Björgunarsveitir
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 46 ›
Féll í gjá í Heiðmörk Kona féll í sprungu í Heiðmörk í dag. Hún mun hafa verið á Búrfellsgjár gönguleiðinni þegar hún féll og voru björgunarsveitir frá Garðabæ og Hafnarfirði sendar á vettvang. Innlent 18.2.2024 15:58
Féll útbyrðis þegar eldur kviknaði í vélarrúmi Einn maður úr þriggja manna áhöfn léttabáts Herjólfs féll útbyrðis þegar eldur varð laus í vélarrúmi bátsins. Þegar björgunarskipið Þór kom á staðinn hafði hinum tveimur tekist að hífa manninn um borð og slökkva eldinn með slökkvikerfi í vélarrúmi hans. Innlent 15.2.2024 20:46
„Þetta er allt á hreyfingu“ Björgunarsveitarmaður sem var á vakt í Grindavík í dag segir jörðina enn á hreyfingu í bænum. Hann segist merkja breytingar í þessari frá þeirri síðustu, hús halli meira og merki um jarðhræringar sjáist á malbiki. Innlent 13.2.2024 23:12
Segir Zodiac hafa hirt greiðsluna upp í eldri skuld Lúther Gestsson, fyrirsvarsmaður félagsins Knarrarvogs ehf (Sportbátar) er afar ósáttur við fjölmiðlaumfjöllun þar sem greint hefur verið frá því að Björgunarsveit Skagfirðingasveit hafi verið hlunnfarin um andvirði heils Zodiac-báts og um tæki að andvirði níu milljóna. Innlent 9.2.2024 14:35
Opið hús hjá björgunarsveitum: „Húsið er hlýtt“ Björgunarsveitir á Reykjanesi fóru ekki í útköll í nótt vegna kulda þar og skorts á heituvatni. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir nóttina hafa verið rólega. Innlent 9.2.2024 08:44
Landhelgisgæslan greiddi Sportbátum tæpar þrjár milljónir Landhelgisgæslan greiddi fyrirtækinu Sportbátum tæpar þrjár milljónir inn á Zodiak-bát fyrir sjómælingaskipið Baldur í nóvember í fyrra. Fyrirtækið er sagt hafa snuðað björgunarsveitina Skagfirðingasveit um níu milljónir. Innlent 6.2.2024 22:48
Skagfirðingasveit segist svikin um níu milljónir króna Svo virðist sem fyrirtækið Sportbátar stundi afar vafasama viðskiptahætti svo ekki sé meira sagt. Björgunarsveitin Skagfirðingasveit segir fyrirtækið hafa svikið sig um andvirði hálfs Zodiak-báts og tæki samanlagt að andvirði níu milljóna. Innlent 6.2.2024 11:56
Gengið of nærri björgunarsveitum Gengið hefur verið of nærri björgunarsveitum og efla þarf aðra viðbragðsaðila í almannavarnakerfinu, að mati þingmanns Pírata. Sérstök umræða um almannavarnir og áfallaþol Íslands fer fram á Alþingi í dag. Innlent 5.2.2024 11:50
Eðlilegt að þolinmæði björgunarsveitarmanna þverri Í fyrsta sinn í sögunni geta björgunarsveitir ekki mætt óskum viðbragðsaðila um mannskap og ná ekki að manna vaktir í Grindavík. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir eðlilegt að þolinmæði björgunarsveitarmanna og aðstandenda þeirra þverri. Innlent 3.2.2024 13:01
Rak upp í grjótgarðinn í Hafnarfirði Skúta slitnaði laus í Hafnarfjarðarhöfn í nótt og rak upp í grjótgarð hafnarinnar. Björgunarsveitir komu henni aftur á flot í morgun og er hún lítið skemmd, að sögn Jóns Þórs Víglundssonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Innlent 3.2.2024 11:05
Minnast tveggja fallinna félaga Slysavarnafélagið Landsbjörg minnist tveggja fallinna félaga í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Það eru Frímann Grímsson og Júlíus Þór Gunnarsson sem báðir sinntu störfum fyrir Landsbjörgu. Báðir voru bornir til grafar í vikunni. Innlent 27.1.2024 14:04
Kallaðar út vegna vélsleðaslyss við Hamragarðaheiði Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út vegna konu sem slasaðist í vélsleðaslysi á Hamragarðaheiði vestan við Eyjafjallajökul, skömmu eftir hádegi í dag. Innlent 19.1.2024 13:36
„Eykur óvissuna enn og aftur“ Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður hjá Þorbirni, segir að sér hafi liðið vel í Grindavík í dag þar sem hann, ásamt fleirum, vann í bænum. Vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík var frestað í dag vegna snjóþyngsla, en björgunarsveitir og slökkvilið voru í bænum og unnu að því að moka snjó. Innlent 18.1.2024 22:12
Fyllsta öryggis hafi ekki verið gætt Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að sér hafi verið verulega brugðið vegna atviks þar sem björgunarsveitamaður féll með lærið ofan í sprungu í gær. Ljóst sé að öryggisreglum hafi ekki verið fylgt. Innlent 16.1.2024 11:08
Björgunarsveitir þurft að skipta sér af færra fólki en í fyrri gosum Björgunarsveitir hafa þurft að hefta för fólks sem vill fara gangandi að eldgosinu norður af Grindavík. Ásóknin er þó minni en áður, sem er vel að sögn björgunarsveitarmanns. Innlent 15.1.2024 20:00
Jörðin gaf sig undan björgunarsveitamanni „Þetta sýnir bara hversu ótryggt svæðið er hérna og hversu hættulegt þetta er. Ég var bara að labba eftir þessum stíg og það virtist allt vera í góðu lagi fyrir framan mig,“ segir björgunarsveitamaður að störfum í Grindavík. Rétt í þessu gaf jörðin sig þegar hann gekk eftir malbikuðum stíg. Innlent 15.1.2024 16:27
Ævintýraleg björgun Íslendings í lífshættu Neyðartilvik kom upp um borð í ítalska skemmtiferðskipinu Costa Smeralda síðastliðinn miðvikudag þegar Íslendingur um borð veiktist lífshættulega. Þökk sé þyrlusveit Landhelgisgæslunnar á Ítalíu var honum bjargað naumlega. Erlent 15.1.2024 15:37
Fólk fari ekki að gosinu: „Nýtið orkuna ykkar í eitthvað annað“ Miklar varúðarráðstafanir hafa verið í gildi frá upphafi eldgossins við Grindavík í morgun. Björgunarsveitarmaður biðlar til fólks að koma ekki að svæðinu. Innlent 14.1.2024 20:13
„Vinsamlegast gefið okkur vinnufrið“ Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna, segir fjölda fólks hafa þyrpst að Reykjanesskaga til að berja eldgos sem hófst í morgun augum. Hann biður fólk um að vera heima og gefa viðbragðsaðilum vinnufrið til að bjarga því sem bjargað verður. Innlent 14.1.2024 10:28
Eldgos er hafið Eldgos er hafið norðan við Grindavík. Fyrsta mat á staðsetningu er nálægt Sundhnúk klukkan 7:57 í morgun. Innlent 14.1.2024 08:00
Ekki hægt að réttlæta áframhaldandi leit Ekki var hægt að réttlæta áframhaldandi leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík í gær vegna lífshættulegra aðstæðna við björgun, að sögn lögreglustjóra. Svipað hættulegar sprungur finnist víða í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í bænum. Innlent 13.1.2024 12:10
Hætta leitinni að manninum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru. Innlent 12.1.2024 19:14
Sex fluttir með þyrlum til Reykjavíkur Sex af þeim átta sem slösuðust í árekstri á hringveginum nærri Svínafellsjökli eru á leiðinni til Reykjavíkur með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Von er á þeim á Landspítalann í Fossvogi upp úr klukkan eitt. Innlent 12.1.2024 12:55
Hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag Leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík er hafin á ný. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir leit ganga vel og að hann sé hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag. Innlent 12.1.2024 12:15
Hlé gert á leitinni í Grindavík í nótt Á tólfta tímanum í gærkvöldi var gert hlé á leitinni að manninum sem féll í sprungu í Grindavík sökum aðstæðna á slysstað. Innlent 12.1.2024 06:51
Hægur gangur í leitinni en rofar til Hjálmar Hallgrímsson, sem stýrir aðgerðum á vettvangi í Grindavík, segir að unnið sé hörðum höndum að því að greiða fyrir aðgengi í sprungunni, sem talið er að maður hafi fallið ofan í. Innlent 11.1.2024 15:30
Stöðug viðvera í sprungunni en telja óöruggt að senda kafara Sigmenn á vegum Landsbjargar hafa stöðuga viðveru ofan í sprungunni í Grindavík, sem talið er að maður hafi fallið ofan í, en ekki er talið öruggt að senda kafara til leitar í vatni sem tekur við á margra metra dýpi ofan í sprungunni. Aðgengi íbúa að Grindavík helst óbreytt. Innlent 11.1.2024 10:49
„Það verður unnið í þessu þangað til málið leysist“ Björgunarsveitir hafa hafið leit á ný að manni sem féll niður í sprungu í Grindavík í dag. Leitin fer þannig fram að tveir og tveir leita í einu, með því að síga ofan í sprunguna í körfu. Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við fréttastofu. Innlent 10.1.2024 22:08
„Jörðin bara opnast undir fótum hans“ Karlmanns sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík í dag er enn leitað. Aðstæður í bænum eru sagðar hættulegar fyrir björgunarfólk. Lögreglustjóri á Suðurnesjum lýsir slysinu þannig að jörðin hafi opnast undan manninum og hann hafi ekki ráðið við aðstæður. Hans verði leitað í alla nótt gerist þess þörf. Innlent 10.1.2024 19:06
Stefna á að fara aftur niður sprunguna í kvöld Björgunaraðilar í Grindavík stefna að því að senda björgunarmenn niður sprungu í Grindavík á nýjan leik í leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprunguna í morgun. Maðurinn hafði verið einn við vinnu við jarðvegsþjöppun eftir sprungufyllingu. Innlent 10.1.2024 18:01