Búlgaría

Búlgarar bendla Rússa við sprengingar þar í landi
Utanríkisráðuneyti Búlgaríu tilkynnti í dag að ríkisstjórn landsins ætlaði að vísa einum rússneskum erindreka úr landi, til viðbótar við þá tvo sem voru reknir úr landi fyrir njósnir í síðasta mánuði.

Ótrúleg slóð útsendara: Banatilræði, skemmdarverk og milliríkjadeilur
Yfirvöld í Tékklandi hafa rakið stóra sprengingu í vopnageymslu í landinu árið 2014 til umdeildrar deildar rússneskrar leyniþjónustu sem hefur verið sökuð um banatilræði og skemmdarverk í Evrópu. Ráðamenn í Rússlandi segjast ætla að svara fyrir sig og reka erindreka Tékklands úr landi.

Horfði á búlgörsku hetjuna hrapa til dauða fyrir framan nefið á sér
Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vinnur að heimildarmynd um leiðangur John Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, lýsir taugaþrungnum augnablikum í fjallinu þegar búlgarskur göngumaður hrapaði fyrir framan nefið á honum. Sömuleiðis mistökum sem hafi mögulega bjargað lífi Saikaly og samferðamanna hans.

Forsetinn hvetur ríkisstjórnina til að fara frá
Alls þurftu 45 manns að leita aðhlynningar á sjúkrahúsi eftir að til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í búlgörsku höfuðborginni Sófíu í gær.

Krefjast afsagnar ríkisstjórnar Búlgaríu vegna spillingarmála
Forsætisráðherra Búlgaríu segist ætla að ákveða hvort hann haldi áfram í embætti síðar í þessari viku. Stjórnarandstaðan hefur lagt fram vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni í skugga mótmæla gegn spillingu sem geisa víða um landið.

Listamaðurinn Christo er látinn
Listamaðurinn Christo, sem er heimsþekktur fyrir að þekja frægar byggingar og kennileiti, er dáinn.

Hólmar í Búlgaríu: Forseti félagsins flúði land en stuðningsmennirnir halda félaginu á lífi
Félag landsliðsmannsins Hólmars Arnar Eyjólfssonar í Búlgaríu er á barmi gjaldþrots og ekki batnaði ástandið þegar eigandi og forseti félagsins stakk af.

Telur Ignatovu hafa flúið undan rannsóknum
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrirsæta, segist trúa því að gömul og góð vinkona hennar til margra ára, Ruja Ignatova, hafi látið sig hverfa til að sleppa við fangelsisvist á meðan rannsóknir gegn henni stæðu yfir.

Fyrirsætan Ásdís Rán flækt í risastórt fjársvikamál
Ein besta vinkona Ásdísar Ránar eftirlýst af FBI.

Búlgörum dæmdir tveir leikir fyrir luktum dyrum
Búlgarir þurfa að spila fyrir luktum dyrum og greiða háa sekt eftir kynþáttaníð stuðningsmanna þeirra gegn enska landsliðinu í leik í undankeppni EM 2020 á dögunum.

FIFA fylgist grannt með stöðunni í Búlgaríu
Það eru vandræði í Búlgaríu og FIFA fylgist með.

Þjálfari Búlgara biður enska landsliðið afsökunar
Krasimir Balakov, landsliðsþjálfari Búlgaríu, segir orð sín hafa verið tekin úr samhengi og biður ensku landsliðsmennina afsökunar á hegðun stuðningsmanna Búlgaríu.

Forseti búlgarska sambandsins sagði af sér
Þau tíðindi bárust nú upp úr hádegi að Borislav Mihaylo, forseti búlgarska knattspyrnusambandsins, hefði sagt af sér eins og forsætisráðherra þjóðarinnar fór fram á að hann gerði.

Forsætisráðherra Búlgaríu krefst þess að formaður knattspyrnusambandsins segi af sér
Íþróttamálaráðherra Búlgaríu, Krasen Kralev, segir að forsætisráðherra landsins, Boyko Borissov, hafi óskað eftir því að formaður knattspyrnusamband landsins segi af sér.

Þjálfari Búlgaríu kannast ekkert við rasíska söngva: „Ég heyrði ekkert“
Krasimir Balakov, þjálfari búlgarska landsliðsins, segist ekki hafa heyrt rasíska söngva á pöllunum er Búlgaría tapaði 6-0 fyrir Englandi í undankeppni EM.

Telja rússneska leynisveit reyna að valda óstöðugleika í Evrópu
Vestrænar leyniþjónustur hafa tengt fjórar aðgerðir við sömu rússnesku leyniþjónustusveitina, þar á meðal taugaeiturstilræðið á Englandi í fyrra.

Kyssti fréttakonu og dæmdur til að fara á námskeið
Búlgarski boxarinn sem kyssti fjölmiðlakonu í lok sjónvarpsviðtals er enn að glíma við eftirmála kossins en myndbandið af kossinum fór á flug á netinu enda þótti hann sýna fréttakonunni mikla óvirðingu.

Dæmdur í fangelsi eftir dauða 71 flóttamanns
Dómstóll í Ungverjalandi hefur dæmt 39 ára karlmann frá Búlgaríu í fjögurra ára og átta mánaða fangelsi.

Rannsaka möguleg tengsl Skrípalmálsins við eiturárás í Búlgaríu
Vopnaframleiðandi sem telur að sér hafi verið byrlað eitur árið 2015 hafði samband við búlgarska saksóknara vegna mögulegra tengsla við árásina á Sergei Skrípal á Englandi.

Þrælahaldarar í kirkjuathvarfi
Að vetrinum sváfu þrælahaldararnir í athvarfinu.

Hálf milljón Evrópubúa deyr af völdum loftmengunar á ári
Loftmengun er helsta orsök ótímabærra dauðsfalla í 41 Evrópuríki.

Stóðst atkvæðagreiðslu um vantraust
Ríkisstjórn Búlgaríu hefur staðist atkvæðagreiðslu í þinginu um vantraust.

Þjóðverjar framselja grunaðan banamann Marinovu
Tvítugur karlmaður sem grunaður er um að hafa nauðgað og myrt búlgarska fréttakonu fyrr í mánuðinum hefur verið framseldur frá Þýskalandi til Búlgaríu.

Búlgarskur blaðamaður segir áhyggjur af líkamlegu öryggi sínu of tímafrekar
Ritstjóri vefmiðilsins Bivol í Búlgaríu ræðir við Fréttablaðið um fréttir sínar af fjársvikum og spillingu við meðferð Evrópustyrkja í Búlgaríu og um morðið á fjölmiðlakonunni Victoriu Marinovu sem fjallaði um fréttir hans.

Handtekinn í Þýskalandi vegna morðsins á búlgörsku fréttakonunni
Maðurinn var handtekinn að beiðni búlgarskra yfirvalda.

Þrítugri blaðakonu nauðgað og hún myrt í Búlgaríu
Þrítugri búlgarskri rannsóknarblaðakonu var nauðgað og hún myrt í gær í borginni Ruse í Búlgaíu. Hún hafði verið að rannsaka spillingarmál innan búlgarska stjórnkerfisins. Politico greinir frá þessu.

16 látnir eftir rútuslys í Búlgaríu
Fimm eru enn í lífshættu eftir að rúta með 33 pílagríma innanborðs valt á leið frá réttrúnaðarklaustri í þorpinu Bozhuristhe um 50 kílómetra norður af Sofíu höfuðborgar Búlgaríu.

Makedónía fær nýtt nafn eftir 27 ára deilur
Grikkland og Makedónía hafa komist að samkomulagi um opinbert nafn á síðarnefnda ríkinu. Deilur ríkjanna um nafnið hafa staðið í 27 ár, eða alveg frá því að Júgóslavía liðaðist í sundur á tíunda áratug síðustu aldar.

Tyrkir segjast hafa gripið tugi stjórnarandstæðinga erlendis
Þeir eiga allir að hafa verið fylgjendur klerksins Fetullah Gulen sem tyrknesk stjórnvöld kenna um valdaránstilraun árið 2016.

Erdogan vill enn í ESB
Forseti Tyrklands mun funda með leiðtogum ESB í Búlgaríu á næstu dögum og verða þar rædd mörg erfið mál.