Reykjavík síðdegis

Þórólfur um meintan hræðsluáróður: „Þetta er ekki eitthvað sem ég er að búa til“
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir gefur lítið fyrir þá gagnrýni á orð hans um að hugsanlegt væri að inflúensa og RS-veira settu strik í reikninginn hvað varðaði afléttingar á sóttvarnatakmörkunum sé hræðsluáróður. Hann segir þau sem segja það ekki hafa kynnt sér málin nægilega vel.

Segir ótvírætt að þingið hafi lokaorðið um gildi kosninga
Formaður undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar segir alveg ótvírætt að þingið hafi síðasta orðið um það samkvæmt stjórnarskrá hvort kosningar séu gildar og hvort þingmenn séu rétt kjörnir.

Þáttastjórnendur Reykjavík síðdegis gátu ekki hætt að hlæja
Í Brennslunni á FM957 barst umræðan að broddgöltum og að því tilefni rifjaði Rikki upp óborganlegt atvik sem átti sér stað í beinni útsendingu á Bylgjunni fyrir nokkrum árum.

Eldri kynslóðin þurfi að minnka neyslu á bollasúpum og hrökkbrauði
Samkvæmt nýlegri rannsókn er það mýta að það hægi á grunnbrennslu líkamans með aldrinum. Næringarfræðingur segir að þær lífsstílsbreytingar sem komi gjarnan með aldrinum hafi meiri áhrif á aukakílóin heldur en aldurinn í sjálfu sér.

Fyrir og eftir myndir geta verið skaðlegar og valdið skömm
„Það eru einhverjir sem verða fyrir engum áhrifum af þessum myndum en í flestum tilfellum eru þessar myndir að sýna myndir af feitum líkama fyrir og svo stæltari og grennri líkama eftir.“ segir Aldís Eva Friðriksdóttir sálfræðingur um svokallaðar fyrir og eftir myndir.

Vinnuveitendur geti sagt upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu
Vinnuveitendur á almennum vinnumarkaði geta ekki skyldað starfsfólk til þess að undirgangast bólusetningu. Þeir geta þó ákveðið að segja upp starfsfólki sem hafnar bólusetningu.

Tvöföld hjátrú fylgir föstudeginum þrettánda
Föstudagurinn þrettándi hefur lengi verið talinn mikill óhappadagur. Þjóðháttafræðingurinn Símon Jón Jóhannsson segir daginn tengjast tvöfaldri hjátrú og því sé hann sérstaklega hættulegur.

Segir KSÍ hafa vitað af brotum leikmanna landsliðsins
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segir KSÍ hafa vitað af nauðgun, heimilisofbeldi og fleiri brotum leikmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Hún segist hafa fengið miklar þakkir fyrir þá umræðu sem hún opnaði fyrr í dag.

„Kannski eru þjóðþing ekki rétti aðilinn til að setja kosningalög“
Frá Alþingiskosningum 2013 hefur það verið þannig að jöfnunarþingsæti hafa sett fylgi flokka úr jafnvægi við fjölda Alþingismanna sem hver flokkur fær á þingi og hefur þá einn flokkur fengið einum manni um of inn á þing miðað við fylgi á landsvísu.

Hárrétt að efnum sé sprautað í líkama fólks en þau séu öll þekkt
Prófessor í ónæmisfræðum segir mikilvægt að upplýst umræða um bóluefnin og kórónuveiruna haldi áfram. Hann segir það misskilning að óþekkt efni eða efnasambönd séu í bóluefnum gegn Covid-19, þær upplýsingar séu allar uppi á borðum.

Skoða að kalla heilbrigðisstarfsmenn úr sumarfríi
Verið er að skoða að kalla heilbrigðisstarfsfólk úr sumarfríi vegna stöðunnar í faraldri nýju kórónuveirunnar hér á landi. Þetta sagði Guðrún Aspelund yfirlæknir, á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Ökumenn bifreiða kunna að vera ábyrgir fyrir tjóni af völdum rafskúta
Ökumenn bifreiða geta þurft að bera ábyrgð á tjóni sem þeir verða fyrir af völdum rafskúta. Þetta kann þó að vera mörgum óskiljanlegt, þar sem rafskútur eru ekki leyfðar á götum. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis í dag.

Segir fólk leggjast í meiri rannsóknarvinnu þegar það velur sér hund heldur en maka
Kristín Tómasdóttir, para- og fjölskyldumeðferðarfræðingur og rithöfundur, býður upp á fyrirbyggjandi hjónabandsráðgjöf í formi uppistands. Hún segir tilviljanir ráða of miklu þegar fólk parar sig saman og að fólk leggist í meiri rannsóknarvinnu þegar það velur sér hund heldur en maka.

Mikill munur á viðbrögðum við kynferðisofbeldi milli kynslóða
María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur, segir að nema megi ákveðinn kynslóðamun á viðbrögðum við fregnum af kynferðisofbeldi. Undanfarnar vikur hafa reynslusögur fólks af kynferðisofbeldi og -áreiti riðið yfir samfélagsmiðla og vakið mikla athygli. María segir margt benda til að við séum stödd í fjórðu bylgju femínisma og tengist hún að mörgu leiti tæknibreytingum og aðgengi að samfélagsmiðlum.

Ekkert bendir til þess að gosið sé að hætta
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræðum, segir ekkert benda til þess að eldgosið í Fagradalsfjalli hætti á næstunni.

Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað
Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði.

Telur mögulega saknæmt að henda sýnum kvenna með einkenni krabbameins
Fæðinga- og kvensjúkdómalæknir segir að Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana Heilsugæslunnar hafa gert lítið úr konum, sem sýnt hafa einkenni leghálskrabbameins, með því að hafa hent sýnum þeirra. Hún veltir því fyrir sér hvort förgun slíkra sýna sé mögulega saknæm.

Covid-19 út, klassískt kvef inn
Það er fyrirsjáanlegt: Að öllum sóttvarnaráðstöfunum hafi verið aflétt á Íslandi hefur í för með sér að sóttvarnir landsmanna verða lakari. Þessarar breytingar er strax farið að gæta á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem nokkurt rennerí er á fólki vegna kvefsótta.

Óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu orsakast líklega af hita
Ekki þarf að koma á óvart að konur geti fengið óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu við Covid-19. Slíkt þekkist af öðrum bóluefnum og sjúkdómum og gæti skýrst af hita og bólgum, að sögn Jóns Magnúsar Jóhannessonar, sérnámslæknis í lyflækningum á Landspítalanum.

Bjóða upp á spariföt til leigu í nýrri rafrænni fataleigu
„Það er ríkt í okkur Íslendingum að eiga alla skapaða hluti en við þurfum kannski fara að hugsa neysluna okkar upp á nýtt,“ segir Kristín Edda Óskarsdóttir í viðtali við Reykjavík síðdegis.

Kvikmyndagerð á Íslandi er mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna
Um 40 prósent allra erlendra ferðamanna sem hingað koma til lands gera það eftir að hafa séð afþreyingarefni sem framleitt er á Íslandi.

Síðasta ár sýni ávinning af styttri opnunartíma skemmtistaða
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, kallar eftir samtali við hagsmunaaðila í miðborginni um endurskoðun á opnunartíma skemmtistaða. Hann segist hafa séð dramatíska breytingu síðasta árið, á þeim brotum sem lögregla sinnir venjulega um helgar.

Leggur til sjálfsmyndabann við ferðamannastaði
Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem geti skapast við sjálfsmyndatökur ferðamanna. Hann segir að annað hvort þurfi að koma upp öruggum útsýnispöllum eða banna sjálfsmyndatökur.

„Bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum“
Formaður Lögreglustjórafélags Íslands segir bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum. Hann segir styttingu vinnuvikunnar hjá lögreglumönnum þýða að ráða þurfi tugi nýrra lögreglumanna til starfa og enn fáist engin skýr svör um fjármagn frá fjármálaráðuneytinu.

„Þessi déskotans veira hefur þessa eiginleika að breyta sér“
Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum, segir rannsóknir hér á landi benda til þess að góð mótefnasvörun sé enn til staðar hjá 95 prósent þeirra sem smitast allt að fjórtán mánuðum eftir sýkingu. Þetta er í samræmi við rannsóknir vestanhafs á fólki sem smitaðist snemma í faraldrinum.

Unga fólkið „efniviður í hópsýkingu“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir sjálfsagt mál að fólk geri sér glaðan dag um helgina en brýnir fyrir því að fara varlega. Þjóðin sé á lokasprettinum í kórónuveirufaraldrinum, en sá hópur sem væri líklegastur til að sækja mannfögnuði um helgina væri að stórum hluta til enn óbólusettur.

Furðar sig á forgangi Eurovision-hópsins
Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann furðaði sig á því að Eurovision-hópur Íslands hefði fengið bólusetningu fyrir brottför til Hollands þar sem keppnin fer fram. Hópurinn var bólusettur að beiðni Ríkisútvarpsins en smit hefur nú komið upp í hópnum.

„Veirufrítt samfélag“ bratt, óraunhæft og kostnaðarsamt
„Ég er bara eins og aðrir, að lesa um þetta í fréttum af þessum fundi í morgun, þar sem Þórólfur lýsir þessu sem sinni skoðun,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það markmið sóttvarnalæknis að stefna að veirufríu samfélagi.

Liggur enn ekki fyrir hvernig konan smitaðist
Enn er ekki ljóst hvernig konan sem greindist með breska afbrigði kórónuveirunnar utan sóttkvíar á miðvikudag smitaðist af veirunni. Yfir hundrað einstaklingar eru í sóttkví vegna smitsins en smitrakningarteymi almannavarna telur sig hafa náð í flestalla þá sem eru útsettir.

Ingó veðurguð í sóttkví eftir að hafa skemmt í starfsmannagleði
Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er á leið í sóttkví. Hann skemmti á starfsmannagleði ION hótela á sunnudag en einn starfsmaður sem sótti samkvæmið greindist með veiruna í gær.