Heilbrigðismál

Fréttamynd

Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni

Héraðssaksóknari telur Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi með því að sjá til þess að henni yrðu gefin morfín og morfínskyld lyf. Þung lyfjameðferð hafi orðið til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar. Börn hennar krefjast samtals tuga milljóna króna í miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

Allir far­þegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands

Allir farþegar MV Hondius hafa nú yfirgefið skipið, eftir að hantaveira kom upp um borð. Skipið hefur lagt úr höfn frá Tenerife og er á leið til Hollands. Frakki og Bandaríkjamaður greindust með hantaveiru eftir að hafa yfirgefið skipið og haldið heim. Báðir eru í einangrun.

Erlent
Fréttamynd

Þegar kerfið gerir veikt fólk veikara

Á alþjóðlegum ME degi er mikilvægt að hlusta á raddir þeirra sem lifa með sjúkdómnum. ME er alvarlegur, langvinnur taugasjúkdómur sem skerðir lífsgæði verulega og getur gert fólk óvinnufært árum saman og jafnvel ævilangt.

Skoðun
Fréttamynd

Við þurfum öll á hjúkrun að halda

Í dag, 12. maí, er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga og jafnframt fæðingardagur Florence Nightingale, sem gjarnan er kölluð fyrsti hjúkrunarfræðingurinn.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“

Friðrik Ellert Jónsson hefur starfað sem sjúkraþjálfari í tæplega þrjátíu ár. Á þeim tíma hefur hann meðal annars starfað sem sjúkraþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, á gullaldarárum liðsins sem fór á EM og HM, og hjá liði Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni. Tæknin gerir honum kleift að hjálpa fleirum sem bíða í röðum eftir að komast að hjá sjúkraþjálfara.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­maður WHO hug­hreystir Tenerife-búa

Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar fullvissaði íbúa Tenerife um að hættan sem stafaði af skemmtiferðaskipinu MV Hondius sem leggur að landi þar á morgun eftir að hantaveira dró þar þrjá til bana, væri lítil og að enginn um borð sýndi einkenni.

Erlent
Fréttamynd

Jenner segist hafa veikst af Ozempic

Athafnakonan Kris Jenner segist hafa orðið veik af notkun þyngdarstjórnunarlyfsins Ozempic. Hún hafi í kjölfarið farið að sprauta sig með annars konar peptíðum samhliða því að neyta lýsis og ómega-3-fitusýra.

Lífið
Fréttamynd

Sjúkra- og endurhæfingargreiðslur hækkuðu um 37 prósent milli ára

Á árinu 2025 fengu 85.842 einstaklingar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins, TR. Einstaklingum sem þiggja slíkar greiðslur fjölgaði þannig um 2,5 prósent milli ára. Heildargreiðslur TR námu tæplega 250 milljörðum króna á árinu. Þetta kemur fram í ársskýrslu TR fyrir árið 2025.

Innlent
Fréttamynd

Þegar hagnaður ein­stak­linga vegur þyngra en heilsa þjóðar

Frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum nr. 75/1998 er nú til meðferðar á Alþingi. Með frumvarpinu er lagt til að heimila innlenda vefverslun með áfengi auk heimsendinga á áfengi. Verði frumvarpið að lögum mun núverandi fyrirkomulag og áfengisstefna í raun gjörbreytast. Þessi breyting mun leiða til aukinnar samkeppni og verðlækkunar sem mun að öllum líkindum leiða til aukinnar áfengisnotkunar með tilheyrandi skaðlegum afleiðingum fyrir einstaklinga og samfélagið í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Ís­lands

Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Veistu á hvaða lyfjum þú ert?

Lyf eru ein stærsta framfarasaga nútíma læknisfræði. Þau hafa bjargað ótal mannslífum, bætt lífsgæði og gert okkur kleift að lifa lengur og betur. En eins og með margt annað í lífinu er jafnvægi lykilatriði. Það er ekki alltaf sjálfgefið að lyf sem voru nauðsynleg á einum tímapunkti séu það enn í dag.

Skoðun
Fréttamynd

Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljós­mæðra

5. maí er alþjóðadagur ljósmæðra. Í ár er yfirskriftin: Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra. Þú eða einhver sem þú þekkir hefur þurft eða mun þurfa á ljósmóður að halda. Eins og staðan er í dag hafa því miður ekki allir aðgang að ljósmæðraþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Tíma­bært að ræða ein­hverfu kvenna

„Sem klínískur sálfræðingur hef ég í vaxandi mæli orðið vör við hve margar konur hafa búið árum saman með ógreinda einhverfu og hve mikill munur verður á líðan þegar þær fá loksins skýringuna. Konur með langvinnan kvíða, þunglyndi eða átraskanir hafa oft reynt hefðbundnar meðferðir án þess að ná fullum bata.“

Innlent
Fréttamynd

Ekki á­hyggju­efni að skipið sé á leið til Ís­lands

Sóttvarnalæknir segir það ekki áhyggjuefni að farþegaskip þar sem þrír eru látnir úr svokallaðri Hantaveiru muni koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst að þegar sé verið að bregðast við.

Innlent
Fréttamynd

Al­þjóða­dagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir

2. maí er alþjóðlegur dagur hryggbólgusjúkdóma. Þeir sem ekki þekkja til þessa sjúkdóma gæti haldið að um sé að ræða sjaldgæfan vanda sem snertir fáa. Raunin er önnur. Þúsundir Íslendinga lifa með þessum langvinnu bólgusjúkdómum sem leggjast á hrygg og liði. Sjúkdómurinn er ólíkt mörgum öðrum gigtarsjúkdómum mun algengari hjá körlum en konum. Einkennin koma oftast fram hjá ungum mönnum á aldrinum 20-40 ára en því miður er oft löng bið eftir greiningu.

Skoðun
Fréttamynd

Takk hjúkrunar­fræðingar!

Hjúkrunarfræðingar eru öflug fagstétt sem sinnir fjölbreyttum og mikilvægum störfum í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Störf hjúkrunarfræðinga eru einn grundvallarþátta velferðarsamfélagsins sem við erum svo lánsöm að búa í og hafa mikið samfélagslegt gildi.

Skoðun
Fréttamynd

Sakar fram­kvæmda­stjóra Land­spítala um ó­sannindi

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir sakar framkvæmdastjóra á Landspítala um ósannindi og ítrekar að uppsögn hans verði úrlausnarefni dómstóla. Hlutastarf Ragnars, sem er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu, var lagt niður með vísan til rekstrarhagræðingar.

Innlent
Fréttamynd

Matar­æði og hjartaheilsa

Hjarta- og æðasjúkdómar er samnefni yfir þá sjúkdóma sem verða í hjarta og æðarkerfi svo sem: hjartaáföll, kransæðasjúkdómar, hjartabilun, heilablóðfall, æðakölkun, blóðtappar, háþrýstingur og hjartsláttartruflanir.

Skoðun
Fréttamynd

Heil­brigðis­þjónusta eftir póstnúmeri

Ég valdi að búa á landsbyggðinni en ég valdi ekki að þurfa að borga meira fyrir heilbrigðisþjónustu. Samt er það raunin fyrir marga sem þurfa að sækja sérfræðilækna utan heimabyggðar.

Skoðun
Fréttamynd

Engin á­kvörðun tekin eftir upp­sögn dagdvalarsamnings

Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni.

Innlent