Grindavík
28 29 30 31 32 33 34 35 36 … 72 ›
Hvers eiga viðbragðsaðilar að gjalda? Veðurstofa Íslands gefur út hættumatskort vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Á kortinu sem nú gildir segir m.a. að töluverð hætta sé á gosopnun án fyrirvara í Grindavík auk þess sem hætta sé á sprunguhreyfingum, jarðskjálftum ásamt fleiru. Á hluta Grindavíkurvegar og Bláalónsvegar metur Veðurstofan mjög miklar líkur á skyndilegri gosopnun ásamt öðrum hættum af völdum jarðhræringanna. Skoðun 21.12.2023 20:00
Undirbúa málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík Fyrrverandi hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson hefur tekið að sér mál nokkurra Grindvíkinga sem hyggja á málshöfðun á hendur ríkinu vegna lokana í Grindavík. Jón telur stjórnvöldum ekki heimilt að banna Grindvíkingum að fara til sinna heima, en þeir hafa búið við strangar takmarkanir um hvort og hvenær þeir mega vera í bænum frá því snemma í nóvember. Innlent 21.12.2023 19:24
Vísbendingar um að kvikusöfnun sé hafin að nýju Vísbendingar eru um að kvikusöfnun sé hafin að nýju undir Svartsengi. Náttúruvásérfræðingur segir sérfræðinga búa sig undir möguleikann á ítrekaðri virkni. Innlent 21.12.2023 17:52
Svekkt að missa af eldgosinu Guadalupe Megías, fréttamaður spænska ríkissjónvarpsins, kom til Íslands í gær til að flytja fréttir af eldgosinu við Grindavík. Innan við sólarhring síðar er gosinu lokið. Innlent 21.12.2023 16:15
Telur mjög litlar líkur á að gjósi í sjálfri Grindavík Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir mjög litlar líkur á því að það gjósi í eða við Grindavík. Líklegt verði að telja að annað gos verði á svæðinu þar sem eldgos hófst á mánudagskvöld og lauk í morgun. Innlent 21.12.2023 15:00
Náðu ekki samningum um áframhaldandi leikskólastarf í Grindavík Heilsuleiksskólinn Krókur í Grindavík tilkynnti foreldrum barna í skólanum í gær að samningar um áframhaldandi rekstur skólans eftir áramót hefðu ekki tekist. Bærinn mun sjálfur taka við leikskólastarfinu, en það hefur verið í umsjón Skóla ehf. Innlent 21.12.2023 12:50
Gosinu við Sundhnúksgíga lokið Gosinu við Sundhnúksgíga er lokið. Slokknað er í öllum gígum, en glóð er enn sjáanleg. Erfitt er þó að segja til um framhaldið. Innlent 21.12.2023 11:43
Gosvirkni áfram sýnileg en minni en í gær Gosvirkni við Sundhnúksgíga er áfram sýnileg, en virðist heldur minni en í gær. Innlent 21.12.2023 08:43
Vaktin: Engin gosvirkni sýnileg Vísindamenn á flugi yfir gosstöðvunum á Reykjanesskaga í morgun sáu enga gosvirkni. Virðist sem slokknað sé í gígum en glóð eru enn sjáanleg í hraunbreiðunni. Enn er þó of snemmt að lýsa yfir goslokum þar sem hraun gæti flætt í lokuðum rásum. Innlent 21.12.2023 06:28
Bæjarstjórn tekur fyrir altjónslista í næstu viku Altjónslisti frá Náttúrutryggingum Íslands (NTÍ) yfir hús í Grindavík verður tekinn fyrir af bæjarstjórn Grindavíkurbæjar á milli jóla og ný árs. Íbúi segist hafa fengið þau svör að ekki verði hægt að bæta tjón fyrr en afstaða liggi fyrir í málinu. Innlent 20.12.2023 23:00
„Ég var dofinn bæði andlega og líkamlega“ Grindvíkingur segir fregnir af eldgosinu hafa slegið íbúa afar illa. Hann segist hafa verið dofinn líkamlega og andlega fyrst um sinn og að það sé erfitt að lifa í svona óvissu. Innlent 20.12.2023 20:01
„Það eina sem við getum gert er bara að fylgjast með“ Uppfært hættumat Veðurstofunnar gerir ráð fyrir töluverðri hættu á gosopnun í Grindavík. Áður var hættan talin mikil. Náttúruvársérfræðingur segir stöðuna geta breyst hratt, eins og hún hafi þegar gert. Því sé ómögulegt að segja til um framhaldið. Innlent 20.12.2023 18:45
Grindvíkingar gisti ekki meðan hraunið flæði Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir að á meðan gosið sé í gangi sé ekki öruggt að gista í Grindavík. Áhersluna sé að tryggja öryggi og velferð þeirra en aðbúnaður fyrir ferðamenn og þá sem vilja bera gosið augum sé aftarlega á listanum. Því segir hann göngustíg að gosstöðvunum ekki í forgangi, en seinna meir gæti það verið sett í skoðun. Innlent 20.12.2023 16:08
Húsnæðisstuðningur framlengdur út veturinn Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina munu leggja til að húsnæðisstuðningur ríkisins við Grindvíkinga verði framlengdur út veturinn. Hann átti að renna sitt skeið í lok febrúar. Innlent 20.12.2023 14:43
Óttast að þjóðin fái leiða á Grindvíkingum og fjari undan hjálpseminni Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári. Innlent 20.12.2023 14:22
Bein útsending: Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgoss Upplýsingafundur almannavarna vegna eldgossins við Sundhnúksgíga hefst klukkan 14. Innlent 20.12.2023 13:29
„Sárt að horfa á fólk skemmta sér meðan maður sat með tárin í augunum“ Íbúi í Grindavík segir sárt að sjá landsmenn horfa á eldgosið við Sundhnúksgíga sem afþreyingu á meðan Grindvíkingar glíma við erfiðar tilfinningar. Grindvíkingar þurfi meiri vissu um hvað taki við á komandi mánuðum. Innlent 20.12.2023 11:00
Öll umferð bönnuð í Grindavík Eftir fund aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar nú í morgun hefur Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákveðið að banna alla umferð og viðveru í Grindavíkurbæ á meðan nýtt hættumatskort er í gildi. Innlent 20.12.2023 10:59
Haraldur telur enga ástæðu til halda Grindavík áfram lokaðri Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur stendur enn við þá skoðun sína að Grindavíkurbær sé ekki í hættu vegna eldgoss og að leyfa eigi bæjarbúum að snúa aftur heim til sín. Innlent 20.12.2023 10:24
Skilja að fólk vilji berja gosið augum en hraunið sé hættulegt í myrkrinu Nokkuð var um að vera hjá viðbragðsaðilum við gosstöðvarnar þó nóttin hafi verið tíðindalítil heilt yfir. Samskiptastjóri almannavarna segir viðbragðsaðila skilja vilja fólks til að berja eldgosið augum en aðstæður séu ekki hliðhollar til skoðunarferða. Innlent 20.12.2023 08:05
Breytt landslag og viðbragðsaðilar komnir að þolmörkum Aðgerðastjórn og vettvangsstjórn munu funda klukkan 9, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hann segir ekki fyrirsjáanlegt að opnað verði fyrir aðgengi að gosstöðvunum. Innlent 20.12.2023 07:08
Vaktin: Uppfæra hættumat og telja töluverða hættu í Grindavík Enn virðist draga úr eldvirkni við Sundhnúkagíga. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála á Reykjanesskaga í allan dag. Innlent 20.12.2023 06:30
Enn dregur úr eldvirkni en of snemmt að spá um goslok Enn virðist draga úr eldvirkni við Sundhnúkagíga eftir því sem óróagröf á Veðurstofu Íslands sýna. Þetta segir Minney Sigurðurðardóttir náttúruvársérfræðingur. Innlent 20.12.2023 06:21
„Ég vildi bara að þessum manni yrði bjargað“ Ernir Snær Bjarnason er flugmaðurinn sem varð var við göngumann sem sendi neyðarboð við gosstöðvarnar á Reykjanesi fyrr í kvöld. Hann hringsólaði yfir manninum í klukkustund áður en hann var sóttur af þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 19.12.2023 23:55
Íbúar Suðurnesja léttir en þreyttir Hljóðið í íbúum Suðurnesja sem fréttastofa náði tali af í dag var ágætt, þrátt fyrir að margir hafi verið þreyttir eftir að hafa fylgst með fréttum af eldgosi nánast í bakgarðinum fram eftir nóttu. Innlent 19.12.2023 22:52
Svakalegur tími í að snúa ferðamönnum við Björgunarsveitarkona sem sinnti gosgæslu í kvöld segir svakalegan tíma hafa farið í að spjalla við ferðamenn og snúa þeim við sem hyggjast ætla að gosi. Þá sé töluverður fjöldi sem stöðvi bíl sinn á Reykjanesbrautinni. Innlent 19.12.2023 22:31
Fannst kaldur og hrakinn á gossvæðinu Þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita var kölluð út fyrr í kvöld til leitar að manni á gossvæðinu sem gaf flugvél sem þar átti leið hjá neyðarmerki. Maðurinn fannst fyrir stundu, kaldur og hrakinn. Innlent 19.12.2023 21:08
Sinna vaktinni allan sólarhringinn Vettvangsstjórn á hættusvæðinu sinnir eftirliti með gossvæðinu allan sólarhringinn auk aðgerðarstjórnar. Varðstjóri segir stöðuna sífellt endurmetna. Innlent 19.12.2023 20:59
Fólk geti verið sátt að hraun renni ekki í átt til Grindavíkur Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftasérfræðingur, segir helst hættu á að hraun flæði yfir Grindavíkurveg nái það til mannvirkja. Fólk megi vera sátt við það hvar gosupptök voru fyrst úr varð. Innlent 19.12.2023 18:49
Fyrirvari á nýjum sprungum geti verið mjög stuttur Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort byggt á túlkun nýjustu gagna og út frá stöðu virkninnar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hætta hefur aukist umtalsvert á öllum svæðum sem skilgreind voru á eldra hættumatskorti. Áfram eru taldar líkur á frekari gosopnunum. Innlent 19.12.2023 18:37
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti