Ölfus

Ölfus

Mannfjöldi: 2.757 (2025). Flatarmál: 736 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Þorlákshöfn, Sandvíkurhreppur.


Fréttamynd

Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þor­láks­höfn

Fyrsta skipið með vindmylluhluta fyrir Vaðölduver, vindorkuver Landsvirkjunar við Sultartanga, kom til Þorlákshafnar í kvöld. Það var flutningaskipið Idunn frá skipafélaginu Torcargo sem sigldi með farminn frá Rotterdam en um borð voru hlutir sem samsvara um einni og hálfri vindmyllu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Þetta er erfiður mánu­dagur“

Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni.

Innlent
Fréttamynd

Maður hífður upp úr Ölfus­á

Sigmaður Landhelgisgæslunnar hífði mann upp úr Ölfusá rétt fyrir klukkan fimm en leit hafði staðið yfir að manninum í ánni frá því klukkan rúmlega fjögur í dag.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á mann í Þrengslunum

Ekið var á bílstjóra flutningabíls í Þrengslunum í dag. Hann hafði að sögn lögreglu lent í vandræðum í brekku vegna mikillar hálku og stóð fyrir utan bílinn þegar öðrum bíl var ekið utan í hann.

Innlent
Fréttamynd

Þungaflutningarnir með þeim mestu á Ís­landi

Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga.

Innlent
Fréttamynd

„Erum við ekki að fara að­eins fram úr okkur“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

Elliði lofar því að flytja ekki aftur til Eyja

Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi segist styðja lista Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi af heilum hug og hann lofar því að hann muni ekki flytja aftur til Vestmannaeyja en orðrómur um að hann blandist í bæjarmálapólitíkina þar hefur lifað góðu lífi.

Innlent
Fréttamynd

Hlut­verk sem ég tek með auð­mýkt og á­byrgð

Í gærkvöldi, á fjölmennasta aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins Ægis í Ölfusi frá upphafi, var framboðslisti D-listans samþykktur og mér falin sú mikla ábyrgð að leiða listann í komandi kosningum. Það er heiður sem ég tek með auðmýkt og djúpu þakklæti.

Skoðun
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

D-listinn nærri því sá sami en ó­ljóst með Elliða

Sjálfstæðisfélagið Ægir í Ölfusi hefur kynnt D-listann í Ölfusi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Athygli vekur að efstu sex sætin eru skipuð sömu frambjóðendum og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 en eina breytingin er sú að Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi og Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar, býtta á sætum. 

Innlent
Fréttamynd

Hætta að rukka for­eldra fyrir leik­skóla­pláss í Ölfusi

Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í dag var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. 

Innlent
Fréttamynd

Frítt

Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Tveggja bíla á­rekstur á Hellis­heiði

Tveggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi, við gatnamótin að Þorlákshöfn, þegar vörubíll hafnaði aftan á fólksbíl. Lokað var fyrir umferð um veginn um tíma. Einn var fluttur á sjúkrahús.

Innlent
Fréttamynd

Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd

Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú eru í fullum gangi og hún farin að taka á sig mynd. Nýja brúin liggur austar en sú gamla sem liggur inn á Selfoss og er ætlunin að færa umferðina fjær þéttbýlinu. Gert er ráð fyrir að brúin verði til haustið 2028.

Innlent
Fréttamynd

„Þörfin er gríðar­leg“

„Þörfin er gríðarleg því bara á næstu 5 árum þurfum við hátt í 100 ný rými hér á Suðurlandi. Það má ekki missa sjónar á því að þetta mál snýst ekki um steypu eða stefnu, þetta snýst um það hvernig aðbúnað við viljum tryggja eldri borgurunum okkar. Það þarf að hugsa út fyrir boxið og viðurkenna að það gerir enginn neitt einn. Ríki, sveitarfélög og einkaaðilar þurfa að sameina krafta sína ef ekki á illa að fara. Við hér í Ölfusi ætlum að verða hluti af þessari lausn, með hagsmuni eldri borgara að leiðarljósi,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss, sem berst nú fyrir því að hjúkrunarheimili verði byggt í Þorlákshöfn.

Innlent