Heilbrigðismál

Óttast að fyrirhugað verkfall hjúkrunarfræðinga hægi á árangri
Fjöldi þeirra sem dvelja í meira en sólarhring á Bráðamóttöku Landspítalans þrefaldaðist á milli áranna 2018 og 2019.

Erfiðar viðræður en ágætur fundur
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segir viðræður í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins mjög þungar, erfiðar og flóknar. Tveggja tíma fundur í dag hafi þó verið ágætur. Hann segir greinilegt að báðar samninganefndir finni fyrir mikill ábyrgð, samtalið hafi verið hreinskilið og uppbyggilegt.

Sprengivinnu vegna nýs Landspítala senn lokið
Síðasta táknræna, stóra sprengingin vegna framkvæmda við byggingu meðferðarkjarna nýs Landspítala við Hringbraut var gerð fyrr í dag. Til stendur að opna sjúkrahúsið árið 2026.

Segir of langt á milli hjúkrunarfræðinga og ríkisins
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir ríkisins annars vegar, og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, FÍH, hins vegar, á sinn fund klukkan 14:30 í dag. Formaður FÍH segir stöðuna sem er uppi í kjaradeilum hjúkrunarfræðinga og ríkisins grafalvarlega.

Stóðu saman í þessu frá upphafi
Sóli Hólm og Viktoría Hermannsdóttir höfðu aðeins verið saman í níu mánuði þegar hann greindist með krabbamein, sumarið 2017. Sóli hefur talað mjög opinskátt um þessi veikindi en hann íhugaði þó að halda krabbameinsgreiningunni leyndri frá öllum nema sínum nánustu.

Alvarlegasta smithættan á djamminu
Fimm hundruð manns mega koma saman frá og með næsta mánudegi þegar samkomubanni verður aflétt frekar. Skemmti- og vínveitingastöðum verður áfram lokað klukkan ellefu en óvíst er hvenær því verður breytt.

Svandís vonar að ekki komi til verkfalls hjúkrunarfræðinga
Heilbrigðisráðherra segir unnið að því á bæði óformlegum og formlegum fundum að ná samningum við hjúkrunarfræðinga svo ekki komi til aðgerða þeirra hinn 22. júní.

Svæfingalæknir hefur ítrekað íhugað uppsögn á Landspítala vegna álags
Theodór Skúli Sigurðsson, svæfingalæknir á Landspítalanum, segir álagið á svæfingalækna spítalans gríðarlegt og þeir séu oft að gefa tíma sinn.

Lýsa áhyggjum af yfirvofandi verkfalli hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarráð Landspítalans lýsir yfir áhyggjum af yfirvofandi verkfalli hjúkrunarfræðinga í ályktun sem það hefur sent samninganefnd ríkisins og tveimur ráðuneytum. Varar það við því að þjónusta eigi eftir að skerðast verulega ef til verkfalls kemur.

Fleiri verða teknir í nám í hjúkrun og boðið upp á sjúkraliðanám á diplómastigi
Gripið verður til ráðstafana til að fjölga nemum í hjúkrunarfræði um árlega um tuttugu í Haskóla Íslands og annað eins við Háskólann á Akureyri. Auk þess verður boðið upp á sjúkraliðanám á diplómastigi haustið 2021 fyrir norðan.

„Fáir fara í gegnum þetta ferli uppréttir allan tímann“
Birkir Már Birgisson greindist með krabbamein árið 2017, þá tæplega fertugur að aldri. Með skurðaðgerð og níu mánaða lyfjameðferð var meinið á brott en í því ferli var ljóst að áhrif meðferða á líkamann yrðu umtalsverð.

Þungur og erfiður fundur í Karphúsinu
Samningafundur í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga og ríkisins sem lauk stuttu eftir klukkan fjögur í dag var þungur og erfiður segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari í samtali við fréttastofu.

Verkfall hjúkrunarfræðinga myndi raska sýnatökum
Á blaðamannafundi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í dag sagðist hún vona að það kæmi ekki til verkfalls og að samningar myndu nást fljótlega.

Tvö alvarleg mál gegn Alzheimersjúklingum á stuttum tíma „hreinn og klár glæpur“
Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna, telur að það brot gegn Alzheimersjúklingum séu of algeng hér á landi.

Þurftu að fækka plássum á Vogi um helming í samkomubanni
Fækka þurfti plássum á sjúkrahúsinu Vogi um helming á meðan á samkomubanni stóð og vegna erfiðleika við fjármögnun verður starfsemin skert út árið.

Magnað að vera á lífi og hafa heilsu til að geta í alvöru klifið þetta fjall
Hulda Hjálmarsdóttir sigraðist á krabbameini fyrir 17 árum síðan. Hún er nú framkvæmdastjóri Krafts sem er að setja af stað hlaðvarpið Fokk ég er með krabbamein. Hulda tekur einnig þátt í verkefninu Lífskraftur og ætlar að þvera Vatnajökul.

Einkaþota sækir dýrmæt blóðkorn úr Íslendingum
Einkaþota lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir klukkan átta í kvöld í þeim eina tilgangi að sækja einn pappakassa. Innihald kassans gæti hins vegar reynst einhver dýrmætasta fraktsending sögunnar frá Íslandi.

Ætla að þvera Vatnajökul á tíu dögum
Það óraði aldrei fyrir Sirrý Ágústsdóttur að fimm árum eftir að hún greindist með krabbamein í annað sinn væri hún á leið í tíu daga ferðalag yfir Vatnajökul.

Segir heilbrigðisráðuneytið ítrekað fresta því að hefja skimun fyrir ristilkrabbameini
Heilbrigðisráðunetið hefur ítrekað frestað því að hefja skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi að sögn framkvæmdastjóra Krabbameinsfélagsins sem hefur einnig áhyggjur af því að brjóstaskimun falli niður tímabundið um áramótin.

Ætla að tryggja að skimanir falli ekki niður
Tryggt verður að krabbameinsskimanir falli ekki niður þegar Landspítala verður falin ábyrgð á skimun fyrir brjóstakrabbameini í samstarfi við Sjúkrahúsið á Akureyri í lok árs 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Greina ekki sýni á nóttunni
Ekki verður hægt að greina sýni úr farþegum sem koma með flugi til landsins seint á kvöldin eða á nóttunni fyrr en daginn eftir að sögn sóttvarnalæknis. Hann segir undirbúningi fyrir skimun á landamærum miða vel áfram.

Brjóstaskimanir gætu fallið niður í fjóra mánuði
Krabbameinsfélag Íslands varar við því að skimun fyrir brjóstakrabbameini gæti fallið niður tímabundið í að minnsta kosti fjóra mánuði frá næstu áramótum vegna ákvörðun ráðherra um að færa skimunina til Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri.

Þunglyndiseinkenni tvöfalt tíðari í heimahjúkrun en á öldrunarheimilum
Tíðni þunglyndiseinkenna hjá öldruðum er nær tvöfalt hærri á meðal þeirra sem fá heimahjúkrun en á öldrunarheimilum. Tíðni þunglyndislyfja á öldrunarheimilum er aftur á móti 55% samanborið við 32,% prósent í heimahjúkrun. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós.

Dómsmálaráðherra og 98 ára afi verndarar ferðarinnar
Snjódrífurnar sem standa að baki átaksverkefninu, Lífskraftur, leggja af stað í göngu sína yfir Vatnajökul á morgun sunnudaginn 7. júní.

Fimmtán prósenta samdráttur hjá Vogi vegna tekjubrests
Sjúkrahúsið Vogur hefur þurft að draga úr meðferðarplássum um fimmtán prósent vegna tekjuskorts. Verulega þurfti að draga úr meðferðarplássum frá miðjum mars þar til í lok maí vegna kórónuveirufaraldursins og er biðtími fyrir suma allt að margir mánuðir.

Næst besti árangur í lækkun kolesteróls frá 1980
Ný rannsókn sem birtist í nýjasta hefti vísindatímaritsins Nature sýnir að slæmt kólesteról, það er kólesteról sem eftir er þegar svokallað góða HDL kólesterólið hefur verið dregið frá, hefur hækkað mest í Asíuríkjum og lækkað mest á Vesturlöndum.

Skimun á landamærum gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar og kostar svo 15 þúsund krónur
Skimunin gjaldfrjáls fyrstu tvær vikurnar og kostar svo 15 þúsund krónur.

Smitaðir með háan blóðþrýsting tvöfalt líklegri til að láta lífið
Ný rannsókn á fólki sem smitaðist af kórónuveirunni virðist leiða í ljós að fólk með of háan blóðþrýsting er tvisvar sinnum líklegra til að láta lífið af völdum sjúkdómsins en fólk sem er með eðlilegan þrýsting.

„Dýrmætt fyrir okkur hin að heyra þessar sögur“
Á næstu dögum fer af stað á Vísi hlaðvarpið Fokk ég er með krabbamein. Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir segir að allir hafi gott af því að heyra af því hvað annað fólk er að ganga í gegnum.

Borgin tilkynnir Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins
Reykjavíkurborg hefur tilkynnt Flugfélaginu Erni að rífa eigi viðhaldsstöð félagsins á Reykjavíkurflugvelli bótalaust vegna nýs skipulags. Forstjórinn Hörður Guðmundsson kallar þetta árás á innanlandsflugið enda geti þetta leitt til þess að starfsemi félagsins leggist af.