Blóðug átök í Sadr-borg 7. september 2004 00:01
Blóðug átök hafa kostað á fjórða tug manna lífið í fátækrahverfinu Sadr-borg í Írak undanfarinn sólarhring. Hundrað og sjötíu Írakar hafa særst í átökunum. Einn bandarískur hermaður liggur í valnum og nokkrir eru sárir. Sadr-borg er fátækrahverfi í norð-austurhluta Bagdad-borgar og þar er mikið um stuðningsmenn harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs. Hermt er að fjöldi bardagamanna hans sé kominn þangað frá borginni Najaf þar sem hörð átök geisuðu þar til fyrir skömmu. Fimmtán Írakar fórust í átökum í Sadr-borg í morgun; þaðan berst sprengignýr og byssugelt. Orustuþotur sáust á flugi yfir hverfinu. Talsmaður al-Sadrs sagði við fréttamann BBC að átökin væru bandarískum hersveitum að kenna þar sem þær hefðu gert innrás í hverfið. Átök hafa staðið á milli hersetuliðsins og manna al-Sadrs í hverfinu af og til frá því í apríl og þó að friðarsamningar hafi verið gerðið í ágúst halda skærur áfram. Myndin er tekin í Sadr-borg í morgun.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Ekki allir sammála um magn jólaskreytinga eða litaval Innlent Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Erlent Háskólafólk mótmælir gjaldtöku á nemendur utan EES Innlent Launmorð á götum New York Erlent Konfektið í hæstu hæðum Innlent Bankarnir of bráðir í vaxtahækkunum Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Erlent Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Plötusnúður fagnar sigri gegn Reyni Traustasyni Innlent Fleiri fréttir Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Franska ríkisstjórnin fallin Ákæra forsetann formlega vegna herlaga Launmorð á götum New York Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Sjá meira