Fangelsismál

Fréttamynd

Reyndist fangi undir raf­rænu eftir­liti

Lögreglan handtók ökumann miðsvæðis í Reykjavík grunaðan um að keyra undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn reyndi að skipta um sæti við mann í farþegasætinu í miðjum akstri eftir að lögregla varð þeirra vör. 

Innlent
Fréttamynd

Skilur á­hyggjur af af­slætti en mun nýta heimildina eins og hægt er

Fangelsismálastjóri fagnar lagabreytingu sem heimilar Fangelsismálastofnun að veita föngum reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn ef fyrir liggur ákvörðun um að vísa þeim úr landi. Áhyggjur af afslætti af refsingum séu skiljanlegar en Fangelsismálastofnun telji ástæðu til að nýta heimildina eins og kostur er í það ár sem hún gildir.

Innlent
Fréttamynd

Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi

Brottvísunarferli tíu fanga, sem afplánað hafa minnst þriðjung refsingar sinnar, hefst um leið og ný lög dómsmálaráðherra um brottvísanir fanga taka gildi. Mohamad Kourani er ekki einn þeirra en unnt verður að hefja brottvísunarferli hans eftir um þrjá mánuði.

Innlent
Fréttamynd

„Þá þurfum við að gera miklu betur“

Geðheilbrigðismálum innan fangelsiskerfisins er stórlega ábótavant að mati framkvæmdastjóra Geðhjálpar. Lögmaður manns sem lést í fangelsinu á Hólmsheiði um helgina kallar eftir því að eftirlit og geðheilbrigðisþjónusta innan fangelsa verði rannsökuð. 

Innlent
Fréttamynd

„And­rúms­loftið er þungt og það eru allir slegnir“

Fangelsismálastjóri segir andrúmsloftið þungt innan veggja fangelsins á Hólmsheiði eftir að maður lést þar um helgina. Bæði starfsfólk og fangar séu harmi slegnir. Sá látni var ekki í einangrun og ekki er grunur um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti. 

Innlent
Fréttamynd

Sjálfs­víg í fangelsum of al­geng

Formaður Afstöðu segir sjálfsvíg innan veggja fangelsa allt of algeng. Félagið mun sinna jafningjastuðningi og ráðgjöf næstu daga eftir að maður svipti sig lífi á Hólmsheiði. 

Innlent
Fréttamynd

And­lát í fangelsinu á Hólms­heiði í nótt

Karlmaður sem vistaður var í fangelsinu á Hólmsheiði lést í nótt. Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri staðfestir það við fréttastofu en segist ekki geta greint nánar frá tildrögum andláts eða nánari upplýsingum um þann sem lést. Fyrst var greint frá á RÚV. 

Innlent
Fréttamynd

„Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi

„Það er magnað að sjá árangurinn af þessu og líka að sjá hvað svona lítið framlag hefur skilað sér í miklu,“ segir Sigríður Birna Sigvaldadóttir en stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins valdi hana á dögunum sem einn af sjálfboðaliðum ársins. Frá árinu 2024 hefur Sigríður ásamt fleirum staðið að sérstökum konukvöldum í fangelsinu á Hólmsheiði – sem slegið hafa rækilega í gegn. Markmið verkefnisins er að styðja konurnar sem þar afplána dóma, auka virkni þeirra og styrkja félagsleg tengsl.

Lífið
Fréttamynd

Ný nefnd hefur náðað þrjá

Frá því ný náðunarnefnd tók til starfa í nóvember hafa þrír verið náðaðir. Allir voru náðaðir á grundvelli heilsufars en nefndin hefur hafnað 24 beiðnum.

Innlent
Fréttamynd

Megi búast við út­skúfun úr sam­fé­laginu eftir af­plánun

Neikvæð viðhorf í garð fólks sem hefur brotið af sér eru á pari við þau neikvæðu viðhorf sem fram koma gagnvart þeim sem stríða við alvarlegan geðrænan vanda. Margir vilja halda ákveðinni fjarlægð frá fólki sem hefur afplánað fangelsisdóm og þykir eðlilegt að það sé útilokað frá ýmsum sviðum samfélagsins.

Innlent
Fréttamynd

Yfir­full fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu

Það hlýtur að vera komið nóg af innantómum afsökunum hjá hinu opinbera um hvar vandinn liggur. Aftur og aftur heyrist sama krafan: meira fjármagn í kerfi sem virðist verða sífellt ábyrgðarlausara og ráðaleysið alsráðandi. Nú síðast ryðjast fangaverðir fram á sjónarsviðið og kalla eftir betra vinnuumhverfi.

Skoðun
Fréttamynd

„Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“

Ásdís Birna Bjarkadóttir var tólf ára þegar faðir hennar var dæmdur í átta ára fangelsi. Málið var áberandi í fjölmiðlum en heima fyrir ríkti þögn. Nú, sextán árum síðar, hefur hún skrifað bókina Þegar pabbi fór í fangelsi, bók sem hún skrifaði til „litlu Ásdísar“, til að svara þeim spurningum sem hún hefði sjálf viljað fá svör við á sínum tíma.

Lífið
Fréttamynd

Dómar eiga að hafa til­gang

Við umræðu um fjármálaáætlun á Alþingi í gærdag fullyrti dómsmálaráðherra að formaður Afstöðu – réttindafélags kysi það helst að dómþolar afplánuðu einfaldlega ekki dóma sína. Þótt slíkar upphrópanir kunni að hljóma vel í hita leiksins í þingsal eru þær fjarri sanni. Stefna félagsins snýst þvert á móti um að mannúð sé höfð að leiðarljósi, að jafnræði ríki og að allir dómar hafi skýran tilgang.

Skoðun
Fréttamynd

Mann­réttindi í hættu í yfir­fullum fangelsum

Sem verkefnastjóri hjá Rauða krossinum, sem starfar að málefnum einstaklinga bæði í afplánun og eftir afplánun, tek ég heilshugar undir áhyggjur stjórnar Fangavarðafélags Íslands af yfirfullum fangelsum. Nýleg umfjöllun sýnir að staðan hefur enn versnað og fangelsiskerfið er nú komið að þolmörkum.

Skoðun
Fréttamynd

Sjá ekki fyrir endann á á­standinu í fangelsunum

Fangelsiskerfið er komið að þolmörkum og fangelsin eru yfirfull að sögn formanns Félags fangavarða og dæmi um að fangar gisti dögum eða vikum saman í einangrunarklefum. Formaðurinn segir stjórnvöld þurfa að bregðast við þegar í stað

Innlent
Fréttamynd

Fanga­verðir segja fangelsis­kerfið „al­gjör­lega komið að þol­mörkum“

Stjórn Fangavarðafélag Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af yfirfullum fangelsum. Erfiðara sé að tryggja öryggi fanga og starfsfólks og halda uppi eðlilegri þjónustu. Dæmi séu um að fjórtán fangar dvelji á deild fyrir átta og að fangar þurfi að dvelja í einangrun eða á lögreglustöðvum langtímum við ófullnægjandi aðstæður.

Innlent
Fréttamynd

Gabríel Douane játaði ó­vænt að hafa barið fangaverðina

Gabríel Douane Boama játaði óvænt að hafa barið þrjá fangaverði á Litla-Hrauni og notað við það armbandsúr í ágúst árið 2024, þegar aðalmeðferð í máli hans hófst í morgun. Hann vildi þó að ákærunni yrði breytt á þann veg að orðið hnúavopn yrði fellt á brott, sem ákæruvaldið féllst á.

Innlent
Fréttamynd

„Ég stend ekki hér út af minni for­tíð“

Nýr oddviti Flokks fólksins í Reykjavík segir að ekki sé hægt að bendla hann við flokkaflakk eftir að hafa skipt um flokk fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hann segir mestu máli skipta að mikilvæg málefni hljóti hljómgrunn. Það sé gott að fá annað tækifæri eftir að hafa afplánað 16 ár í fangelsi. 

Innlent
Fréttamynd

Vistum fanga í í­búðar­hverfum

Afstaða-réttindafélag hélt vel sóttan kynningarfund fyrr í mánuðinum þar sem ný og byltingarkennd nálgun í fangelsismálum var til umræðu. Á fundinum var evrópska samstarfsverkefnið og hreyfingin RESCALED kynnt, en markmið hennar er að skipta út stórum fangelsum fyrir smærri og samfélagsnálægari vistunareiningar. Tilkynnt var á fundinum að Afstaða muni formlega ganga í hreyfinguna í næsta mánuði.

Skoðun
Fréttamynd

„Þið komið ekki til Ís­lands til að brjóta af ykkur“

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikið hafa áunnist í baráttu við glæpi á Íslandi en alltaf sé hægt að gera betur. Hún segir íslenskan lagaramma eiga að senda skýr skilaboð til glæpamanna um að Ísland sé ekki góður áfangastaður. 

Innlent
Fréttamynd

Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað máli hinnar áströlsku Nöru Walker á hendur íslenska ríkinu frá dómi. Nara kærði ríkið í kjölfar þess að hún var sakfelld og dæmd í átján mánaða fangelsi fyrir að bíta hluta úr tungu fyrrverandi eiginmanns síns. Dómstóllinn taldi kæru hennar ekki byggða á nægilega sterkum grunni og því þyrfti að vísa henni frá dóminum.

Innlent
Fréttamynd

Loksins fá sjónar­mið Af­stöðu hljóm­grunn

Þar sem ég sat á landssamráðsfundi um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess á Hilton Reykjavík Nordica fyrr í mánuðinum læddist að mér grunur sem ég átti eiginlega erfitt með að trúa og reglulega leit ég í kringum mig til að fullvissa mig um að þetta væri ekki ímyndun.

Skoðun
Fréttamynd

Guð­mundur Ingi snýr aftur á þing í dag

Guðmundur Ingi Kristinsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 16. mars. Þá víkur varaþingmaður hans, Grétar Mar Jónsson, af þingi. Greint var frá því í upphafi desember að hann væri kominn í veikindaleyfi vegna hjartaaðgerðar.

Innlent
Fréttamynd

Sam­félag sem hugsi svona þurfi líka endur­hæfingu

Ráðgjafi Afstöðu segir tilhögun fangelsismála hér á landi barn síns tíma en félagið kynnti í morgun nýjar útfærslur fangelsishúsnæðis sem einkennast af smærri húsnæðiseiningum inni í íbúðahverfum. Þar gætu fangar nýtt þjónustu samfélagsins og boðið upp á þjónustu sjálfir.

Innlent
Fréttamynd

Fanga­vörður sendur í leyfi

Fangavörður á ónefndri stafsstöð Fangelsismálastofnunar hefur verið sendur í leyfi frá störfum, grunaður um brot í opinberu starfi.

Innlent