Noregur
41 42 43 44 45 46 47 48 49 … 50 ›
Grétu yfir frásögn Breiviks Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Noregi, vildi afhausa Gro Harlem Brundland, fyrrverandi forsætisráðherra, taka upp aftökuna og sýna hana á Netinu. Þetta sagði hann í réttarhöldum í dag. Fjórði dagur réttarhaldanna fer nú fram og enn er verið að taka skýrslu af sakborningi. Þar lýsti hann árás sinni í Útey. Saksóknari krafðist þess að stutt hlé yrði gert á réttarhöldunum þegar hann sá að fjöldi fólks sem var samankominn í réttarsalnum til að fylgjast með réttarhöldunum var farinn að skæla. Erlent 19.4.2012 13:50
Segir Breivik hafa tögl og haldir í réttarsalnum Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik mætti í morgun fyrir rétt, fjórða daginn í röð. Norskir miðlar greina frá því að í þetta skipti hafi hann ekki heilsað með sama hætti og hina dagana, það er að segja að hætti öfga hægri manna. Erlent 19.4.2012 09:58
Sprengjuleit í þinghúsinu í Osló Sprengjuleit var gerð í dag í þinghúsinu í Osló þar sem réttarhöldin yfir Anders Behring Breivik fara fram. Sjónvarpsstöðin TV2 segir að pakki í kjallara hússins hafi virst innihalda nítróglíserín sem stundum er notað til sprengjugerðar. Þinghúsið þurfti ekki að rýma en sjónvarpsstöðin segir að Breivik hafi verið fluttur um set úr gæsluvarðhaldsklefa sínum í húsinu. Erlent 18.4.2012 16:09
Stærir sig af fjöldamorðum Við upphaf fimm daga yfirheyrsla yfir Anders Behring Breivik fékk hann rúma klukkustund til að lesa upp yfirlýsingu þar sem hann reyndi að réttlæta voðaverk sín. Hann segist vera herskár þjóðernissinni og líkir sér við al Kaída. Aðstandendur fórnarlamba hans segja mikilvægt að réttarhöldin snúist um glæpina sem hann framdi en verði ekki vettvangur fyrir pólitískar yfirlýsingar. Erlent 17.4.2012 21:37
Segja Breivik vera ímyndunarveikan Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur neitað að svara mörgum spurningum saksóknara í dag á þriðja þegi réttarhaldanna yfir honum. Breivik hefur verið þráspurður um tengsl hans við öfgahópa og fólk með svipaðar skoðanir og hann en hann hefur áður sagst tilheyra hópi manna sem kenni sig við Musterisriddarana. Erlent 18.4.2012 11:21
Breivik segist iðrast einskis Fjöldamorðinginn Anders Breivik segist iðrast einskis og fer fram á að hann verði sýknaður. Hann flutti yfirlýsingu í réttarsal í morgun þar sem hann hélt hatursáróðri sínum á lofti. Erlent 17.4.2012 12:05
Rugluð yfirlýsing Breivik vakti furðu í réttarsalnum Yfirlýsing sú sem fjöldamorðinginn Anders Breivik fékk að lesa upp í réttarhöldunum í Osló í morgun vakti furðu viðstadda. Erlent 17.4.2012 08:53
Móðir Breivik þarf ekki að bera vitni í réttarhöldunum Réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik hefjast að nýju nú klukkan sjö að okkar tíma. Réttarhöldin hefjast á því að Breivik mun lesa upp yfirlýsingu en lögmaður hans segir að sá upplestur muni taka um 30 mínútur. Í yfirlýsingunni mun Breivk ætla að verja gjörðir sínar. Erlent 17.4.2012 06:32
Fyrsta degi réttarhalda lokið - Breivik tjáir sig í fyrramálið Fyrsta degi réttarhaldanna yfir Anders Behring Breivik lauk í Osló eftir hádegið í dag. Í ræðu sinni sagði Geir Lippestad verjandi Breiviks að svo gæti farið að hann biðji um frestun sökum þess að saksóknari skilaði inn miklu magni gagna þremur dögum áður en réttarhöldin hófust. Erlent 16.4.2012 13:56
Breivik grét í dómsal - myndband Norski fjöldamorðinginn Anders Breivik grét í dómsal í dag en réttarhöldin yfir honum hófust í morgun. Hann felldi ekki tárin vegna samvisku eða eftirsjár vegna fjöldamorðanna í Útey heldur spilaði saksóknarinn í málinu áróðursmyndband sem hann útbjó stuttu fyrir voðaverkin. Norskir fjölmiðlar segja að hann hafi verið svo stoltur af myndbandinu þar sem hann lýsir öfgafullum skoðunum sínum að hann hafi ekki getað haldið aftur tárunum. Breivik lýsti sig sekan um öll 77 morðin en þeim var lýst ítarlega í dómsal í morgun. Innlent 16.4.2012 10:46
Breivik heilsaði réttinum með fasistakveðju Norski fjöldamorðinginn Anders Breivik heilsaði með fastistakveðju þegar hann mætti í dómsalinn í Osló þar sem réttarhöldin yfir honum hófust í morgun. Erlent 16.4.2012 08:29
Réttarhöldin yfir Breivik að hefjast, gífurleg öryggisgæsla Gífurleg öryggisgæsla er við dómshúsið í Osló en þar eru réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Breivik um það bil að hefjast. Erlent 16.4.2012 06:33
Breivik vill flytja nýja stefnuyfirlýsingu Anders Behring Breivik vill lesa upp nýja stefnuyfirlýsingu þegar hann mætir fyrir rétt á morgun. Odd Gron, starfsmaður hjá Lippestad, verjanda Breiviks, segir að líklegast muni dómari banna honum að lesa hana upp. Erlent 15.4.2012 22:48
Sakhæfismat gleður Breivik Nýtt sakhæfismat kemst að þeirri niðurstöðu að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sé heill á geði. Matið gengur þvert á fyrra mat sem sagði Breivik með geðklofa. Hann segist sjálfur ánægður með úrskurðinn. Erlent 10.4.2012 21:57
Breivik ánægður með að vera metinn sakhæfur Geir Lippestad, verjandi norska fjöldamorðingjans Anders Behring Breivik, segir að umbjóðandi sinn sé afar ánægður með nýtt geðmat þar sem segir að hann sé sakhæfur. Hann hafi margoft haldið því fram sjálfur að hann sé heill á geði og því sé honum létt með nýja matið, en í fyrra geðmatinu sem hann gekkst undir var það álit lækna að hann væri geðveikur og því ósakhæfur. Erlent 10.4.2012 13:36
Segja að Breivik sé sakhæfur Anders Behring Breivik, fjöldamorðingi í Noregi, er sakhæfur samkvæmt niðurstöðum nýrrar geðrannsóknar. Nýja geðrannsóknin er unnin af læknunum Agnar Aspaas og Terje Törrissen. Skýrslan hefur ekki enn verið gerð opinber en norskir fjölmiðlar fullyrða að hann sé sakhæfur samkvæmt nýja matinu. Erlent 10.4.2012 10:08
Breivik féllst á að gefa CNN einkaviðtal fyrir réttarhöld Fjöldamorðinginn Anders Breivik hefur fallist á að gefa bandarísku fréttastofunni CNN viðtal fyrir réttarhöldin yfir honum sem eiga að hefjast 16. apríl næstkomandi. CNN staðfestir við NRK að þeir hafi falast eftir viðtali við fjöldamorðingjann sem myrti 77 vinstri sinnuð ungmenni í Útey síðasta sumar. Erlent 5.4.2012 10:09
Margir með afbrot að baki Margir þeirra sem keyptu efni til sprengjugerðar frá sömu efnaverksmiðjunni í Póllandi og Anders Behring Breivik hafa komið við sögu lögreglu, að því er greint er frá á vef Dagsavisen. Erlent 18.3.2012 21:57
Gengst við mistökum Norska lögreglan viðurkennir að hafa ekki brugðist nógu hratt við hryðjuverkum Anders Breivik í fyrra. 54 atriði hefðu betur mátt fara samkvæmt rannsókn. Lögreglustjóri baðst afsökunar vegna málsins. Erlent 15.3.2012 22:03
Lögreglan í Noregi biðst afsökunar Talsmaður lögreglunnar í Noregi sagði í dag að viðbrögð lögregluyfirvalda hefðu verið silaleg þegar upp komst um skotárás Anders Behring Breivik í Útey. Innlent 15.3.2012 20:10
Ákærður fyrir tvö hryðjuverk Norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik hefur verið ákærður fyrir 77 morð, fjölmargar morðtilraunir og tvö hryðjuverk. Ríkissaksóknari Noregs telur Breivik ekki sakhæfan, en með þeim fyrirvara að eitthvað geti komið fram sem breyti því mati. Erlent 7.3.2012 21:37
Ákæran tilbúin Gengið hefur verið frá ákæru á hendur fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik sem myrti 77 manns í Útey og miðborg Osló. Erlent 3.3.2012 09:42
Umdeilt leikrit byggt á stefnuskrá Anders Breivik sett á svið Lítið leikhús í Ósló hyggst setja á svið umdeilt leikrit byggt á stefnuskrá hryðjuverkamannsins Anders Behring Breivik í haust. Erlent 24.2.2012 21:35
Sagðist eiga skilið heiðursmerki Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sagðist eiga skilið heiðursmerki og krafðist þess að vera látinn laus. Erlent 6.2.2012 21:53
Breivik segir gjörðir sínar ekki vera refsiverðar Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Útey og Osló, neitar því að gjörðir hans séu refisverðar. Þetta sagði hann þegar að hann mætti fyrir rétt í Osló í dag. Hann var færður í dómhúsið í handjárnum í fylgd tveggja lögreglumanna. Eins og kunnugt er, gengst Breivik við því að hafa orðið 77 manns að bana þann 22. júlí síðastliðinn. Erlent 6.2.2012 13:12
Gæti fengið einkasjúkrahús Svo gæti farið að sérstakt eins manns geðsjúkrahús verði byggt innan múra Ila-fangelsisins í Bærum til að hýsa fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik, verði hann úrskurðaður ósakhæfur. Erlent 24.1.2012 21:18
Þrumu lostnir yfir leikriti um Breivik Danskt leikhús ætlar að setja upp leikverk sem byggir á stefnuyfirlýsingu Anders Behring Breivik fjöldamorðingjans sem bar ábyrgð á voðaverkunum í Útey og í Osló í júlí síðastliðnum. Erlent 19.1.2012 10:40
Dómari vill nýtt sakhæfismat fyrir Breivik Dómstóll í Noregi hefur ákveðið að láta fara fram nýtt sakhæfismat á fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik. Samkvæmt mati sem áður hafði verið gert er hann ósakhæfur. Wenche Elizabeth Arntzen dómari segir að sökum þess hve matið hefur verið gagnrýnt mikið sé nauðsynlegt að láta meta hann að nýju. Hefði dómarinn stuðst við hið upphaflega mat þá hefði Breivik verið vistaður á réttargeðdeild en ekki í fangelsi eftir að dómur verður upp kveðinn. Erlent 13.1.2012 13:03
Fjöldi fólks vill hitta Breivik Anders Behring Breivik, fjöldamorðinginn í Noregi, fær á morgun leyfi til þess að fá gesti í gæsluvarðhaldfangelsið í fyrsta sinn síðan hann var handtekinn. Ástæðan er sú að saksóknarar í málinu fóru ekki fram á áframhaldandi einangrun. Með því mun Breivik í fyrsta sinn geta veitt fjölmiðlum viðtöl frá því að hann myrti 77 manns seinni partinn í júlí í fyrra. Erlent 9.1.2012 14:48
Breivik sé sakhæfur Þrír sálfræðingar og einn geðlæknir telja að norski fjöldamorðinginn Anders Breivik sé hvorki geðveikur né geðklofi. Þessir sérfræðingar, sem vinna við Sandvika geðsjúkrahúsið hafa fylgst náið með Breivik í fangelsinu og segja ennfremur að hann hafi enga þörf fyrir lyf og engin hætta sé á að hann fremji sjálfsmorð. Erlent 4.1.2012 09:45