Aprílgabb

Konungshjón á gönguskíðum, Katrín til forseta og nýtt flugfélag
Fyrirtæki, vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar gerðu sitt allra besta til þess að gabba landsmenn í dag. Uppátækin voru allavega; konungshjón á gönguskíðum, litakóðað bókasafn og nýtt flugfélag. Vísir tók saman brot af því besta.

Sólgleraugu vekja undrun á Suðurlandsbraut
Stærðarinnar sólgleraugu hafa verið sett upp við skrifstofur Sýnar á Suðurlandsbraut og vekja undrun vegfarenda. Verkefnið er gjörningur af hálfu Vodafone og hluti af markaðsherferð þeirra Sjáðu Rautt.

Love Island, kynlífstæki og pósthross
Margir hlupu eflaust apríl í gær. Fjöldi fyrirtækja tók þátt í þessari alþjóðlegu hefð; Elko sagðist ætla að opna nýja verslun á Tenerife, Krónan auglýsti grænmetisfyllt páskaegg, Pósturinn boðaði umhverfisvæna aðgerð með dreifingu pósts á hestbaki, ný göng undir Selfoss áttu að verða að veruleika og svo lengi mætti telja.

Gústi B og Rikki G opna FM95mathöll
Ný mathöll verður opnuð í JL-húsinu í vesturbæ Reykjavíkur við hátíðlega athöfn klukkan 11:30 í dag. Það eru útvarpsmennirnir Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, og Ríkharð Óskar Guðnason, betur þekktur sem Rikki G, sem eru í forsvari fyrir hana. Mun hún heita FM95Mathöll.

Rás 2 hljóp apríl með viðtali við sambandsráðgjafa hinsegin gæludýra
Þáttastjórnendur Síðdegisútvarpsins á Rás 2 hlupu heldur betur apríl í gær þegar þeir tóku viðtal við sambandsráðgjafann Sigrúnu Jónsdóttur, sem sérhæfir sig í sambandsráðgjöf fyrir eigendur hinsegin dýra.

„Þríeykið“ kiknaði undan álagi rétt fyrir meinta afhjúpun
Auglýst afhjúpun á styttu af „þríeykinu“ svokallaða í dag reyndist aprílgabb og heppnaðist með ágætum. En undirbúningur á vettvangi gekk ekki þrautalaust fyrir sig, eins og myndband hér neðar í fréttinni sýnir.

1. apríl 2022: Þríeykið gert ódauðlegt, nýr Íþróttaálfur tekur við og Sumarbúð Íslendinga rís
Fyrsti apríl, dagurinn sem fólk ýmist elskar eða elskar að hata, er nú genginn í garð enn einu sinni og strax á miðnætti hófust fyrirtæki, fréttamiðlar, fyrirtæki og einstaklingar handa við að reyna að gabba Íslendinga. Fréttastofa hefur tekið saman nokkur helstu göbb dagsins en sitt sýnist hverjum um hversu frumleg eða trúverðug þau eru í ár.

Hrekktu bæjarbúa með því kynna til leiks nýjan framboðslista
Gísli Gíslason, fyrrverandi bæjarstjóri á Akranesi, leiðir nýjan framboðslista sem býður fram í bænum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framboðið hefur fengið nafnið Akraneslistinn, listabókstafinn A og er sagður óháður flokkapólitík.

Afhjúpuðu styttu af þríeykinu
Stytta af þríeykinu svokallaða, Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni verður afhjúpuð við hátíðlega athöfn við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík í dag. Afhjúpunin hefst klukkan 10 og er almenningi boðið að vera viðstaddur. Fyrir þá sem ekki komast verður beint streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi.

1. apríl 2021: Fríar þyrluferðir, lítið notuð kynlífstæki og óvænt bóluefni í boði
Fólk og fyrirtæki keppast gjarnan við að reyna að láta fólk hlaupa apríl á fyrsta degi þessa herrans mánaðar sem er í dag. Þótt almenna reglan hafi í gegnum tíðina verið sú að reyna að fá fólk til að hlaupa apríl í orðsins fyllstu merkingu, það er í tíma og rúmi, þá hafa göbbin í ár líkt og í fyrra mörg einkennst af því að vera á rafrænu formi með einum eða örðum hætti í ljósi kórónuveirufaraldursins.

Leita að fjórða meðlimnum fyrir nýja þáttaröð af Æði
Raunveruleikaþátturinn Æði hefur slegið rækilega í gegn á Stöð 2+. Önnur þáttaröð fór í loftið nú í vetur. Sú þriðja fer í tökur í sumar og er hafin leit að fjórðu stjörnunni til að vera í burðarhlutverki.

Rándýrt aprílgabb skilar nú bullandi gróða
Íþróttafélagið Beans Lacrosse Club er ekki til en munir tengdir félaginu rjúka samt út í Bandaríkjunum þessa dagana.

590 reyndu að panta sér einstakt nammitilboð Iceland 1. apríl
Tæplega sex hundruð manns hlupu apríl í gabbi sem Vísir og verslunarkeðjan Iceland stóðu fyrir í dag.

Fjölmiðlar féllu í aprílgabbsgildru feðganna
Feðgarnir Leifur Geir Hafsteinsson og Kristján Steinn Leifsson vöktu heldur betur athygli í vikunni þegar þeir sendu frá sér stuðningsmannasöng til Víðis Reynissonar, Þórólf Guðnason og Ölmu Möller.

Eigandi Heimkaups steinhissa á vel heppnuðu aprílgabbi
Óhætt er að segja að aprílgabb vefverslunarinnar Heimkaups hafi heppnast afar vel í gær en íslenskir fjölmiðlar gerðu sér margir mat úr falskri fréttatilkynningu þess efnis að verslunarrisinn Target hefði keypt verslunina.

Hatari með síðasta aprílgabb dagsins?
Hljómsveitin Hatari, fulltrúi Íslands í Eurovision í ár, tilkynnir á síðunni Icelandic Music News að þeir ætli ekki að taka þátt í keppninni í ár. Athygli vekur að tilkynningin kemur 1. apríl.

Aprílgöbbin 2019: Leituðu að járnsæti í Öskjuhlíðinni, Brokkólíkók og fíkniefnaleitar kanína
Í dag er 1. apríl og þá keppist fólk og fyrirtæki í því að reyna fá fólk til að hlaupa 1. apríl með góðu gabbi.

Nýjasta Járnsætið gæti verið á Íslandi
Ný mynd sem birtist á Twitter-síðu Game of Thrones í gær sýnir aðstæður sem svipar til Íslands þótt ómögulegt sé að fullyrða það.

Strætóbílstjóri lét farþega hlaupa apríl
Farþegum um borð í strætisvagni, nánar tiltekið leið 11, brá heldur betur í brún í gær þegar vagnstjórinn stöðvaði skyndilega vagninn við stoppistöð á Fríkirkjuvegi og bað alla um að fara út.

Elon Musk segir Tesla á hvínandi kúpunni
Þrátt fyrir umfangsmikla páskaeggjasölu á síðustu stundu segir eigandi Tesla að fyrirtækið sé gjaldþrota...

Aprílgöbbin 2018: Mörgæsir, Maradona og lest niður Almannagjá
Vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar reyndu að gabba Íslendinga í dag með ýmsum brögðum.

Ætla að nýta diplómatísku miðana á leiki Íslands
Miðar þeir sem ráðamenn Íslands og aðilar innan stjórnsýslunnar munu ekki nýta á leiki Íslands á HM í knattspyrnu í Rússlandi í sumar koma heppnum Íslendingum að góðum notum.

Þetta voru aprílgöbbin í ár: Karnival í Helguvík og Subway-ís
Aprílgöbb ársins 2017 voru jafn fjölbreytt og þau voru fyndin.

Klámsíða hrellir notendur með drepfyndnu aprílgabbi
Vefsíðan þakkar notendum fyrir að deila myndbandinu sem klikkað var á.

Kringlugestir plataðir til að klæðast skóhlífum
Vel lukkað aprílgabb.

Viðskiptablaðið lét Moggann gabba sig
Vb.is hljóp apríl í dag þegar það greindi frá nýjum IKEA-klúbbi sem það taldi víst að verið væri að setja á laggirnar.

Þora ekki að birta aprílgabb þetta árið
Margir helstu fjölmiðlar Noregs bregða út af vananum þetta árið og sleppa því að vera með aprílgabb.

Tryggvi fann Tortólapeningana
"Sá á fund sem finnur,“ segir útilegumaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen sem datt heldur betur í lukkupottinn í gær.

Ótrúlega vel heppnað aprílgabb hjá leikmönnum Golden State | Myndband
Andre Iguodala, leikmaður NBA-meistara Golden State Warriors, fór illa með liðsfélaga sinn Festus Ezeli í tilefni af 1. apríl og myndbandið fór á flug á netinu.

Aprílgöbbin þetta árið
Að venju fylgdu fjölmiðlar og fleiri þeirri hefð að reyna að láta fólk hlaupa apríl í dag.