Írak
22 23 24 25 26 27 … 27 ›
Fimmtíu féllu í tveimur árásum Um fimmtíu manns létu lífið í Írak í gær. Meirihluti fólksins féll þegar bandarískar herflugvélar gerðu loftárásir á hús í Falluja þar sem yfirstjórn Bandaríkjahers í Írak sagði vígamenn hafast við. Konur og börn voru þó nær helmingur þeirra sem féllu þar. Þá féllu fimm í sprengjutilræði sem var gert í Bagdad. Erlent 13.10.2005 14:39
Óska frekari aðstoðar Forseti Íraks hefur óskað eftir því að NATO og Evrópusambandið aðstoði enn frekar til að binda enda á stríðsástandið í Írak og hjálpi til að byggja upp landið. Tugir óbreyttra borgara létu lífið í áframhaldandi átökum í landinu í gær. </font /></b /> Erlent 13.10.2005 14:38
Þrjú höfuðlaus lík í Bagdad Þrjú höfuðlaus lík fundust norður af Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Ekki er búið að bera kennsl á líkin en talið er að þau séu af útlendingum. Írakska lögreglan fann líkin sem öll eru karlkyns. Erlent 13.10.2005 14:39
13 látnir og 61 særður Átök halda áfram í Írak en þrettán létust og að minnsta kosti 61 særðist í árásum þegar þyrlur Bandaríkjahers skutu á hóp Íraka sem hafði safnast við brennandi farartæki hersins í Bagdad. Á öðrum stað í Bagdad létust níu Írakar í átökum við hermenn. Erlent 13.10.2005 14:38
Hörðustu bardagar í margar vikur Einhverjir hörðustu götubardagar í margar vikur hafa geisað síðasta sólarhringinn í Bagdad, höfuðborg Íraks. Óöld ríkir þar og svo virðist sem enginn hafi stjórn á ástandinu. Erlent 13.10.2005 14:38
Drepa konurnar eftir sólarhring Írakskur öfgahópur, sem heldur tveimur ítölskum hjálparstarfsmönnum í gíslingu í Írak, hefur hótað að drepa konurnar, dragi Ítalíustjórn ekki herlið sitt frá Írak. Hópurinn, sem kallar sig Islamic Jihad, birti kröfur sínar Netinu og gefur ríkisstjórn Ítalíu sólarhring til að verða við kröfum sínum. Erlent 13.10.2005 14:38
Dæmdur fyrir misþyrmingar á föngum Bandarískur hermaður var í dag dæmdur til átta mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa misþyrmt föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Hermaðurinn brotnaði saman í réttarsalnum og sagðist bera fulla ábyrgð á gerðum sínum. Erlent 13.10.2005 14:38
Tveir létust í sprengingu í Basra Tveir létust og þrír liggja sárir eftir að sprengja í vegkanti sprakk nærri bandaríska sendiráðinu í borginni Basra í suðurhluta Íraks í dag. Hinir látnu voru í bifreið á leið fram hjá sprengjunni en þeir sem særðust voru gangandi vegfarendur. Erlent 13.10.2005 14:38
Dæmdur fyrir brotin í Abu Ghraib Fyrsti hermaður þeirrar deildar bandaríska hersins er sér um njósnir og upplýsingaöflun, sem dreginn var fyrir rétt fyrir brotin í Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad, fékk í dag átta mánaða fangelsisdóm, lækkun í tign og brottvikningu úr hernum. Erlent 13.10.2005 14:38
15 Írakar fallnir í Bagdad Fimmtán Írakar fórust í átökum í fátækrahverfinu Sadr-borg í Bagdad í Írak í morgun. Bandarískar hersveitir og sveitir hliðhollar Muqtada al-Sadr hafa barist þar af og til frá því í apríl á þessu ári. Bandarískur hermaður féll í átökum í hverfinu fyrr í morgun. Erlent 13.10.2005 14:36
Ítölskum konum rænt í Írak Hjálparsamtök í Írak halda því fram að tveimur ítölskum konum hafi verið rænt í miðborg Bagdad. Konurnar voru sjálfboðaliðar í samtökunum „Brú til Bagdad“ sem sinna hjálparstörfum í landinu og voru stofnuð í kjölfar fyrra Írakstríðsins árið 1991. Vitni segja að konurnar hafi verið numdar á brott ásamt tveimur Írökum. Erlent 13.10.2005 14:36
Blóðug átök í Sadr-borg Blóðug átök hafa kostað á fjórða tug manna lífið í fátækrahverfinu Sadr-borg í Írak undanfarinn sólarhring. Hundrað og sjötíu Írakar hafa særst í átökunum. Einn bandarískur hermaður liggur í valnum og nokkrir eru sárir. Erlent 13.10.2005 14:36
Árás á bílalest Bandaríkjamanna Nokkrir bandarískir hermenn féllu þegar árás var gerð á bílalest þeirra nærri borginni Fallujah í Írak í morgun, að því að sjónarvottar sögðu Reuters-fréttaþjónustunni frá. Talsmenn Bandaríkjahers vildu engar upplýsingar veita. Fallujah er ekki í höndum bandarískra sveita heldur ráða þar írakskar sveitir sem áður störfuðu á vegum Saddams Hússeins. Erlent 13.10.2005 14:36
Þrjú börn létust í loftárásum Sautján létust, þar af þrjú börn, í loftárásum Bandaríkjamanna á Fallujah í Írak í gær. Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hernum féll sprengja á hús þar sem hópur uppreisnarmanna hefur haldið til. Herlið Bandaríkjanna í Írak hefur ítrekað haldið uppi loftárásum á Fallujah eða síðan herlið þeirra dró sig til baka frá borginni í apríl. Erlent 13.10.2005 14:35
Eldflaugum skotið að þinghúsinu Sjö eldflaugum var skotið að þinghúsinu í Bagdad í morgun en þar var fyrsti þingfundur haldinn eftir að Írakar tóku aftur við stjórn landsins. Erlent 13.10.2005 14:35
Loftið í Najaf lævi blandið Loftið í Najaf er lævi blandið eftir að friðarsamkomulag náðist í nótt. Bardagamenn hafa yfirgefið helga mosku þar en undir niðri kraumar tortryggni og óvissa. Erlent 13.10.2005 14:34
Bardagar geisa áfram í Najaf Bardagar geisa áfram í Írak eftir loftárásir Bandaríkjamanna á skæruliðasveitir úr röðum sjíta í Najaf í gær. Árásirnar voru gerðar nærri Imam Ali grafhýsinu sem hefur verið á valdi Mehdi-sveita Muqtada al-Sadr. Bandaríkjamenn ætla sér með árásunum að brjóta niður þá andstöðu sem verið hefur í landinu. Sprengjubrot lentu á grafhýsinu og ollu einhverjum skemmdum.</font /> Erlent 13.10.2005 14:33
Tilræði við írakska ráðherra Fjórir lífverðir umhverfismálaráðherra Íraks fórust í sjálfsmorðsárás í morgun. Talið er að um tilræði við ráðherrann hafi verið að ræða en hann slapp ómeiddur. Erlent 13.10.2005 14:33
Reiðubúnir að gefast upp Fylgismenn sjíta-klerksins Muqtada al-Sadrs, sem barist hafa við bandaríska og írakska hermenn í Najaf undanfarnar vikur, segjast reiðubúnir að gefast upp og binda þannig enda á hið gífurlega mannfall sem átt hefur sér stað í borginni að undanförnu. Erlent 13.10.2005 14:34
Varnarmálaráðherra hótar stórárás Varnarmálaráðherra Íraks hvatti í dag sjíta-múslima í Najaf til að leggja niður vopn, ella yrðu þeir stráfelldir í stórárás síðar í dag. Erlent 13.10.2005 14:33
Gísl sleppt í Írak Bandarískum blaðamanni, Micah Geran, sem verið hefur í haldi mannræningja í Nassiríja í Írak, var sleppt úr haldi seint í gær. Honum var rænt þrettánda ágúst síðastliðinn og er hann sagður vel á sig kominn. Erlent 13.10.2005 14:33
Loftárásir í kringum moskuna Enn á ný geisuðu harðir bardagar í Najaf í Írak í nótt. Bandaríkjaher gerði ítrekaðar loftárásir á svæðið í kringum Imam Ali moskuna þar sem skæruliðar, hliðhollir Muqtada al-Sadr, halda til. Skriðdrekar eru sagðir í um átta hundruð metra fjarlægð frá moskunni og hafa fregnir borist af því að skotið hafi verið á moskuna. Erlent 13.10.2005 14:33
Vill réttarhöldin frá Bagdad Bandarískur hermaður sem ákærður er fyrir pyntingar og kynferðislega niðurlægingu á írökskum föngum í Abu Ghraib fangelsinu hefur óskað eftir því að réttarhöldin verði færð frá Bagdad. Hermaðurinn, Charles Graner að nafni, segist ekki eiga möguleika á sanngjörnum réttarhöldum í íröksku höfuðborginni og bar þessa ósk því fram í dag. Erlent 13.10.2005 14:33
Moskan á valdi skæruliðanna Barist er í nánd við Imam Ali moskuna í Najaf í Írak sem er enn á valdi Mehdi-skæruliðasveita Muqtada al-Sadrs. Nokkur óvissa hefur ríkt um hvernig ástandið í Najaf væri í raun og veru og á hvers valdi Imam Ali moskan væri. Erlent 13.10.2005 14:33
Myndirnar ekki bannaðar Myndir sem sýna bandaríska hermenn níðast á föngum í herfangelsum í Írak verða ekki bannaðar. Lögmenn hermannanna fóru þó fram á það við frumréttarhöld í Þýskalandi í dag. Erlent 13.10.2005 14:33
Al-Sadr farinn frá Najaf Muqtada al-Sadr er farinn frá Najaf. Reyndar segir lögreglustjórinn í borginni að hann hafi farið úr Imam Ali moskunni fyrir rúmri viku. Mehdi-hersveitir hans berjast samt áfram og hafa í dag tekist á við bandaríska og írakska hermenn í návígi. Sjónarvottar segja bardagana þá hörðustu síðan átök blossuðu upp í borginni fyrir þremur vikum. Erlent 13.10.2005 14:33
Fimm sprengingar í Najaf Fimm háværar sprengingar heyrðust skammt frá Iman Ali moskunni í Najaf fyrr í morgun en harðlínuklerkurinn Muqtada al-Sadr samþykkti í gær að hverfa þaðan ásamt fylgismönnum sínum. Sjónarvottar segja að leyniskyttur hafi verið á sveimi á svæðinu. Erlent 13.10.2005 14:32
Árás verður gerð á al-Sadr Árás verður gerð á harðlínuklerkinn Muqtada al-Sadr og menn hans í Najaf, yfirgefi þeir ekki Iman Ali moskuna þar innan nokkurra stunda. Þetta segja talsmenn írakskra stjórnvalda. Erlent 13.10.2005 14:32
Ögurstund í Najaf Komið er að ögurstundu í borginni Najaf í Írak. Þolinmæði stjórnvalda gagnvart Muqtada al-Sadr er á þrotum og árás yfirvofandi. Hann vill hins vegar viðræður. Erlent 13.10.2005 14:32
Al-Sadr fær lokafrest Iyad Allawi, sem gegnir stöðu forsætisráðherra Íraks, hefur gefið öfgaklerknum Muqtada al-Sadr lokafrest til að yfirgefa Imam Ali moskuna í Najdaf og fyrirskipa hersveitum sínum að leggja niður vopn. Al-Sadr hafði fallist á vopnahlé í gær en setti síðan fram ýmsar kröfur sem ekki var hægt að ganga að. Erlent 13.10.2005 14:32