

Íslandsbanki hafnaði nýverið tillögu Gamla Byrs, sem lauk nauðasamningum í janúar árið 2016, að sáttum í ágreiningsmáli um virði útlánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði haustið 2011.
Hreiðar Már var sýknaður af hluta ákæru en sakfelldur fyrir innherjasvik. Honum verður þó ekki gerð refsing.
Hæstiréttur hefur hafnað kröfu Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi hluthafa í Kaupþingi, þess efnis að Vilhjálmur Vilhjálmsson landsréttardómari víki sæti í máli þess fyrrnefnda fyrir réttinum.
Mál gegn Hreiðari Má Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, vegna lánveitingar sem tengdist hlutabréfakaupum og innherjasvika er „fordæmalaus tilraunastarfsemi“ að sögn verjanda hans.
Ekki er mark takandi á framburði fyrrverandi stjórnarmanna og yfirmanna hjá Kaupþingi um að stjórn bankans hafi ekki þurft að samþykkja lán til Hreiðars Más Sigurðssonar bankastjóra sérstaklega skömmu fyrir fall bankans árið 2008.
Saksóknari byggir meðal annars á að bankastjóri Kaupþings hafi látið bankann veita sér lán án samþykkis stjórnarinnar.
Fyrrverandi fjármálastjóri Kaupþings sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintum umboðssvikum Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi bankastjóra Kaupþings, segist ekki hafa komið að lánveitingu til hans eða tekið ákvarðanir um hana.
Þetta fullyrti Hreiðar Már í skýrslu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en hann er ákærður fyrir umboðs- og innherjasvik vegna viðskiptanna og láns bankans vegna þeirra.
Fyrrverandi bankastjóri Kaupþings fékk 575 milljóna króna kúlulán án samþykktar stjórnar bankans.
Tíu ár eru ekki langur tími í sögu þjóðar svo það er stutt síðan að hér fór allt á hliðina. Efnahagslífið hefur þó náð sér vel á strik á ekki lengri tíma og vonandi hefur þjóðin líka lært eitthvað á þessum áratug.
Alex Ford er fædd árið 1993. Hún er tuttugu og fimm ára gömul námskona og listamaður. Hún segist muna afar lítið eftir upphafi hrunsins og mótmælunum sem urðu í kjölfarið.
Þetta er fyrsta árið í tuttugu ár sem við erum í plús,“ segir Jóhanna Þorvaldsdóttir um rekstrarstöðuna á geitabúinu á Háafelli.
Bankastjórar, stórir hluthafar í bönkunum og aðrir áhrifamenn í fjármálalífinu hurfu margir hverjir úr sviðsljósinu í kjölfar fjármálahrunsins. Flestir þeirra hafa þó náð að fóta sig að nýju.
Tíu árum eftir hrun vita Björn Arnarson og Halla Sigrún Gylfadóttir, hjón með tvö börn í hálfkláruðu húsi, loksins hvað þau skulda Arion banka.
Fræðimenn hafa gert ýmsar rannsóknir á heilsu þjóðarinnar sem og einstakra hópa eftir hrun. Við ræddum við nokkra þeirra um niðurstöður þessara rannsókna.
Maður sem tapaði nánast öllu sparifé sínu í hruninu og missti svo íbúðina sína á nauðungarsölu vegna gengisláns segist sjá eftir því að hafa ekki treyst innsæinu heldur bankastarfsmönnum í aðdraganda hrunsins.
Lög um sérstakan saksóknara voru samþykkt á Alþingi í desember 2008 en það var Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, sem lagði fram frumvarp um stofnun embættisins.
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands segir að margvíslega lærdóma megi draga af Icesave-málinu. Umræða um málið hafi einkennst af hjarðhugsun bæði á vettvangi stjórnmála og fræðasamfélagsins. Hann segir að mikilvægasti lærdómurinn sé að treysta eigi þjóðinni fyrir stórum og erfiðum málum.
Þúsundir manna komu saman á Austurvelli haustið 2008 og í janúar 2009 til þess að mótmæla ríkisstjórninni, Seðlabankanum, Fjármálaeftirlitinu og bara ástandinu í þjóðfélaginu almennt. Mótmælin eru best þekkt sem Búsáhaldabyltingin eftir að mótmælendur komu saman með potta, pönnur og önnur búsáhöld og létu í sér heyra.
Neyðarlögin sem Alþingi samþykkti 6. október 2008 voru fordæmalaus lagasetning á heimsvísu en með því fékk Fjármálaeftirlitið víðtækar heimildir til að taka yfir starfsemi bankanna og skipta þeim upp i gamla og nýja banka. Þá fengu innistæður forgang fram yfir aðrar kröfur.
Á þessum degi fyrir sléttum tíu árum var tilkynnt um kaup ríkisins á 75 prósenta hlut í Glitni banka fyrir 84 milljarða króna. Af kaupunum varð þó aldrei og Glitnir rétt eins og hinir stóru bankarnir var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu og fór í kjölfarið í slitameðferð.
Í aðdraganda hrunsins 2008 leitaði Seðlabanki Íslands eftir aðstoð frá Seðlabanka Bandaríkjanna til að styrkja gjaldeyrisforða íslenska ríkisins í þeim ólgusjó sem var framundan en var ítrekað neitað. Á sama tíma fengu seðlabankar allra hinna Norðurlandanna slík lán.
Framkvæmdastjóri Karolina fund telur ólíklegt að hópfjármögnunarsíðan hefði litið dagsins ljós ef ekki hefði verið fyrir stuðning stjórnvalda sem hann þáði á árunum eftir hrun bankakerfisins.
Á árunum upp úr síðustu aldamótum uxu íslensku bankarnir hratt með samrunum og yfirtökum erlendis. Þegar bankarnir féllu í október 2008 voru þeir orðnir tíu sinnum landsframleiðsla Íslands.
Í dag hefst fréttaröð fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem rýnt verður í hrunið á tíu ára afmæli þess.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, útilokar ekki að íslensk stjórnvöld taki upp þráðinn á nýju við Breta vegna framkomu breskra yfirvalda í garð Íslands í bankahruninu haustið 2008.
Óréttlæti gagnvart leigjendum er yfirgengilegt að sögn þeirra Öldu Lóu og Gunnars Smára.
Flestir sem tjá sig um skýrslu Hannesar Hólmsteins efast um hæfi hans gagnvart viðfangsefninu.
Halda átti árshátíð Stjórnarráðsins 6. október næstkomandi. Forsætisráðherra stöðvaði þau áform eftir samtal við menntamálaráðherra. Nokkurrar óánægju gætir í starfsliðinu með afskiptasemi og meinta viðkvæmni ráðherranna.