfélögum sínum á ný
Einhver þíða virðist vera komin í samskipti Kylian Mbappé og PSG en samkvæmt tilkynningu frá félaginu í morgun hefur Mbappé verið hleypt inn í æfingahóp liðsins á ný.

Slök byrjun með stjörnurnar í straffi
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain fara ekki vel af stað í frönsku úrvalsdeildinni. Markalaust jafntefli niðurstaðan í leik þar sem leikmenn utan liðsins vekja meiri athygli en þeir innan hans.

Franskur landsliðsmaður ákærður fyrir nauðgun
Knattspyrnumaðurinn Wissam Ben Yedder, sem á að baki 19 landsleiki fyrir Frakkland, hefur verið ákærður fyrir nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisofbeldi. Þetta staðfestir saksóknari í Nice við fjölmiðla.

Faðir Neymars kallaði eitt frægasta íþróttablað heims L'Efake
Franska stórblaðið L'Equipe sló því upp í gærkvöldi að Brasilíumaðurinn Neymar vildi komast í burtu frá franska félaginu Paris Saint-Germain. Fréttin reiddi föður Neymars til reiði.

Neymar óskar eftir sölu og nýr sóknarmaður mættur til PSG
Luis Enrique er að setja saman nýtt lið hjá franska stórveldinu PSG.

Heldur áfram að æfa einn
Kylian Mbappe mun halda áfram að æfa einn þegar liðsfélagar hans í PSG hefja lokaundirbúning sinn fyrir frönsku úrvalsdeildina í dag.

Brotist inn hjá fyrrverandi Arsenal-manni meðan konan var heima
Innbrotsþjófar létu greipar sópa heima hjá Matteo Guendouzi, fyrrverandi leikmanni Arsenal og núverandi leikmanni Marseille, meðan hann spilaði leik. Eiginkona hans var heima þegar innbrotið átti sér stað.

Chelsea fær franskan landsliðsmiðvörð
Chelsea hefur fest kaup á franska miðverðinum Axel Diasi frá Monaco. Hann skrifaði undir sex ára samning við Chelsea sem greiddi 39 milljónir punda fyrir hann.

Mbappé neitar að ræða við Sádana
Kylian Mbappé hefur ekki minnsta áhuga á að spila fótbolta í Sádi-Arabíu og hefur neitað að ræða við forráðamenn Al Hilal.

PSG ætlar að stela Højlund af United
Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain hafa blandað sér í baráttuna um danska framherjann Rasmus Højlund sem leikur með Atalanta á Ítalíu.

Verratti bætist í hóp Arabíufara | Eyðslan yfir tvö hundruð milljónir
Ítalinn Marco Verratti hefur náð samkomulagi við Al-Hilal í Sádi-Arabíu um að spila með liðinu í úrvalsdeildinni þar í landi á komandi vetri. Hann fer til liðsins frá Paris Saint-Germain í Frakklandi.

Mbappé neitar risatilboði Al Hilal
Samkvæmt blaðamanninum, Fabrizio Romano, hefur Kylian Mbappé neitað að ræða við Sádí-arabíska félagið Al Hilal.

Sjáðu mörkin: Hákon Arnar skoraði tvö og lagði upp eitt
Hákon Arnar Haraldsson heldur áfram að blómstra á undirbúningstímabilinu með sínum nýju liðsfélögum í Lille. Hákon skoraði tvö og gaf eina stoðsendingu gegn La Havre í 3-2 sigri.

Gríska undrið segir Sádunum að kaupa sig því hann líti út eins og Mbappé
Körfuboltamaðurinn Giannis Antetokounmpo hvatti sádi-arabíska félagið Al-Hilal til að kaupa sig þar sem hann líti út eins og fótboltamaðurinn Kylian Mbappé.

Sky Sports: Chelsea, Man Utd, Tottenham, Inter og Barcelona hafa áhuga á Mbappé
Sky Sports heldur því fram að Chelsea, Manchester United, Tottenham Hotspur, Inter Milan og Barcelona hafi öll áhuga á að fá Kylian Mbappé í sínar raðir. Þá hefur verið greint frá því að Al Ahli í Sádi-Arabíu vilji gera Mbappé að dýrasta leikmanni í heimi.

PSG samþykkir tilboð Al Hilal í Mbappé
Samningsmál franska framherjan Kylian Mbappé eru áfram í brennidepli. Hann vill vera áfram hjá París Saint-Germain og fara frítt næsta sumar en félagið vill selja hann í sumar. Al Hilal frá Sádi-Arabíu hefur nú boðið 300 milljónir evra í leikmanninn (44 milljarðar íslenskra króna). Samkvæmt nýjustu fréttum hefur PSG samþykkt tilboðið.