„Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ Smári Jökull Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 12:06 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. vísir/einar Dómsmálaráðherra segir að maður sem dæmdur var fyrir morð í Rauðagerðismálinu hafi ekki setið skemur í fangelsi vegna lagabreytingar um brottvísanir erlendra fanga. Endurkomubann mannsins gildir æviangt á öllu Schengen-svæðinu.
Í gær var greint frá því að Angjelin Sterkaj, sem árið 2023 var dæmdur í sextán ára fangelsi í Hæstarétti fyrir morð í Rauðagerðismálinu, hefði fengið reynslulausn og verið vísað úr landi. Byggir brottvísunin á tímabundinni lagabreytingu dómsmálaráðherra sem heimilar að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi, reynslulausn þegar einn þriðji refsitímans er liðinn. Hefur ákvörðunin vakið hörð viðbrögð og því verið velt upp hvort ákvörðun um reynslulausn Sterkaj sendi skilaboð um að tekið sé lint á glæpamönnum hér á landi. „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar. Það sem breyttist var að að afstaða stjórnvalda er sú að við erum ekki að fara að aðlaga þennan mann aftur inn í samfélagið. Þess vegna fer hann ekki inn á Vernd þar sem hann er frjáls ferða sinna yfir daginn. Þess vegna gengur hann ekki um samfélagið með ökklaband eða er heima hjá sér. Heldur sleppum við þessum kafla refsingarinnar,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar. Ævilangt endurkomubann á Schengen-svæðinu Ráðherra segir að regluna hér á landi vera þá að fangar afplána helming dóma sinna og hluti af þeim tíma sé afplánaður hjá Vernd. Í þessu tilviki sé fanganum þess í stað vísað úr landi. Hvað gildir þetta endurkomubann lengi? „Það er mismunandi eftir málum en eftir því sem mér skilst þá er það ævilangt í þessu tilviki, ævilangt endurkomubann til Íslands og innan alls Schengen-svæðisins.“ Aðspurð hvort hún líti á endurkomubann fanga sem refsingu segir Þorbjörg Sigríður að slíku banni sé beitt í þeim tilvikum þar sem ákvörðun um brottvísun hefur verið tekin. „Hann sleppur við þann hluta fasans sem stuðlar að því að koma honum aftur í virkni aftur út í samfélagið, fær brottvísun og fær endurkomubann. Hluti af þessum ákvörðunum eru hjá Fangelsismálastofnun og Útlendingastofnun. Svona er okkar regluverk en ég legg ríka áherslu á það að menn afplána helming dæmdrar refsingar á Íslandi.“ „Það má síðan alltaf ræða og við ræðum það auðvitað í samhengi við alla refsipólitík hversu þungar refsingar eigi að vera og annað því um líkt. Þetta var markmiðið og aukaverkunin á þessu, ég neita því ekki, að það losnar um pláss inni á Vernd, í fengslum, fyrir aðra fanga því við vitum að fangelsin okkar eru drekkhlaðin,“ bætir Þorbjörg Sigríður við. Segir að verið sé að rétta kúrsinn og boða frumvörp í haust Hún segist ekki óttast að verið sé að senda skilaboð um að tekið sé lint á erlendum föngum hér á landi. „Staðan hefur verið sú að erlendir fangar voru skemur í fangelsi en íslenskir. Núna erum við að rétta kúrsinn af hvað þetta varðar. En ég skil þessa umræðu vegna þess að ég held að við séum öll reið yfir því að svona glæpur hafi átt sér stað í íslensku samfélagi. Í haust er ég að koma með nokkur frumvörp sem miða að því að taka fastar á skipulagðri brotastarfsemi í íslensku samfélagi með betri verkfærum fyrir lögreglu og ákæruvald. Ég er mjög með augun á boltanum í þeim efnum.“ Ráðherra sér ekki fyrir sér að lagabreytingin, sem gildir til 1. júlí á næsta ári, verði framlengd. Hún segist ekki feimin við að segja að menn sem séu komnir hingað til lands til að vera í afbrotum sé brottvísað. „Stjórnvöld eiga að vera mjög skýr með það að Ísland á ekki að vera áfangastaður fyrir fólk sem kemur hingað til að fremja afbrot.“
Morð í Rauðagerði Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira