
Upptökur á Klaustur bar

„Tala með ruddalegum, klámfengnum og niðrandi hætti um samstarfskonur sínar“
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, virtist ekki yfir sig hrifin af málsvörn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Segist hafa verið „meginskotmarkið í þessari aðgerð“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, sakar fulltrúa á Alþingi um að hafa „nýtt glæp“ til að reyna að klekkja á pólitískum andstæðingum þegar forsætisnefnd Alþingis vísaði Klaustursmálinu til siðanefndar.

Bergþór segir sitt uppgjör fara fram gagnvart kjósendum
Forsætisnefnd Alþingis staðfesti nú síðdegis þá niðurstöðu siðanefndar þingsins að Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson hafi brotið siðareglur fyrir alþingismenn með ummælum sínum á barnum Klaustri í nóvember í fyrra. Hvorugur þeirra hyggst segja af sér þingmennsku. Bergþór segir að hann verði dæmdur af kjósendum en ekki pólitískt skipaðri siðanefnd.

Menntamálaráðherra um Gunnar og Bergþór: „Ummælin verða þeim til ævarandi skammar“
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, er ekki ánægð andmælabréf Klaustursþingmannanna.

Fallast á niðurstöðu siðanefndar
Gunnar Bragi og Bergþór brutu gegn siðareglum.

Hafa klárað Klaustursmálið og birta niðurstöðuna síðar í dag
Vinnu sérstakrar forsætisnefndar um Klaustursmálið er lokið en síðasta fundi nefndarinnar var slitið nú fyrir hádegi.

Forsætisnefnd fundar um Klaustursmálið í dag
Umfjöllun nefndarinnar lýkur með skilum á greinargerð um málið.

Bergþór og Gunnar Bragi sagðir hafa brotið siðareglur Alþingis
Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson þingmenn Miðflokksins brutu siðareglur alþingismanna með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóvember síðastliðinn.

Segir afgreiðslu forsætisnefndar ekki hafa strandað á andmælum Bergþórs
Fréttamiðillinn Viljinn birti í kvöld frétt þar sem fullyrt er að andmæli Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, hafi orðið til þess að ekki hafi reynst unnt að afgreiða álit siðanefndar á fundi bráðabirgðaforsætisnefndar um Klaustursmálið svokallaða í gær.

Forsætisnefnd komin að niðurstöðu í Klaustursmálinu
Forsætisnefnd Alþingis hefur komist að niðurstöðu um álit siðanefndar vegna Klausturmálsins. Vinnu þeirra Haraldar Benediktssonar og Steinunnar Þóru Árnadóttur, sem skipuð voru tímabundið í forsætisnefnd til að fjalla um málið, er þó ekki lokið.

Miðflokksmenn skiluðu inn andsvörum
Varaforsetar Alþingis taka nú málið fyrir.

Telur ekki viðeigandi að tjá sig að svo stöddu
Forsætisnefnd hyggst taka málið fyrir í næstu viku en hefur gefið þingmönnunum sex, sem komu fyrir í upptökunni af samtali þeirra á Klaustur á síðasta ári, frest út vikuna til að bregðast við því.

Siðanefnd skilar áliti um Klausturmálið til forsætisnefndar
Siðanefnd Alþingis hefur skilað áliti sínu um Klausturmálið til forsætisnefndar. Þingmennirnir sex sem fram komu á upptökunni frest út vikuna til að bregðast við álitinu og mun forsætisnefnd taka málið fyrir í næstu viku.

Íhugar að gefa Þjóðminjasafninu símann sem innihélt Klaustursupptökurnar
Bára Halldórsdóttir segir að síminn sem hún notaði á Klaustur verði varðveittur á einhvern hátt.

O Fortuna spilað þegar Bára eyddi upptökunum
„Báramótabrennan“ fór fram í kvöld á Gauknum en þar eyddi Bára Halldórsdóttir hinum frægu Klaustursupptökum.

Boðað til Báramótabrennu
Bára Halldórsdóttir ætlar að eyða Klaustursupptökunum svonefndu með viðhöfn á Gauknum annað kvöld. Það er Margrét Erla Maack sem boðar til viðburðarins og segist munu fá að leika brennuna og vítisloga eyðileggingar.

„Ég tók þetta á mig algjörlega viljandi“
Bára segist í samtali við fréttastofu vera í veikindafríi þessa dagana enda hafi málið tekið mikinn toll af henni. Hún hyggst á allra næstu dögum ráðfæra sig við sína lögmenn um hvernig best sé að eyða hljóðupptökunum því í úrskurði Persónuverndar kemur fram að Bára þurfi að sýna fram á að þeim hafi verið eytt með réttum hætti.

Spyr hvort Miðflokksmenn þori ekki að nefna hana á nafn
Þingmaður Miðflokksins nefndi þingkonu Framsóknarflokksins aðeins þingmann suður með sjó þegar langt var liðið á málþóf um þriðja orkupakkann á Alþingi í gærmorgun.

Segist ánægður með úrskurðinn
Persónuvernd úrskurðaði í gær um að upptaka Báru Halldórsdóttur á samtali Miðflokksmanna á Klaustri bar í nóvember hefði farið í bága við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Breytti Klaustursmálinu í myndasögu
Myndasaga um Klaustursmálið eftir íslensku listakonuna Elísabetu Rún birtist á vefritinu The Nib í gær.

Yrði forvitnilegt að yfirheyra Miðflokksmenn
Upptaka Báru Halldórsdóttur af samtali þingmannanna á Klaustur bar var ólögleg að mati persónuverndar. Lögmaður Báru telur líklegt að þingmennirnir höfði skaðabótamál með niðurstöðuna að vopni.

Ekki markmiðið að sækja fúlgur fjár í hirslur Báru
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og einn fjórmenninganna sem kærðu Báru Halldórssdóttur til Persónuverndar fyrir upptöku hennar á samræðum þingmannanna á Klausturbar, segir að niðurstaða Persónuverndar í málinu sé ánægjuleg.

Miðflokksmenn geti höfðað skaðabótamál
Báru Halldórsdóttur hefur verið gert að eyða upptökum af samtölum þingmannanna á Klausturbar og ætlar hún að verða við því að sögn lögmanns. Stjórn Persónuverndar komst að þeirri niðurstöðu í gær að upptakan hafi verið ólögmæt. Sérfræðingur í persónurétti segir að Miðflokksmenn geti höfðað skaðabótamál á grundvelli upptökunnar.

Segir Miðflokksmenn hafa beðið um frest en svo lekið úrskurðinum
Vefsíða með tengsl við Miðflokkinn birti meginniðurstöðu Persónuverndar um Klaustursupptökunar í gær. Vinur Báru Halldórsdóttur sakar miðflokksmenn um að hafa lekið henni út á sínum forsendum.

Hellir sér yfir Miðflokkinn: Földu peninga í Panama, lugu að þjóðinni og opinberuðu mannfyrirlitningu á Klausturbar
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir ofsóknarkennd eiga sér ýmsar birtingarmyndir.

Enginn „samverknaður“ af hálfu Báru á Klaustri
Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar í máli Miðflokksmanna gegn Báru, sem fréttastofa hefur undir höndum.

Bára braut persónuverndarlög og þarf að eyða upptökunum af Klaustri
Stjórn Persónuverndar komst að þeirri niðurstöðu á fundi sínum í dag en Báru var þó ekki gert að greiða sekt.

Framsóknarkonur fordæma niðurstöðu siðanefndar í ljósi Klaustursmálsins
Þetta kemur fram í tilkynningu sem LFK sendi frá sér í gærkvöldi.

Stefnum sennilega í alræði
Dyr opnast er ný bók eftir Hermann Stefánsson og fjórtánda skáldverk hans. „Þarna eru smáprósar, smásögur og sagnaþættir. Mér finnst gaman að blanda misjöfnu saman,“ segir höfundurinn.

Óþekkta konan stígur fram og segir smáhlutinn vera skopparakringlu
Óþekkta konan sem þingmenn Miðflokksins telja að hafi afhent Báru Halldórsdóttur "ljósan mun“ á barnum Klaustri að kvöldi 20. nóvember er Ragnheiður Erla Björnsdóttir, vinkona Báru. Ljósi munurinn sem hún á að hafa afhent Báru var að sögn Ragnheiðar Erlu lítil skopparakringla.